janúar 2009


Ég er loksins búin að panta tíma hjá Domus Medica til að fara í ómun vegna skjaldkirtilsins. Er búin að vera með beiðnina í vasanum síðan í september en ég hef leyft læknafóbíunni að ráða ferðinni hingað til. Það sem gerði útslagið er mánaðarpúl og hollt mataræði (æfingar a.m.k. 5x í viku og tekið vel á því og mataræðið er svona 85% af fullkomnu (ég leyfi mér ost, eggjrauðu (í hófi þó) og heimabakað brauð) en ENGINN árangur. Ekki gramm og fituprósentan virðist bara hækka.

Ég hálfpartinn vona að ég ég sé með vanvirkan skjaldkirtil því það myndi leysa svo margt. Einkenni vanvirks skjaldkirtils eru eftirfarandi:

  • Síþreyta og þróttleysi
  • Verkir í vöðvum og liðum, sinadráttur
  • Hjartastækkun og hægur púls: púls lækkar úr 60-80 slög/mín í 50- slög/mín.
  • Kulda óþol, lækkaður líkamshiti: Finnur meira fyrir kulda og klæðir sig meira.
  • Minni matarlyst og þyngdaraukning: Hægari líkamsstarfssemi = minni orka.
  • Höfuðverkur og tíðartruflanir
  • Harðlífi: Hægur samdráttur í þarmavöðvum.
  • Húðin þurr og föl
  • Hás og djúp rödd, þykk tunga
  • Heyrnaskerðing
  • Hárið þunnt, þurrt og líflaust
  • Neglur þunnar og brothættar
  • Helmingur einkennanna á við mig:
       Ég á erfitt að halda mér vakandi á kvöldin og get yfirleitt sofnað hvar sem er, hvenær sem er.
       Ég er oft aum í vöðunum, en reyni þó að horfa hjá því.
       Ég hef (og hef haft lengi) lágan hvíldarpúsl en hinsvegar rýkur hann upp við minnsta tilefni og þegar ég æfi er hann venjulega 170-180.
       Ég er mjög viðkvæm fyrir kulda, fingur og tær “deyja” auðveldlega.
       Ég hreyfi mig mikið, borða hollt en ekkert gerist. Ef ég geri það ekki fitna ég (æfði lítið fyrir áramót og fitnaði um 6 kg á 4 mánuðum).
       Fæ tíðatruflanir, án þess að fara frekar út í það.

    Ef í ljós kemur svo að ég er ekki með vanvirkan skjaldkirtil, þá verð ég bara að æfa ENN meira og borða ENN minna, klæða mig ENN betur og þola restina..

    Ég veit varla hvað maður á að segja. Þetta gerist svo hratt.. en samt svo fyrirsjáanlegt. Ég held samt að þetta sé skref í rétta átt. Ég vil losna við Árna Matt, Davíð Oddson og finnst líka rétt að bæði Ingibjörg og Geir víki vegna veikinda þeirra. Ég veit ekki hvar ég stend í flokkspólítíkinni, er heldur að hallast að persónum. Gæti trúað að Þorgerður Katrín væri verðugur forsætisráðherra, jafnvel þó ég sé ekki hlynnt þeim bláu og hafi fyrir nokkrum árum alls ekki verið hrifin af henni, en finnst hún vera sannfærandi í dag.

    Utanþingsstjórn eða minnihlutastjórn. Whatever. Fram að kosningum allavega. Bara að losna undan oki Davíðs, Ísland þarf ,,frelsið”.

    …er ekki vön að fjalla um tíkina, en þetta er nú orðin Íslandssagan.

    Annars er ég farin að sofa. Er dauðþreytt and it feels good..

    …og enn ein vikan að hefjast. Voða líður tíminn.

    Ræktin hefur ekki gengið eins vel og ég hefði viljað þessa vikuna. Skólinn er náttúrulega kominn á fullt, auk kennslu og þjálfunar. Þetta ætti samt að ganga smurt ef maður heldur sig við gott skipulag, en það er stundum freistandi að vera í smá leti. Og þá er komið í óefni.

    Stærðfræðin og (raf)eðlisfræðin eru ekki mínir bestu vinir í augnablikinu og ég er í augnablikinu að reyna að rumpa af skiladæmunum fyrir morgundaginn.

    Annars er allt við það sama. Nema í þjóðfélaginu. Ég spái stjórnarslitum á morgun. Sé þó ekki hvað verður í framhaldinu, vona bara að Davíð hunskist burt.

    Í dag er dagur breytinga.

