
Þessi fallegi strákur (eða er hann orðinn maður ?) á afmæli í dag.
Hann sefur enn á sínu græna. Afmæliskakan er í ofninum svo bráðum mun hann vakna við kökuilminn og morgunkoss.
Góð byrjun á góðum degi !
febrúar 27, 2009

Þessi fallegi strákur (eða er hann orðinn maður ?) á afmæli í dag.
Hann sefur enn á sínu græna. Afmæliskakan er í ofninum svo bráðum mun hann vakna við kökuilminn og morgunkoss.
Góð byrjun á góðum degi !
febrúar 24, 2009
Ég var að ljúka við að horfa á Davíð Oddson í Kastljósinu. Hann kom með hverja staðhæfinguna á eftir annarri og rökstuddi mál sitt vel -var m.a.s með fundargerðir þeim til staðfestingar. Hann gjörsamlega átti viðtalið og Sigmar þurfti fimlega að verjast því að falla í stokkinn og gapa með aðdáun yfir snilld foringjans. Mér fannst þó Sigmar standa sig ágætlega, miðað við aðstæður.
Ég þurfti líka að minna mig á gagnrýna hugsun. Þetta minnti á heilaþvott. Mig langaði bara að gleypa við þessu öllu. Það verður ekki tekið af manninum að hann er mikill leiðtogi. En það var Hitler líka.
Ég mundi annars eftir ,,sögu” um Hitler, síðan ég skrifaði ritgerð um hann í grunnskóla. Ætla að láta fylgja hér með brot úr textanum og dæmi svo hver fyrir sig.
Ein af uppáhalds áróðursaðferðum Hitlers var þessi: Ef þú ætlar að ljúga einhverju á annað borð, taktu þá nógu stórt upp í þig og hikaðu ekki við að endurtaka það.
Hugmyndin á bak við þessa aðferð var var sú að múgurinn léti fremur stjórnast af tilfinningum en vitsmunum.
Auk sérstæðs skilnings hans á stjórnmálum og mikilvægi aróðurs var Hitler afburða ræðumaður. Hann bjó yfir einstökum persónuleika sem hreif fólk hvort sem um var að ræða nánustu samstarfsmenn hans eða múginn sem hann talaði til.
Blanda Hitlers af kreddukendum staðhæfingum, endurtekningum, stingandi háði og skírskotun til tilfinninga gerði yfirleitt útslagið. Í lok tveggja klukkutíma ræðu hans var múgurinn farinn að fagna oft og mikið. Samt sem áður var hann ætíð ‘ískaldur’ og lét aldrei hrifninguna sem hann vakti ná tökum á sér. Hann bandaði frá sér fagnaðarlátunum hélt áfram rólega án þess að missa taktinn, byggði upp rök sín eins og píramída fyrir augum áheyrendanna á meðan rödd hans færðist frá pianissimo til fortissimo og allt upp í furioso. Að því leyti voru ræður hans ætíð úthugsaðar og aldrei ósjálfráðar. En það mikilvægasta var hæfileiki hans til að sannfæra áheyrendurna um að honum væri dauðans alvara. Svo að þegar galdramaðurinn leysti þá undan seið sínum streymdu þeir heim á leið, fordómar þeirra staðfestir, von þeirra endurnýjuð af manni sem kenndi sig við ótta þeirra og þrár og lofaði að uppfylla óskir þeirra á meistaralegan hátt.
febrúar 22, 2009
Helgin var góð að svo mörgu leyti. Við Jón Ágúst fórum í leikhús á föstudagskvöldið á Sannleikann með Pétri Jóhanni, árshátíð Heilsuakademíunnar sem haldin var á Sólon á laugardagskvöldið, tókum á því í ræktinni, borðuðum mikið af góðum mat, fengum bróa í skemmtilega næturheimsókn, kíktum í kræsingakaffi til Imma og Guðrúnar Margrétar og síðast en ekki síst fékk ég fallegan blómvönd og mikið knús og kram í dag, konudaginn.
Lærdómurinn sat aðeins á hakanum, en náði þó að skrifa eina 5 bls skýrslu, byrja á annarri og klára skiladæmin í stærðfræði. Mataræðinu var einnig ýtt til hliðar, því miður (og þó ekki, ég naut matarins) og nú titra ég öll þar sem ég er ekki vön öllum þessum sykri og hvítu hveiti.
