september 2008


Síðasta vika í skólanum er búin að vera nokkuð strembin. 2 próf (hagfræði og frumu- og sameindalíffræði) og 5 skilaverkefni (forritun, stærðfræði, eðlisfræði, tilraun og sameinda -og frumulíffræði).  Þetta gekk allt svona semi. Flest hefði ég viljað gera betur, en það verður bara að hafa það. Ég náði þó að skila öllu á réttum tíma en sé ekki fram á neina 10 í þessi skiptin. Það hlaut að koma að þessum punkti. Því miður.
En þetta er að baki og nú er bara að horfa fram á við og skilja það eftir sem maður getur ekki breytt. Ætla að reyna að klára öll skilverkefni fyrir næstu viku fyrir helgi svo ég geti nýtt helgina í að vinna mig upp í þeim fögum sem hafa setið á hakanum.
Ef það gengur upp þá þarf ég enn og aftur að vinna í öðrum málum sem hafa setið á hakanum, þ.e. líkamsræktinni. Hún hefur algjörlega dottið upp fyrir og ég finn orðið svo vel hversu slæm áhrif það hefur fyrir skipulag, skap, líðan o.f.frv.

 Peningarnir vaxa ekki á trjánum i dag...

Peningarnir vaxa ekki á trjánum

Ef maður setur svo sjálfan sig í stærra samhengi þá eru þessi mál smámál í samanburði við það sem er að gerast í samfélaginu. Það eru mun fleiri þarna úti sem þurfa að skipuleggja sig og sín mál mun betur. Hugsa að margir sofi lítið um þessar mundir þegar hagkerfið virðist gjörsamlega vera að hrynja. Vextirnir hækka, krónan hríðfellur, skuldabyrðin eykst og kaupmátturinn rýrnar.
Ég finn þó ekki mikið til með þeim sem fóru offorsi á góðærisfylleríinu og steyptu sér glórulaust í skuldasúpu án þessa að hugsa um mögulegar afleiðingar. Finnst aumkunarvert að sjá fólk grenja um hjálp þegar það veit upp á sig sökina. Það hefur það enginn verr en hann á skilið.
Auðvitað eru til undantekningar, svo ég vil alls ekki alhæfa, en upp til hópa vil ég meina að fólk getur sjálfum sér um kennt og verður því bara að taka afleiðingunum.

Sama á við um stóru karlana á Íslandi. Ég skil þó ekki vel, einsog kannski fæstir gera, út á hvað allt gengur. Er þetta allt polítík ? Er þetta persónuleg mál ? Eða eru þetta bara viðskipti ?
Tjahh, maður spyr sig..

Við mamma á toppi Esjunnar i sumar

Við mamma á toppi Esjunnar í sumar

Elsku mamma á afmæli í dag, orðin 51 árs árs. Árinu eldri, hraustari og fallegri. 
Fyrir ári síðan skipulagði ég óvænt afmælisboð fyrir hana, sem ég komst því miður ekki sjálf í þar sem ég var stödd í Lima, Perú. Í dag er hinsvegar ekkert afmælisboð en ég er föst í námsbókunum. Aldrei getur maður verið heima hjá sér. 

Vona að þú njótir dagsins án mín. Hugsa fallega til þín líkt og alltaf.

[og fyrst ég skelli mynd með stuttri færslu þá þarf ég að skrifa meira svo færslan líti ekki illa út. eyði plássinu með þessum setningum. svona, þetta ætti að vera skrárra.]

Sitjum hér bæði tvö, ég og Nonni minn, sveitt að ljúka við heimadæmin í stærðfræði. Erum búin með skiladæmin í eðlisfræði en erum þó ekki alveg 100% á hvort þau séu rétt. Komumst hinsvegar ekki yfir að klára líffræðiverkefnið, enda er það fáránlegt ! Reyndar er skilafrestur á því ekki fyrr en á þriðjudaginn. Auk þess lauk ég næstum eðlisfræðitilraunarskýrslu ásamt félaga í gær. Hann ætlaði að þýða hana yfir á ensku, en ég hef ekkert heyrt frá honum. Vona að ég þurfi ekki að hafa áhyggjur af því.

Klukkan er 23:00.

Við fórum í matarboð á föstudaginn og partý til Audrey og Sigga á laugardaginn.
Annars bara lærðum við.