    Obama sór embættiseið og er orðinn forseti Bandaríkjanna. Mér líst vel á það.
    Mótmæli hafa staðið yfir á Austurvelli í allan dag og þjóðin krefst breytinga. Mér líst líka vel á það (hvað svosem mér finnst um mótmælin sjálf..)

    Persónulegar breytingar ? Ég er alltaf í stöðugri sjálfsrýni.

    …ch-ch-ch-ch-changes, turn and face the strain…

    Það er liðin vika.

    Ég hef náð að afreka það að vakna kl. 5:30 alla virka morgna (nema föstudag, var með hálsbólgu) síðastliðinnar viku og mæta í ræktina kl. 6. Það hafði þær afleiðingar að ég var dauðþreytt þegar leið á daginn og var yfirleitt sofnuð um kl. 21 á kvöldin.

    Þetta er mjög gott og mér líður mjög vel. Ég borða betur, reglulegar og hollar. Ég sef ótrúlega vel og hef mun meiri orku yfir daginn.  Námið verður skipulagðara, lundin léttari og ég var að vona að bodyið yrði það líka, en sú er reyndar ekki raunin. Er bara að verða þyngri og þyngri.. Massaðri ?

    Rútínan er semsagt komin á fullt og frítíminn er af skornum skammti.

    Aðeins út í annað.. 
    … erum að leita okkur að annarri íbúð með öðru auganu. Markaðurinn hefur hrunið svo gríðarlega að maður á kost á mun ódýrari íbúð og betur staðsettri. Getum þó fengið að lækka leiguna á þessari íbúð sem við erum í núna, með nýjum árssamningi, en þessi staðsetning verður enn óhentugri í haust þegar HR flyst yfir í Öskjuhlíðina. Svo við erum svona að velta fyrir okkur möguleikunum.

    Þetta er  svona það helsta af daglega lífinu. Rútínan.

    Skólinn byrjaði í dag með línulegri algebru kl. 8.15. Dagurinn byrjaði þó fyrr því ég hjólaði í ræktina kl. 06 og tók á því.

    Eftir tíma ætlaði ég niður í Eymundson að kaupa eina stílabók, því það er nánast það eina sem mig vantar fyrir skólann. Ein rúðustrikuð harðspjalda stílabók einsog ég hef notað undanfarin ár til að glósa stærðfræðina.

    ,,Það  gera 2.399 krónur”.

    Man reyndar ekki nákvæmlega hvort það var 2.399 eða 2.299 en það var á þessu bili. En skemmst er frá því að segja að ég keypti ekki bókina ! Ég neita að taka þátt í þessu rugli !

    Ég held ég glósi bara í vetur á hvít ljósritunarblöð og set í möppu.

    Annars keypti ég áðan (eða ég fékk í jólagjöf frá mömmu og pabba) reiknivél uppá 24.990 kr. Þvílík græja, ég þori varla að byrja að pota í hana..

    Lítil stúlka. Lítil stúlka.
    Lítil svarteyg dökkhærð stúlka
    liggur skotin.
    Dimmrautt blóð í hrokknu hári.
    Höfuðkúpan brotin.

    Mín synd er stór. Ó, systir mín.
    Svarið get ég, feilskot var það.
    Eins og hnífur hjartað skar það,
    hjarta mitt, ó, systir mín,
    fyrirgefðu, fyrirgefðu,
    anginn litli, anginn minn.

    Ég ætlaði að skjóta hann pabba þinn.
                           -Kristján frá Djúpalæk

    Við kynntumst frábærum strák úti í S-Ameríku. Hann var frá Ísrael og var fyrrum flokksforingi landgönguliða í Ísraelsher. Hann lýsti því fyrir okkur hversu mikið hann hataði Palestínumenn, hvernig þeir gengu með birgðir og vopn í 2 vikur til að kanna aðstæður áður en ráðist var til atlögu og fullyrti að ef hann sæi Palestínumann bregða fyrir, hvar sem væri, myndi hann ekki hika við að skjóta hann.

    Þessi strákur er tveimur árum eldri en við, hress, skemmtilegur og hvers manns hugljúfi -myndi ekki gera flugu mein, aðeins Palestínumönnum. Hatrið sem er augljóslega alið upp í ungum Ísraelum er mikið. Við áttum erfitt með að skilja þetta, erfitt með að skilja hvernig þessi góði strákur gæti talað svona blygðunarlaust um þessa ,,slæmu” þjóð.

    Við erum enn í sambandi við þennan strák. Það var gott að heyra að hann væri óhulltur við nám í Þýskalandi. Hann minntist þó á  það, um leið og hann sagðist vona að stríðinu lyki sem fyrst, að hann myndi vilja vera í fremstu víglínu til að hjálpa. Þetta hefði nú einu sinni verið vinnan hans..

