Posted by kristingrims under
Daglegt líf Leave a Comment
Helgin afstaðin og alveg einstaklega góð.
Á föstudaginn fór GÖSS, Golfklúbbur Össurar (já, ég var í golfklúbbi í sumar) út að borða á Tapas þar sem haldin var einskonar uppskeruhátíð. Ég rétt slapp (missti af, fer eftir hvernig á það er litið) af skammarverðlaununum, þ.e. verðlaunum fyrir bestu nýtingu vallarins. Ótrúlegt eiginlega að ég hafi ekki verið með versta skorið miðað við hvað ég kann fátt í golfi. En maturinn á Tapas var meiriháttar. 7 réttir; parmaskinka, beikonvafðar döðlur og hörpuskel, smokkfiskur, kjúklingur, humar, strútur og hlíri auk þess sem það var djúsí súkkulaðikaka í eftirrétt. Einnig var í boði fordrykkur, kaffi eftir matinn og aðrir drykkir einsog maður gat í sig látið. Eftir matinn röltum við yfir á Oliver þar sem var staffapartý til að kveðja sumarstarfsfólk.
Á laugardaginn var einnig starfsmannagleði, en nú var það hjá Heilsuakademíunni þar sem ég er nýbyrjuð að vinna með skóla. Með þeim fórum við í keilu (og ég vann Jón Ágúst þrátt fyrir arfaslaka byrjun), út að borða á Santa Maria og enduðum svo kvöldið á pólskum karokíbar. Allt þrælskemmtilegt nema hvað sá pólski var kannski ekki alveg að gera sig..
Auk skemmtilegra kvöld eyddi ég dágóðum tíma í skiladæmi í stærðfræði og eðlisfræði, sem var ekki alveg jafn skemmtilegt. Einnig kíktu Sunna og Audrey aðeins í heimsókn, þar sem Sunna var í helgarferð í bænum. Þyrftum eiginlega að hittast allar mun oftar. Það verður bara planið í vetur..?
Posted by kristingrims under
Daglegt líf Leave a Comment
Það er annríki. Og ég elska það.
Posted by kristingrims under
Samfélagið [7] Comments
Vá, ég hef ekki fundið jafnmikinn kjánahroll síðan síðasta álíka móttökuathöfn fór fram. Þá fylgdist maður spenntur með líkt og nú, nema þá í gegnum útvarp þar sem ég var í 7. bekkjar ferðalagi í Reykjaskóla . Þá kom Keikó til landsins í risa flugvél og landinn að deyja úr spenningi.
Fyrr má nú aldeilis fyrr vera.
Held að það sem ráði þessum móttökum séu vinsældir. Handbolti er vinsæll á Íslandi. Fjöldinn fylgjast með handbolta og því hefur fólk áhuga á að hylla landsliðið þegar vel gengur. Færri hafa áhuga á badminton, júdó og sundi. Efast um að júdókappinn sem keppti hefði fengið fálkaorðu hefði hann unnið gull, efast líka um að fólk hefði hópast saman til að hylla hann þegar heim kæmi. Ósanngjarnt, en svona virka vinsældir.
Ég hegðaði mér einsog öll þjóðin á meðan leikunum stóð; vaknaði snemma og var ofur-spennt. Var stolt (og er enn) af “strákunum okkar” og var viss um að þeir yrðu Ólympíumeistarar.
En öllu má nú ofgera og þessi viðhöfn sem er í gangi núna finnst mér kjánaleg. Útsendingin á RÚV er pínleg og yfirborðskennd. Ég held að Íslendingar muni vakna með timburmenn að einhverjum tíma liðnum og sjá, líkt og eftir heiðursmóttöku Keikós, að eitthvað var rangt við þetta.
Það er þó hvorki handboltalandsliðið (né Keikó á sínum tíma) sem á sök á þessari pínu. Bæði landsliðið og háhyrningurinn stóðu fyrir sínu og vel það. En ríkisstjórnin ætti aðeins að skoða sín mál…
Posted by kristingrims under
Skólinn 1 Comment
Eftir að hafa eytt bróðurparti af deginum í að lesa og glósa í hagfræði (af því allt í einu var stundataflan orðin ansi götótt) er ég farin að hlakka til að komast út í rigninguna, hoppa í pollum og syngja óstjórnlega hátt. Ekki það að ég muni gera það samt. Bara hugsa um það. En fara samt út, hlaupa kannski ?
En það sem situr í mér eftir daginn er eitt af þeim mörgu orðum sem ég hef glósað í dag. Orðið monopoly. Spilaði spilið svo oft sem krakki án þess einusinni að hugsa út í að það gæti haft merkingu. En loksins veit ég hvað það þýðir: einokun.
p.s. ég var alltaf bíllinn. Það var happa.
Það leynir sér ekki að skólinn sé byrjaður. Rithöndin er strax orðin dofin og heilasellurnar eru að vakna til lífsins hver á fætur annarri. Ég byrjaðir einnig (illa) í ræktinni í morgun og ætla að reyna að fara virka morgna og brenna næstu 2 vikur, áður en ég byrja á öðru. Það veitir ekki af.
Skólinn leggst annars vel í mig. Kennararnir virka mjög hæfir og ég er spennt fyrir námsefninu -allavega enn sem komið er. Félagslífið virðist einnig vera vel aktívt og skemmtilegt.
Fleira er það ekki í bili, aðeins tilkynningaskyldan í dag. Er orðin þægilega þreytt eftir fyrsta púl vetrarins, langan skóladag og mörg stærðfræðidæmi.
