Við stelpurnar, ég, mamma og amma, brugðum undir okkur betri fætinum um helgina og skruppum norður yfir heiðar. Eyddum laugardeginum að mestu á Fiskideginum á Dalvík en undir kvöldið keyrðum við austur í Þingeyjasýslu og gistum í sveitinni hjá Jóni Ágústi. Ég fór þar ásamt þeim feðgum, þ.e. Jóni, pabba hans og þremur bræðrum, í smá jeppaferð upp á heiði í átt að Þeystareykjum.
Á sunnudeginum hófum við daginn í berjamó upp í heiði. Það var þó lítið um bláber en þeim mun meira af krækiberjum, svo ég er vel sett með ber í morgungrautinn næstu vikur. Eftir hádegi þeystum við norður í Eyjafjörð þar sem þær mæðgur fóru á handverkssýninguna í Hrafnagili (ég nennti engan veginn) auk sem þær kíktu í jólahúsið (sem ég nennti ekki að skoða heldur). Brynjuferð er að sjálfsögðu skylda og einnig náði ég aðeins að hitta á Sunnu vinkonu á meðan þær eldri kíktu í heimsókn til Önnu Maríu, systur ömmu.
Við vorum ekki komin til baka í Borgarnes fyrr en eftir miðnætti og eftir kvöldkaffi á Borgarbrautinni ók ég í bæinn og skreið þreytt upp í rúm um klukkan tvö.
Nú hef ég það kósý heima að dunda. Svo gott að fá smá frí.