Mamma á afmæli á morgun. Eftir klukkutíma. Til lukku mamma ! Vona að ég sé ekki orðin of sýrð af lærdómi til að geta spjallað við hana á morgun um skemmtilega hluti.

Það rignir úti. Einsog vanalega. Kósý -en samt pínu niðurdrepandi. Hentar þó vel með öllum þessum lærdómi.

Mig langar svo í skiptinám. Ég er bara að hugsa um skiptinám og það kemst ekkert annað að. Hvert ég geti farið, hvernig ég kem ferlinu af stað og hvenær ég eigi að fara.

Á semsagt mjög erfitt með að einbeita mér að því að læra fyrir prófið sem er á morgun. Og ég kann fátt. Sjitt..

Því miður náði ég ekkert að hreyfa mig í dag og er því ekki jafn “kætt og bætt” og í gær. Var í skólanum til kl. 17 og er síðan þá búin að liggja yfir frumulíffræði og hef afrekað að renna yfir rúmlega 200 blaðsíður, vitanlega allar á ensku. Það er próf á föstudaginn og ég veit fátt. Þó meira en aðrir, þar sem ég lærði margt af þessu í MA. Þó virðist vitneskjan um glycolysu, histon og transscription mást fljótt út úr minninu.

Ég held ég sé búin að taka ákvörðun um að fara ekki á námskeiðið sem ég talaði um í gær og mig langar svo mjög á. Einfaldlega af því ég fór að hugsa á skynsamlegu nótunum. Það gerist yfirleitt fljótlega eftir að ég hef ákveðið að gera eitthvað gífurlega spennandi og tel sjálfri mér trú um að allt muni nú reddast. Ég hljóti bara að geta fundið fleiri klukkutíma í sólahringnum. En svo kemst ég aftur niður á jörðina og sé hvernig hlutirnir eru í raun og veru.

Sé semsagt ekki fram á tíma til að skottast í Laugum og dilla rassinum hressilega við skemmtilega tónlist heldur heldur verð ég (og vil, því námið er jú það sem ég vil og valdi) að vinna heimadæmi í eðlisfræði, heimadæmi í stærðfræði, klára hópskýrslu úr eðlisfræðitilraun og gera skilaverkefni í frumulíffræði. Það er það sem er nauðsynlegast. Og helst vildi ég einnig ná að undirbúa mig örlítið fyrir komandi viku.

Já, þetta er skorðað líf. En skemmtilegt þó, ótrúlegt en satt..

Hjólaði í sund í kvöld, synti kílómetra og hjólaði heim. Skreið svo beint upp í rúm og er algjörlega afslöppuð. Ætla að renna yfir glærur í frumulíffræði (próf á föstudag) þangað til Nonni minn kemur heim, en hann skrapp í handbolta með strákunum.

Það munar svo ótrúlega miklu að hreyfa sig og fá súrefni þegar maður liggur með nefið niðrí bókunum allan daginn, alla daga. Stundum finnst mér ég ekki hafa tíma, en það er þá bara vegna þess að ég bý mér ekki til tíma. Núna þegar mánuður er liðinn af skólanum ætti ég að vera búin að sjá hvernig hlutirnir ganga fyrir sig og þ.a.l. ætti að vera auðveldara að skipuleggja sig m.t.t. skólans.

Námið gengur annars vonum framar. Veit hreint ekki hvort að ég sé búin að leggja svona mikið á mig eða hvort að námið sé hreinlega ekki erfiðara en þetta, en hingað til hef ég fengið 10 úr öllum skilaverkefnum og prófum. Ætli það sé ekki sitt lítið af hvoru.  Veit samt að ég fæ ekki nema 9 úr hagfræðiprófi sem var í dag, þannig maður verður að halda sér við efnið ef svona vel á að ganga áfram.

Annars langar mig enn að bæta við mig. Lengi getur maður blómum bætt, eða hvað ?  Sigga, vinkona mín sem var með mér í einkaþjálfaraskólanum, benti mér á þetta námskeið í dag sem hún er að fara á og ég er mikið að spá í að fara með henni. Þetta eru 6 helgar, frá september fram í nóvember. Þetta kostar kannski aðeins meiri skipulagningu, en verður eflaust alveg þess virði. Reyndar kostar þetta nokkrar líka krónur, svo ef ykkur langar að gleðja fátækan námsmann á afmælisdaginn þá er þetta efst á óskalistanum.

