Draumórar og ekki draumórar.
Jú, ég fór út að skokka en þó ósköp stuttan hring. Ég fékk mér bæði hafragraut og skyr með berjum en engan rjóma. Ég kíkti aðeins í glósur en aðeins 403 og 503. Ég náði ekki í myndirnar né keypti ramma og hengdi þ.a.l ekkert upp á vegg. Seldum ekki bílinn, en höldum enn í vonina. Einhver ?
Æ, þetta er eiginlega enginn dagur til að segja frá.
Vil reyndar dásama það sem ég gerði í kvöld -eða réttara sagt það sem gert var við mig. Og dásama það að búa hér við sjóinn í Grafarvogi og hversu stutt er í allt. Ég fór semsagt í dekur; plokkun, litun og vax hjá stelpu/konu sem býr hér spölkorn frá. Hef farið til hennar síðan ég flutti í bæinn enda er hún alveg frábær. Vandvirk, ódýr og skemmtileg. Og ekki er það verra að hún er Vestfirðingur. Hún sjálf er Ísfirðingur en á ættir að rekja til Bolungarvíkur auk þess sem maðurinn hennar er þaðan. Þau eiga tvo stráka og giftu sig í fyrra 07.07.07. Þannig ég spyr í anda Kalla Hallgríms sbr. hver er Víkarinn ?, hver eru þessi hjón ?
Þetta kvöld er ekki það eina góða í þessari viku en þau tvö á undan hafa einnig verið góð. Ingibjörg vinkona kíkti hingað í spjall á mánudagskvöldið og í gærkvöldi kom hingað stórfjölskyldan í pizzuveislu, þ.e. amma og afi, mamma, pabbi og bró og systkini mömmu og fjölskyldur. Loksins erum við komin í íbúð sem býður upp á fjöldasamkvæmi, þ.e. fleiri en 5 manns.
—–
Klukkan er 22.40. Kominn háttatími þar sem við hjú ætlum að vakna 5:40 i fyrramálið og horfa á íslenska handboltalandsliðið leika gegn Kóreu. Ég er ekki alveg að átta mig hvort þetta sé bilun eða ekki…
Leiðinlegt að komast ekki, það er svona að vera í vaktavinnu. Ég kíki bara inn seinna með innflutningsgjöf… Betra seint en aldrei.
Takk fyrir boðið í innflutningspartýið. Átti ekki heimangengt en kíki en kem örugglega í heimsókn þegar ég verð við verðum á Fróni. Vonum að þið hafið átt góða samveru.
Verið ávallt velkomnar..
En ég trúi ekki að það ætli enginn að giska á hver þessi hjón séu ?
Vísbending: Hún er frænka Arndísar Finnboga. Þær eru systkinabörn. Hann á tvo bræður sem voru mikið í skák þegar ég var í grunnskóla (og eru jafnvel enn).
Þetta er gefið. Eða kíkja kannski engir Víkarar hér enn inn ?
thetta er hùn Kristin fraenka min…. hihihi..