Posted by kristingrims under
Daglegt líf,
Skólinn 1 Comment
Bókakaupin björguðust í dag enda var nú ekkert mál að finna Bóksölu stúdenta þegar maður vissi hvert maður átti að fara. Skil ekkert í okkur að hafa ekki vitað það fyrr. Við sjáum reyndar fram á að annað tveggja í vetur: ónýtt og bogið bak eða sterkt og breitt bak. Engin smá þyngsli sem þessar bækur eru !
Kláraði einnig að kaupa glósubækur í dag í Eymundsson í Holtagörðum þar sem hvorki Griffill né Office1 bauð uppá uppáhalds stærðfræðiglósubækurnar mínar: harðspjalda rúðurstrikaðar með litakápu. Freistaðist í leiðinni til að kíkja í Útilíf þar sem ég dressaði okkur Jón Ágúst upp af íþróttabolum fyrir veturinn. Voðalega getur maður verið veikur fyrir útsölum..
Og að ógleymdu. Maður verður nú bara að minnast á gott gengi íslenska handboltalandsliðsins. Maður er vakinn og sofinn að fylgjast með leikjunum. Allur tjúnaður upp eldsnemma á morgnana eða um miðjar nætur. Frábært gengi, frábært lið. Hef óbilandi trú á þeim og hlakka til að sjá þá spila á föstudaginn. Sem betur fer erum við búin snemma í skólanum.
[þessi færsla er skrifuð upp í rúmi. liggjum hér bæði; ég með tölvuna en Jón Ágúst með Calculus, stærðfræðibókina. erum óttalegir nördar en samt ofur-krúttleg með gleraugun á nebbanum, undir sæng að lesa við lampaljós.
ætla að fara að lesa líka fyrsta kaflann. þetta er samkeppni og á eflaust bara eftir að harðna eftir því sem líður á veturinn. við þolum hvorugt að tapa.]
,,to give anything less than your best is to sacrifice the gift”
Posted by kristingrims under
Daglegt líf [2] Comments
Báðum nýnemadögunum er nú lokið og við vonandi bættari fyrir vikið. Kunnum á MySchool og vitum algjörlega allt um BUHR og Gegni. Geggjað.
Gerðum tilraun til að kaupa skólabækur en það náði ekki lengra en að vera tilraun. Við erum ekki enn alveg búin að átta okkur á borginni greinilega. Skömm að segja frá því eiginlega.
Fórum svo í mat til Elmu Daggar, æskuvinkonu frá Hornafirði og Árna, kærasta hennar. Frábært að endurnýja gömul kynni og fá góðan mat í þokkabót.
…semsagt, smá update á deginum í dag. Á morgun er frí en ætlum að gera aðra tilraun til bókakaupa. Verðum vonandi betur áttuð.
Posted by kristingrims under
Daglegt líf,
Skólinn 1 Comment
Þá erum við official orðin háskólanemar við Háskólann í Reykjavík, nánar tiltekið verkfræðinemar. Skólasetningin var í dag auk ýmissa kynninga. Maður vissi ekki alveg við hverju maður átti að búast fyrirfram, en eftir fyrsta daginn er ég gífurlega spennt. Svafa Grönfeldt er alveg jafn flott og ég gerði ráð fyrir, fíla hana í botn. Metnaðurinn er mikill, samskiptin virka persónuleg auk þess sem mér finnst krafturinn og hvatningin áberandi. Vona bara að þetta standi allt undir væntingum þegar á hólminn er komið. Og að ég standi undir væntingum skólans.
Ég er þó ekki enn búin að hitta neinn face to face sem er að fara í rekstrarverkfræði. Við gömlu MA-ingarnir púkuðum okkur svolítið saman í dag, en þau hin eru öll að fara í fjármálaverkfræði. Og einhverjir reyndar í heilbrigðis, en þeir mættu ekki í dag.
Nýnemadagur nr. 2 er á morgun. Skv. dagskránni verða kynningarnar þá mun meira líbó, ef ég skil þetta allt rétt. Að lokum verður svo grillveisla. Við Jón Ágúst ætlum líka að kaupa bækurnar á morgun. Reiknuðum þetta áðan og bókakostnaður í ár verður um 45.000 kr -utan við stílabækur, skriffæri o.þ.h. Það kaldhæðnislega við það þó er að við erum að kaupa sömu bækurnar, allar nema eina. Fúlt að geta ekki samnýtt bækurnar þar sem við verðum í sömu tímum á sama tíma. Eiginlega bara hundfúlt og ömurlegt. Og þó. Myndi aldrei nenna að þræta um það hvort okkar ætti að lesa á undan í eðlisfræði eða sitja með Jóni Ágústi endalaust að reikna stærðfræði.
Heitt bað, mjúk sæng og góður svefn er þó það eina sem ég þrái núna. Vöktum í nótt til að horfa á handboltann og erum búin að vera dauðþreytt í allan dag. Ekki skynsamlegasta byrjunin á skólaárinu, en þetta verður betra. Ég lofa..
Posted by kristingrims under
Daglegt líf 1 Comment
Í dag höfum við Jón Ágúst verið saman í 2 1/2 ár.
Í dag er einnig síðasti dagurinn sem við erum áhyggjulaus en á morgun verðum við orðin háskólanemar, þjakaðir af áhyggjum og tímaleysi.
Ætlum að halda upp á afmælisdaginn og kveðja í senn frítímann og almennt slugs með því að fara út að borða.
Posted by kristingrims under
Heimilið 1 Comment