Semsagt, ekkert nema unaður og munaður þessa dagana þegar maður er búinn að koma skipulagi á hlutina.

Áhugasviðssólin min

Þótt rigningin úti ætli engan enda að taka þá skín samt sólin -áhugasviðssólin.

Ég lenti í úrtakshóp hjá meistaranema í Kennslu- og lýðheilsudeild HÍ, sem er að kanna virkni Bendils, sem er einskonar áhugasviðskönnunarforrit (fremur óþjált orð).
Ég er alltaf til í að taka þátt í könnunum og þá sérstaklega áhugasviðskönnun, sem margir borga fúlgur fjár til fá að fara í (sem við reyndar gerðum vorið 2007).

Niðurstaðan var svo þessi fallega sól.
Hún segir mér að áhugasviðið mitt liggi helst á athafnasviði, skipulagssviði og félagssviði. Þá á vísindasviði, minna á listasviði og minnst á handverkssviði (ættarskömm!). Ég ætti einnig skv. könnuninni að finna mér starf þar sem eftirfarandi þættir eru veigamiklir: íþróttir og heilsa, opinber stjórnsýsla, viðskipti og rekstur, fjármál, stærðfræði og hugvísindi.

Líst barasta vel á þetta !

Ég var slegin utanundir núna rétt áðan. Svosem ekki í fyrsta skipti í vetur þar sem ég hef áður reynt að vakna snemma og mæta í ræktina.

Ég er í ömurlegu formi !

Sem er um að kenna ömurlegu mataræði síðustu vikurnar. Eftir að skólinn byrjaði hefur þetta verið næringarrútínan:
mán- fim: borða nánast ekkert
fim-sun: gúffa í mig allskyns óþverra.

Ekki vænlegt til árangurs það. Ætla því að halda smá matardagbók þessa vikuna og koma þessum málum í lag. Ætla að geta klárað einn morguntíma í vikunni án þess að fá blóðsykurfall og yfirliðstilfinningu.

Vog
Þér finnst þú loksins reiðubúinn til að tjá þarfir þínar og pælingar fyrir maka þínum. Vertu heiðarlegur og beinskeittur um mál sem hefur legið þungt á þér.

Fiskar
Þú ert opinn fyrir nýjum hugsunarhætti. Því skaltu ekki vera með hverjum sem er. Þú ert áhrifagjarn og of varnarlaus gagnvart heimskulegum ráðum.

…getur þetta bara verið tilviljun ?

Það er svo margt sem mig langar, svo margt spennandi í boði.
Það hrúgast inn tölvupóstur um fyrirlestur í þessu, námskeið í hinu og þáttöku í allt öðru. Verst bara að hvað tíminn er af skornum skammti.

Það sem mig langar til að gera/taka þátt í er t.d.
   – dansnámskeið í Boogie Woogie (eða Lindyhop)
   – mæta á ráðstefnu sem nefnist “Ávinningur heilsueflingar á vinnustöðum”
   – bjóða mig fram til að starfa í verkefnastjórn Innovit
   – gerast meðlimur í AIESEC
   – skoða möguleika á skiptinámi eða námskeiðum erlendis

Þegar hef ég ákveðið að ég ætli að standa mig vel í skólanum og stunda hann af kappi, þjálfa upp þrek hjá skautastelpum í Birninum og kenna grunnskólakrökkum Ólympíustærðfræði. Einnig er ég að reyna að troða þarna inn líkamsrækt kl. 6 á morgnana, sem gengur svona upp og ofan (og endar oftar en ekki í smá kvöldskokki til að friða samviskuna).
Þannig verkefni núsins eru í raun full vinna og jafnvel rúmlega, þar sem þetta er heljarinnar púsluspil svo allt smelli fullkomlega saman.

Að velja og hafna er ekki mín sterkasta hlið og helst vil ég geta gert allt.  Er þó nokkurn veginn búin að velja það sem ég mun hafna (í bili).
Ég ætla því að sleppa danstímunum, ég ætla að sleppa ráðstefnunni (sem mig langar samt svo á, hún er bara á skólatíma) og ætla að eyða póstinum frá Innovit..   
   ..en ég ætla að mæta á kynninguna hjá AIESEC sem og á Alþjóðadaginn hjá HR.

Næsta síða »