október 2008


Til hamingju stelpur ! Til hamingju Ísland.

Glæsilegur árangur hjá íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta. Sá ekki nema síðasta korterið af leiknum en það er nánast nóg að horfa á gleðina núna eftir leikinn.

Frábært. Æðislegt.

Þetta er góð lesning um ástandið í dag og ástæður þess. Þetta er víst grein úr Morgunblaðinu eftir Einar Má, sem birt er á öðru bloggi. Einsog talað útúr mínu hjarta, ef ég væri góður penni.

Endilega lesið þetta. Langt en mjög áhugavert.

Ég og Anna Bryndís, vinkona úr skólanum, skráðum okkur í vikunni á námskeið sem heitir Tímaskipulag og markmiðasetning.
Ég ætla að  hætta að eyða tíma í msn, facebook eða annað á netinu á meðan ég á að vera að læra. Ætla að skipuleggja mig vel svo ég komist nokkuð greiðlega yfir allt námsefni og geti bætt hreyfingu inn í planið daglega. Verða aftur heilbrigð á sál og líkama (en ekki mygluð og grá, einsog ég er núna).

Er því að skrá niður þessa vikuna í hvað tíminn fer. (Er með góða samvisku núna og “má” vera á netinu, þar sem ég hef lokið því sem ég ætlaði að gera í dag. Engar skammir í þetta sinn. )
Bætti einnig hér inn á síðuna dagbók, þar sem ég ætla að hafa yfirlit yfir það sem ég þarf og ætla að gera hverja viku.

Klukkan fer að slá 22. Er komin upp í rúm og er að fara að sofa. Samkvæmt plani. Hjólaði í sund í kvöld í frostinu og er hrein, “bodylósjuð” og uppgefin. Hlakka til að loka augunum og sofna.
Það er svo gott að vera skipulagður þegar það á við.
Góða nótt.

Stærðfræði er skemmtileg. Oftast. Ömurlegt samt þegar maður skilur ekki. Er búin að reyna allt mögulegt og ómögulegt í dag en hef samt ekki enn fundið góða lausn.

Ætla því lítið að reyna að tjá mig, það mun bara koma nördalega út.

Góða nótt. Ég er orðin svefndrukkin.

Ég spyr ykkur allar, bæði núverandi mæður og verðandi:

Hvers virði er meðgangan ?

Ég var alveg búin að gleyma að ég tók að mér að selja auglýsingar fyrir heilsublaðið Líf og Sál. Fékk svo áminningu um það í dag. Sé pínu eftir því núna, það er eflaust ekki vinsælt að hringja í fyrirtæki í dag og bjóða þeim að auglýsa á þessum tímum.
Eigiði kannski hressar “pikk-öpp” línur sem myndu virka vel á markaðsstjóra í kreppunni ?

Er annars komin með ógeð á að læra í dag. Jón Ágúst er farinn í handbolta og ég er ekki að nenna út í myrkrið að hreyfa mig. Er að spá að gera einsog Lína Langsokkur, festa skrúbba á fæturnar og þrífa gólfið dansandi..

[p.s. ég fékk 10 fyrir heimadæmin í stærðfræði en gat ekki sjitt í forritunarprófinu. Þetta er fyrir þá sem vilja hafa færslurnar í samhengi eða sem framhahaldsörsögur.]

OMG !

Búin að eyða alltof miklum tíma í skiladæmi í stærðfræði. Og er enn að vesenast til að hafa allt 100%. Hef ekkert lært fyrir forritunarprófið sem er á morgun. Það gildir reyndar ekki, en hefði verið þægilegra að vita eitthvað. Ég veit ekki neitt. Pínu kvíðin. Svo er eðlisfræðitilraun á morgun. Þarf að skila svo annarri fljótlega. Og ég er ekkert byrjuð á hagfræðiritgerð sem á að skila eftir tæpar 2 vikur.

Ég held ég sé að fá ogguponsu kvíðakast. Allavega er ægilegur aðibunugangur í mér og ég veit ekki hvar ég á að byrja og hvernig ég á að skipuleggja þetta allt.

Mér finnst ég alltaf vera lærandi en aldrei minnkar verkefnaflóðið. Ég hef ekki hreyft mig af neinu ráði síðan skólinn byrjaði og ég hef engan tíma haft til að kíkja á Selfoss -hvað þá annað.

Vildi að það væri ekki kreppa, að ég ætti nóg af peningum og gæti ráðið mér aðstoðarmann.

Laugardagurinn í dag er góður dagur.
Fór á Hugsprettu í morgun í Háskólabíó, keypti mér skræbóttan kjól uppúr hádegi, var með barnaafmæli uppi í Egilshöll eftir hádegi, ætla að læra smá núna og svo erum við að fara í leikhús í kvöld á Fólkið í blokkinni.

Ég elska svona góða daga. Þegar maður gerir það sem manni finnst skemmtilegt, gáfulegt, menningarlegt og vinnur sér inn smá pening.

Einsog ég hef áður minnst á, þá tók ég að mér að kenna Ólympíustærðfræði fyrir grunnskólanema á vegum HR. Kynningartíminn var fyrir viku síðan og hann tók vægast sagt á. Þá mættu um 10 krakkar og helmingur þeirra nýtti sér tímann til að fá útrás; köstuðu tennisboltum út um alla stofu (undir hverjum stólfæti var tennisbolti, hversu stupid er það í grunnskólastofu), teiknuðu tippi út um alla töflu, fundu límmiða og límdu á sig, hlupu út um allt og voru með derring. Komst líka að í dag, þegar ég hitti kennarann þeirra í fyrsta skipti, að þeir hefðu stimplað og krotað á verkefni nemenda og rótað í dóti kennarans sem tók því mjög illa. Hún sagði mér einnig að þeir hefðu allir verið sendir til skólastjórans daginn eftir.

Eftir þennan fyrsta tíma fann ég ég gríðarlega til með grunnskólakennurum ef þetta er það sem bíður þeirra á hverjum degi. Ég var alveg búin á því eftir klukkutíma að reyna að halda uppi aga, sem gekk nú ekki betur en þetta. Ég kveið því ögn fyrir tímanum í dag og var búin að búa mig undir það versta -hafði planað að lesa þeim pistilinn og vera algjör grýla til að halda uppi aga.

Sem betur fer reyndist það óþarfi. Þau mætti aðeins 5 í dag, hvert öðru þægari (villidýrin létu semsagt ekki sjá sig aftur) og klárari. Metnaðurinn var mikill og þau einbeitt í að gera vel.
Hlakka því til að halda áfram með þennan hóp. Þetta er skemmtilegt verkefni.

Ég er að rifja upp hjóðfæraleikarann í mér.
Mamma og pabbi komu um helgina með harmonikurnar mínar, sem ég hef ekki snert síðan í 10. bekk í grunnskóla. Ég þótti ágæt á hljóðfærið þegar ég var yngri, en mér fannst þetta ekki töff á gelgjunni og því fékk tónlistarnámið að víkja.

Mig langar að geta spilað aftur, þó ekki ekki væri nema bara fyrir sjálfa mig í lokuðu herbergi -og langar að geta spilað m.a. þetta lag.

Eins langar mig að rifja upp gamalt lag sem ég spilaði á þónokkuð mörgum tónleikum hér í denn. Man bara ekki hvað lagið heitir. Það er svona: duruduruddurudduddudd durururururu-rururu. o.s.frv. Annars er ég bara að byrja á auðveldu nótunum. Sjómannalögunum og svona. Æfa mig fyrir næstu Mærudaga, svo ég verði ekki beiler aftur.. .

Næsta síða »