Þá erum við official orðin háskólanemar við Háskólann í Reykjavík, nánar tiltekið verkfræðinemar. Skólasetningin var í dag auk ýmissa kynninga. Maður vissi ekki alveg við hverju maður átti að búast fyrirfram, en eftir fyrsta daginn er ég gífurlega spennt. Svafa Grönfeldt er alveg jafn flott og ég gerði ráð fyrir, fíla hana í botn. Metnaðurinn er mikill, samskiptin virka persónuleg auk þess sem mér finnst krafturinn og hvatningin áberandi. Vona bara að þetta standi allt undir væntingum þegar á hólminn er komið. Og að ég standi undir væntingum skólans.
Ég er þó ekki enn búin að hitta neinn face to face sem er að fara í rekstrarverkfræði. Við gömlu MA-ingarnir púkuðum okkur svolítið saman í dag, en þau hin eru öll að fara í fjármálaverkfræði. Og einhverjir reyndar í heilbrigðis, en þeir mættu ekki í dag.
Nýnemadagur nr. 2 er á morgun. Skv. dagskránni verða kynningarnar þá mun meira líbó, ef ég skil þetta allt rétt. Að lokum verður svo grillveisla. Við Jón Ágúst ætlum líka að kaupa bækurnar á morgun. Reiknuðum þetta áðan og bókakostnaður í ár verður um 45.000 kr -utan við stílabækur, skriffæri o.þ.h. Það kaldhæðnislega við það þó er að við erum að kaupa sömu bækurnar, allar nema eina. Fúlt að geta ekki samnýtt bækurnar þar sem við verðum í sömu tímum á sama tíma. Eiginlega bara hundfúlt og ömurlegt. Og þó. Myndi aldrei nenna að þræta um það hvort okkar ætti að lesa á undan í eðlisfræði eða sitja með Jóni Ágústi endalaust að reikna stærðfræði.
Heitt bað, mjúk sæng og góður svefn er þó það eina sem ég þrái núna. Vöktum í nótt til að horfa á handboltann og erum búin að vera dauðþreytt í allan dag. Ekki skynsamlegasta byrjunin á skólaárinu, en þetta verður betra. Ég lofa..
Til hamingju, háskólastelpa og háskólastrákur !