    Mér datt ekki í hug að ég þyrfti aðeins 2 daga af hreyfingu og hollu mataræði til að verða hamingjusamari en ég var. Vá hvað ég hlakka til eftir 3 mánuði, þá verður sjálfstraustið og hamingjan kannski rokin upp úr öllu valdi.

    Samt er ég bara ein í Reykjavík. Og held mig enn mest innandyra. Er þó furðu ó-einmana. Finnst gott að fá tíma með sjálfri mér, dunda og skipuleggja, hlusta á tónlist og spökulera.
    En það verður samt gott að fá Jón minn á föstudaginn, fara aftur út á meðal fólks (sýnist útlitið vera bjartara) og hefja rútínu á mánudaginn.

    …eða á maður ekki að hafa sýnilegt markmið ?

    Það er alveg að fara að byrja. Nýjar árið það er að segja. Það hefst ekki fyrr en ég ákveð það, maður verður að hafa tímamót. Annars rennur allt saman í eitt. Ég er enn á Selfossi en er að fara að suður í höfuðborgina. Er að undirbúa mig andlega fyrir það, því þegar ég verð komin suður hefst nýja árið formlega með öllu því sem ég ætla mér að gera.
    Þangað til lifi ég í tómi og tek engan þátt í trylltum dansi.

    Hef reyndar lítið teki þátt í trylltum dansi undanfarnar vikur. Hef verið lítið útávið vegna sýkingarinnar sem er farin að dreifa sér um allan líkamann, þó hún haldi sig mest á brjóstasvæðinu. Mér finnst þetta pínu neyðarlegt, ljótt og skítugt. Ég held að neyðin hafi náð hápunkti sínum áðan þegar ég vildi verða eins lítil og mögulegt er. Ég fór nefnilega til læknis. Og ég leyfi mér að efast um að nokkurn tímann hafi jafn sætur læknir séð jafn ljótan barm. Og hann starði og starði og vissi ekkert hvað hann átti að gera eða segja. Neyðarlegt !
    (Þetta hefði verið óskastund ef brjóstin hefðu verið þrýstin og falleg í sexy push-up, kannski bara næst ?)
    Ég er semsagt komin á lyfjaskammt nr. 3. Og ég sem hef aldrei tekið inn lyf áður. Þetta er rosalegt.

    Svo er eitt í viðbót sem ég þarf að ákveða áður en nýja árið byrjar. Það nefnilega vildi svo leiðinlega til að fyrirtækjaheimsóknir í rekstrarverkfræði og þjálfunin í Heilsuakademíunni skarast. Alla fimmtudaga. Er að gera upp við mig hvort ég eigi að skrópa alltaf í 2 tíma í skólanum (þetta eru pretty mikilvægir tímar) eða hætta að vinna, fá engan pening og geta ekki lengur æft þar frítt. Plús það að mér finnst gaman að þjálfa.
    Pínu erfitt val. Ef þið hafið skoðanir þá endilega látið þær í ljós. Ég er í bobba. Er samt eiginlega komin á það að skrópa bara þessa tíma og vera duglega að lesa og vera í samabandi við kennarann og fá glósur eða annað frá öðrum nemendum. Ég vil helst ekki sleppa því að þjálfa.
    Stærðfræðikennslan skarast reyndar líka, en ég geri ráð fyrir að það sé minna mál að redda því. Hægt að færa eflaust bara yfir á annan dag.

    Ég er þá nánast að verða búin að skipuleggja upphaf 2009.
      

     Vika 1: 
             -skipuleggja þjálfun, hvern einasta tíma fram á vor, svo það sé allt pottþétt. 
             -kaupa í matinn, baka og elda til að hafa tilbúið hollt og gott nesti þegar skólinn byrjar.
             -mæta daglega í ræktina skv. prógrammi. 
             -kaupa skólabækur og skipuleggja námsefni.
             -snúa sólarhringnum við.
             -losna við sýkinguna

    Næstu vikur (tímar á viku):
             Skóli:         45-50klst
             Ræktin:     6 klst
             Vinna:       3 klst
             Svefn:        56 klst
         ——————————-
            Samtals: 110-115 klst

    Sem segir mér að ég hef 53-58 fríklukkustundir á viku, sem gera heilar 7 klst á dag !
    Reyndar fara eflaust 3 klst á dag í snatt, svosem AÐ vakna, AÐ koma sér á milli staða, AÐ elda/borða, AÐ bíða o.s.frv. Þannig að ég hef um 4 klst á dag að meðaltali í að hafa það gott, hitta vini, kúra með kæró, fara í bíó/leikhús/djammið/út að borða…

    Líst vel á þetta !

    Næsta síða »