Ég er að taka til. Í lífinu, bara aðeins. Það er einmitt kominn sá tími, tiltektartími. Henda burt öllu því slæma og taka fram það góða. Þetta eru að vissu leyti ákveðin tímamót. Breytingar í nánd, einsog svo oft vill verða, og best að byrja nýja tíma í vellíðan. Hafa sitt á hreinu og vita hvað maður vill. Og gera einsog maður vill, hafa hlutina einsog maður vill.
Síðasti vinnudagurinn minn hjá Össuri var í dag. Í bili að minnsta kosti. Ég er velkomin aftur næsta sumar, þau skilaboð voru skýr sem mér fannst ánægjulegt að heyra. Ég hef trú á að ég muni halda þar áfram því mér líkar þetta fyrirmyndarfyrirtæki vel. Vona þó að ég fái að breyta um starfsvettvang þegar ég kem aftur, fái meira krefjandi starf og skemmtilegra.
Ég kom færandi hendi síðasta vinnudaginn minn, ég kom með súkkulaðiköku. Reyndar ekki heppilegur dagur til að koma með köku, þar sem annarhver föstudagur er bakkelsisdagur hjá Össuri og í dag var sá dagur. Þannig í bland við mína kveðjusúkkulaðiköku, sem ég lagði mig í lima við að baka og rústaði eldhúsinu í leiðinni, voru í boði fjórar aðrar kökur, kleinur, vínarbrauð, rúnstykki, ostahorn o.fl. Lán í óláni kannski, því ég er enginn fyrirmyndarbakari svosem. Reyndar var kakan ágæt. En fyrir utan að allir veggir voru út í deig- og kremslettum að bakstri loknum þá misáætlaði ég uppskriftina algjörlega og úr urðu þrjár stórar súkkulaðikökur. Ein fór í vinnuna og kláraðist. Ein fór í kvöldkaffi í gær, morgunmat í morgun, kaffi- og kvöldmat og restina af henni setti ég út á svalir í þeirri von að fuglarnir hefðu áhuga. Þá síðustu ætla ég að taka með mér norður á morgun.
Annars er mjög gott að vera hætt að vinna og vera komin í vikufrí áður en skólinn byrjar. Er búin að nota daginn í dag, eftir að ég skutlaði Jóni Ágústi í flug norður, í að taka til í íbúðinni og gera kósý. Svo gott að vara í hreinni og fallegri íbúð. Svo unaðslegt að skríða þreytt uppí uppábúið rúmið með gyllta rúmteppinu, þrjá kodda undir hausnum, hlusta á þægilega tónlist og skrifa í tölvunni. Þó galli að eiga King Size þegar maður sefur bara einn -það virðist svo tómlegt. Neyðist til að breiða vel úr mér. Leika krossfisk.
Ætlaði að keyra upp í Borgarnes í kvöld, en er hætt við og ætla að njóta þess að vera ein heima í stóra rúminu með þægilegu tónlistina . Með smá baileys með klaka. Keyri frekar snemma í fyrrmálið. Þarf að vera mætt kl. 7:30 í Nesið því við mamma og amma ætlum að skreppa í kvenna-roadtrip norður á Dalvík á Fiskidaginn, gista í sveitinni í Þingeyjasýslu og heim aftur á sunnudaginn með smá viðkomu á handverkssýningu í Hrafnagili. Ég hef reyndar nákvæmlega engan áhuga á handverki svo það verður tvennt í boði fyrir mig þegar þær fara þangað. Kíkja í sund eða þykjast hafa áhuga á handverki og vera ekki ættarskömm.
Næsta vika, frívikan, mun svo fara í þessa tiltekt sem ég talaði um fremst í þessari færslu. Koma reglu á lífið. Ég ætla að klára það sem þarf að klára varðandi íbúðina, s.s. fá mér eldhússtóla, setja upp myndir og gardínur og pússa hnífapörin.
Ég ætla að skipuleggja og sortera gamlar glósur m.t.t. þess hvað gæti komið að góðum notum, auk þess að nota glósurnar í upprifjun á þeim grunnatriðum sem ég þarf að kunna í stærð- og eðlisfræði fyrir veturinn.
Ég ætla að fara að hreyfa mig og borða hollan mat á nýjan leik, en ég hef tekið stór hliðarskref í þeim málum undanfarið og vaxið um nokkra sentimetra á þverveginn.
Síðast en ekki síst, ætla ég að vera góð við kærastann minn sem hefur þurft að umgangast mig undanfarið í þeim sköpum sem ég hef verið. Það er ekki mjög vænlegt þegar ég er orðin þreytt og leið á venjulega lífinu og er farin að þrá breytingar.
HR hefst svo fyrir okkur nýnema á mánudaginn eftir viku, 18. ágúst, á nýnemadögum og fyrsti kennsludagur verður 21. ágúst. Ég er farin að hlakka mjög til. Held að þetta verði góður vetur. Krefjandi, viðburðaríkur og skemmtilegur.
Heldur betur hellingur að gerast hjá þér greinilega
gangi þér vel í skólanum!
Takk fyrir það Rik.. Gaman að fá komment frá þér.