Komandi vika verður því að vera vika dugnaðar þar sem ég þarf að vinna mig upp og skipulegga í flest öllum fögum. Plan morgundagsins er að vera í skólanum frá 8-17 eftir að hafa tekið vel á því í ræktinni kl. 6. Fara svo snemma að sofa.
Það er semsagt gott að frétta af okkur í Vættaborgunum, þrátt fyrir lítil skrif hingað inn undanfarið.
febrúar 17, 2009
2006 2007 2008
…engin 2009 mynd til og aðeins ein 2008 (og svona líka alvarleg).
Við munum eyða deginum saman yfir heimadæmum og öðrum skólaverkefnum. En rómó.
febrúar 12, 2009
Brói minnti mig á þetta ljóð í gærkvöldi. Var nánast búin að gleyma, en hann mundi eftir þessi síðan ég las þetta fyrir hann og útskýrði fyrir mörgum árum. Hann sagði að þetta hefði setið í honum þá og geri enn. Ég táraðist aftur þegar ég las þetta í gær.
Þetta er svo sorglegt, sérstaklega af því þetta er svo satt.
I felt proud of myself,
The way you said I would,
that I didn’t drink and
drive,
though some friends said I should.
I made a healthy choice,
And your advice to me was right.
The party finally ended,
and the kids drove out of sight.
I got into my car,
Sure to get home in one piece.
I never knew what was coming, Mom,
something I expected least.
Now I’m lying on the pavement,
And I hear the policeman say,
the kid that caused this wreck was drunk,
Mom, his voice seems far away.
My own blood’s all around me,
As I try hard not to cry.
I can hear the paramedic say,
this girl is going to die.
I’m sure the guy had no idea,
While he was flying high.
Because he chose to drink and drive,
now I would have to die.
So why do people do it, Mom
Knowing that it ruins lives?
And now the pain is cutting me,
like a hundred stabbing knives.
Tell sister not to be afraid, Mom
Tell daddy to be brave.
And when I go to heaven,
put ” Mommy’s Girl” on my
grave.
Someone should have taught him,
That it’s wrong to drink and drive.
Maybe if his parents had,
I’d still be alive.
My breath is getting shorter, Mom I’m getting really scared
These are my final moments,
and I’m so unprepared.
I wish that you could hold me Mom,
As I lie here and die.
I wish that I could say, ” I love you, Mom!”
So I love you and good-bye.
febrúar 11, 2009
Vorum að skoða íbúð. Héldum að við myndum ganga út alveg viss um hvað við vildum, en erum það eiginlega ekki. Þetta er íbúðin:
Mjög falleg 88 fm íbúð á annari hæð með sérinngangi til leigu. Ársgömul. Mahogny hurðar, kirsuberja innréttingar. 2 stór svefnherbergi með fataskápum. Forstofa með fataskáp. Gegnheilt Brazil Zebraviðs parket, stórar gráar flísar í eldhúsi. Bað með sturtuklefa, nuddpotti, gufubaði, sturtu, ljósum og útvarpi. Þvottaherbergi inn í íbúðinni. Bílskýli.
Leiguverðið er 100.000 kr, rafmagn þó ekki innifalið.
Því miður er engin uppþvottavél í íbúðinni (þó pláss fyrir hana), en við uppþvottavélin erum bestu vinir og ég get ekki hugsað mér að búa án hennar.
Annars lítur þetta vel út. Okkur finnst þó 100.000 kr. vera í það mesta en 95.000 kr. í lagi. Vitum ekki hvort við eigum að hrökkva eða stökkva..
Okkur vantar semsagt álit…
febrúar 10, 2009
,,Sigfús Sigurðsson var sagt að hann ætti 5 prósenta líkur á að geta skokkað aftur”.
Þetta stendur á forsíðu örþunns Fréttablaðsins í dag. Held að fréttamennirnir þar ættu að hanga aðeins minna á Facebook, því í íslensku eru mannanöfn fallbeygð !
(fyrir utan hvað þetta er ljót setning)
febrúar 9, 2009
Vika sex. SEX ! Og enn hefur ekki fokið eitt einasta gramm ! Nú fer maður að fara í róttækar aðgerðir..
