Draumórar
*rumsk*
Nývöknuð með stírurnar í augunum í myrkvuðu herberginu enn undir sæng.
Veit ekki hvernig veðrið er en langar af illri nauðsyn að fara út að skokka. Helst ef það væri smá úði og fersk graslykt. Koma svo inn og elda hafragraut og setja krækiber útá. Og undanrennu. Ná að rifja upp allt sem ég man ekki í stærðfræði 403, 503 og 603. Fá mér skyr með bláberjum og rjóma. Ná í myndir í framköllun. Kaupa myndaramma í leiðinni og hengja upp á vegg. Væri draumi líkast ef við næðum að selja bílinn í dag.
Slappa svo af með tærnar upp í loft og njóta þess að hafa gert allt það sem mig langaði að gera í dag.
… og þá er bara að byrja. Góðan dag !

Skildu eftir svar