Áttavillt

Báðum nýnemadögunum er nú lokið og við vonandi bættari fyrir vikið. Kunnum á MySchool og vitum algjörlega allt um BUHR og Gegni. Geggjað.

Gerðum tilraun til að kaupa skólabækur en það náði ekki lengra en að vera tilraun. Við erum ekki enn alveg búin að átta okkur á borginni greinilega. Skömm að segja frá því eiginlega.

Fórum svo í mat til Elmu Daggar, æskuvinkonu frá Hornafirði og Árna, kærasta hennar. Frábært að endurnýja gömul kynni og fá góðan mat í þokkabót.

…semsagt, smá update á deginum í dag. Á morgun er frí en ætlum að gera aðra tilraun til bókakaupa. Verðum vonandi betur áttuð.

~ af kristingrims á ágúst 19, 2008.

2 svör to “Áttavillt”

  1. Manst bara Kristín mín að Garðabær er næsta sveitarfélag við Kópavog og bláu húsin eru í Skeifunni sem er í Reykjavík híhí

  2. Hehe, maður lærir smátt og smátt.
    Hélt mig samt vera nokkuð vel áttaða en Bóksala Stúdenta var mér greinilega ofraun..

Skildu eftir svar