Ég er ekki enn búin að fá að vita með virkni skjaldkirtilsins en veit þó ýmislegt um útlit hans. Hann er stór, grófur og bólginn. Er það vísbending ?
Ég fór líka til náttúrulæknis í dag. Já, þið lásuð rétt: Náttúrulæknis. Ég veit að margir hafa lítið álit á þeim fræðum og telja þetta ekki vera viðurkennda læknisfræði og sjá fyrir sér seyðkerlingar með blómadropa. En svo er auðvitað ekki raunin og náttúrulækningar eru í raun aðeins náttúrulegar leiðbeiningar til að halda líkamanum og starfsemi hans í jafnvægi til að koma í veg fyrir ýmsa kvilla. Ég hef mjög mikla trú á mataræðinu, einsog þið vitið sem þekkjið mig, og tel að ,,þú ert það sem þú borðar” sé hverju orði sannara.
Hins vegar veit ég ekki með aðferðina sem þessi kona, Matthildur, notar. Ég skil ekki TÆKIÐ. Að ég snerti tæki og það segir mér hvernig orkustöðvarnar mínar eru. Að MÍN TÍÐNI gefi skilaboð um hvaða mat ég má og má ekki borða, hvenær það henti mér best að æfa, hvort ég sé nógu vel hvíld og hvort ég sé í góðu jafnvægi. Þetta er bara ofar mínum skilningi -og mig virkilega langar að vita hvernig þetta fúnkerar.
Ég viðurkenni þó að það sem kom útúr þessu öllu saman er að mörgu leyti rétt. Ég fékk ekki að vita margt sem ég vissi ekki fyrir, eða taldi mig vita þ.e.a.s, þar sem ég þekki nokkuð vel inn á líkamann.
Ég er í mjög góðu jafnvægi og fínu formi. Hinsvegar er sýrustig líkamans of hátt vegna einhvers sem ég borða, líklega skyrs (mín daglega morgunmáltíð) ! Ég hef ekki nóg járnmagn í líkamanum, það hentar mér best að æfa á morgnanna milli kl. 6 og 9 og ég ætti einnig að sleppa vínberjunum úr mataræðinu (auk mygluosta, hvíts hveitis, smjörlíkis, kartaflna, jógúrts, pepparoni, svínakjöts, gers, soja, hvíts sykurs, djúpsteikingarfeitis og MSG… en þetta er allt sem ég borða ekki hvort eð er. Er m.a.s hætt að borða pepp á pizzu eftir að ég uppgötvaði sólþurrkaða tómata og hvítlauk !)
Það er því ekki mikið sem ég þarf að breyta, enda er ég mjög meðvituð hvað ég læt ofan í mig. Ætla þó að taka skyrið út eftir þessa viku og sjá hvort það breyti einhverju. Ætla að prufa að boozta mysuprótein í staðinn fyrir skyrið og vonast til að ég geti gert það bragðgott með ávöxtum.
febrúar 2, 2009
Í dag byrjaði ég nýtt æfingaprógram. Ég vona að ég fari að sjá árangur, það er orðið ansi þreytandi að komast ekki úr “offitu-flokknum”. Er að lyfta 3x og brenna 2-3x í viku. Mun kötta núna út allt brauð og auka prótínneysluna til muna.
Jón Ágúst keypti sér líka kort í ræktina í dag og ætlar að fara að mæta með mér. Mér líst mjög vel á það !
Ég fór líka í ómun á skjaldkirtlinum í dag. Ég fékk að vita að ég væri með “myndarlegan og grófan” skjaldkirtil, hvað sem það nú þýðir. Fer svo í blóðprufu í vikunni og fæ útúr þessu öllu á föstudaginn eftir viku, 13. febrúar. Loksins.
Fékk svo feedback á sumarvinnu í dag, mun verða áfram hjá Össuri. Er mjög svo þakklát fyrir að vera inni hjá stöðugu fyrirtæki í þessu efnahagsástandi. Það er víst ekkert sjálfgefið.
…ætla að búa snöggvast til kjúklingasalat til að taka með í skólann á morgun. Mér finnst svo gaman að elda hollt, sérstaklega þegar Jón er farinn að borða það líka.