Á mánudaginn kemur veturinn…

Ég hef verið dugleg í sumar að safna forða. Á sjálfa mig semsagt. Er orðin einsog vel haldið bjarndýr bíðandi eftir vetrinum til að geta gengið á þennan forða. Bara að ég væri líka einsog bjarndýr að því leyti að feldurinn yxi með fitunni, ólíkt því sem fötin gera.

Mánudagurinn næstkomandi mun ekki verða til mæðu. Þá loks hefst veturinn. Ég er farin að hlakka til. Ég elska andstæðurnar sem fylgja vetrinum. Myrkur og kertaljós. Kuldinn og hlýju fötin. Mér finnst veturinn svo kósý. Get heldur ekki beðið eftir öllu því sem skólanum fylgir. Maður þarf að setja sig í stellingar. Loksins kemur aftur krefjandi tímabil. Púsluspil og pínu stress. Næ ég að gera allt sem ég þarf að gera ? Hver er forgangsröðunin ?

Semsagt, á mánudaginn hefst vetrartímabilið með skóla, líkamsrækt, hollu mataræði og skipulagi. Ég hef góða tilfinningu fyrir þessu…

~ af kristingrims á ágúst 15, 2008.

2 svör to “Á mánudaginn kemur veturinn…”

  1. Rosalega líst mér vel á þessa jákvæðni og markmið þín eru keimlík mínum :) Er sjálf að koma mér aftur af stað í að hreyfa mig eftir mikinn slappleika og er það yndislegt að taka á því, verða móður og að lokum þreyttur.
    Gangi þér sem best að byrja í nýju námi. Rekst svo vonandi á þig í Reykjavíkinni…ætli sundlaug Grafarvogs ásamt Bónus í Spönginni verði ekki líklegustu staðirnir ;)
    Kveðja Dagrún

  2. Takk fyrir það.
    Og já, kannski er tími til að kíkja á sundlaug Grafarvogs. Hef enn ekki farið þangað.

    En bíddu bíddu, er mig að misminna.. eruði ekki á stúdentagörðum HÍ ? Eða eruði uppí Grafarholti ? Eða á enn öðrum stað ? :p

Skildu eftir svar