mars 2009


Þá er liðin vika and I feel good. Mætti 8x í ræktina (ef með er talið útihlaupið á þriðjudagsnóttina) og mesta óhollustan var osturinn á grænmetis speltpizzunni sem ég borðaði á laugardagskvöldið. Ég bíð spennt eftir næstu æfingu, þó ég liggi nú uppí sófa undir teppi að “afslappa” fæturna sem eru algjörlega orkulausir.

Prófin fara svo að skella á, en fyrsta prófið verður á miðvikudaginn eftir viku. Svo koma þau eitt af öðru í kringum páskana. Geri því ráð fyrir að verja mestum hluta páskafrísins hér í höfuðborginni lærandi. Sem er ágætt -þá eru engin páskaegg að freista mín. Hef tekið þá ákvörðun að geyma páskaeggjaát þangað til eftir “mánuðinn” og taka þá einn nammidag og halda svo áfram.

Quote mánaðarins er eftirfarandi:
“The key to happiness is having dreams. The key to success is making your dreams come true.”

Lélegar afsakanir koma stundum í veg fyrir árangur. Viljinn þarf bara að vera einbeittur og ekki láta freistast, því það eru og munu alltaf verða freistingar á veginum. En freistingarnar uppfylla aðeins augnabliksnautn og fylla mann svo samviskubiti. Árangurinn er langtíma. Þangað ætla ég að komast..

Það eru 4 dagar síðan ég nennti ekki þessu rugli og ákvað að fara í form. Alvöru form og engar afsakanir. Keypti mér kort í World Class, en Turninn er hér 300 m frá og er búin að fara daglega – og hlakka til hverrar æfingar. Ætla að taka núna 1 mánuð 100%, þ.e. engir nammidagar og æfingar a.m.k. 6 x í viku. Verður eflaust erfitt (en skemmtilegt), en þar sem prófin koma inn í þetta þá hefur maður gott af að taka 2 tíma pásu til að hreinsa hugann frá lærdómnum.
Ingunn, vinkona mín í verkfræðinni, er að æfa með mér og það er mun skemmtilegra að æfa með góðum félaga. Hlakka til að sjá árangurinn, verðum orðnir þrusukroppar í sumar.

Þetta er það sem ég hef alltaf haldið fram; að koffín sé ekki svo ólíkt sígarettum -ávanabindandi og skaðlegt. Loksins eru komin gögn sem styðja það.

Getið lesið nánar um þetta hér.

Ég er í smá klemmu. Ég er orðin viðþolslaus af hreyfingarleysi sem búið er að standa yfir í ca. 2 vikur. Hef farið aðeins 1 x í tvöfaldan spinningtíma í síðustu 10 dögum og það er SLÆMT. Ég er svo mikil “allt eða ekkert” manneskja að mér finnst það varla taka því að fara út að skokka eða synda smá (einsog mér finnst það reyndar leiðinlegt), heldur vil ég gera þetta almennilega og taka á því í ræktinni. Þó ég viti að margt smátt geri stórt.

Málið er að eftir að við fluttum skýst ég ekkert í ræktina upp í Egilshöll. Að keyra í korter þangað og korter til baka til að taka 60 mín æfingu á morgnana er bara ekki að gera sig, því miður. Hef bara ekki tíma í það. Hentugast væri að kaupa sér kort í WC, Turninum en það er bara svo dýrt. Var að hugsa um að bíða fram á sumar til að fá niðurgreitt af vinnunni og stéttarfélaginu, en það er bara svo langt í það. Gæti maður kannski keypt árskort, geymt kvittunina og fengið það niðurgreitt í sumar ? Einhver sem veit hvernig það virkar ?
Ég bara VERÐ að fara að taka á því aftur.
—–

Annars var helgin góð með stelpunum mínum. Skvass, bahúsið, freyðivín og súkkulaðidipsuð jarðarber, pizza, veitingar að hætti Sunnu (og Sirrýar) og gott djamm. Feit og frábær helgi.

Eftir mjög annasama viku í skólanum, smá stúss vegna íbúðarinnar og lélegt mataræði vegna ísskápsleysis er gott að horfa fram á heila helgi. Helgi þar sem maður þarf ekki að skila neinu verkefni, ekki að mæta í neitt próf og fær að borða góðan mat beint úr sínum eigin ísskáp. Ég sé þó fram á að læra alveg helling -en það verður bara kósý fílingur hér heima í litla kotinu okkar sem er orðið svo huggó.

Við erum semsagt flutt og okkur líður mjög vel hér í Lindunum. Íbúðin er töluvert minni en sú sem við vorum í en vegur stærðina upp í kósýheitum. Við höfum allt sem við þurfum; 1 svefnherbergi, 1 baðherbergi, smá eldhúshorn, smá sjónvarpsrými, þvottahús og litla kytru til að læra í. Erum búin hengja upp á veggi í vikunni, settum upp rimlagardínur í dag (og ég skemmti mér við að þurrka af þeim) og svo fáum við ísskápinn okkar (langþráða) á eftir. 

Mun setja inn myndir þegar allt verður orðið einsog það á að vera. Verið velkomin í heimsókn í litla kotið okkar. Heimilisfangið er Ljósalind 2.

Ég er bara alveg að drukkna. Gat ekki klárað skiladæmin fyrir vikuna vegna flutninganna, plús ég gat ekki skilað því sem ég var búin með því ég finn það ekki. Er netlaus heima og var að sjá NÚNA að ég þarf að skila skýrslu fyrir miðnætti. Og ég er að fara að þjálfa 4 hópa í HA dag svo ég komist í fyrirtækjaheimsókn á fimmtudaginn. Hef því ekki mesta tímann í heiminum.

Ræktin situr því á hakanum. ,,Sem betur fer” gaf hnéð sig í flutningunum, svo ég get hvorki hlaupið né gert annað þar sem þunginn færist yfir á vinstra hnéð á e-rn hátt, þannig ég hef þó aðra afsökun en lélegt skipulag.

Við erum líka enn ísskápslaus og maturinn okkur er í þessum töluðu að snjóa í kaf úti á stétt.

Fokk fokk fokk. Ég þoli ekki þegar maður sér ekki framúr neinu svo vel sé gert.

To do listi…

  1. Klára/reyna að klára skiladæmin í stæ (fyrir kl. 10)
  2. Skóli (var að sjá að kennarinn er veikur)
  3. Þinglýsa húsaleigusamning
  4. Plokkun og litun
  5. Ná í stærðfræðikeppni upp í skóla
  6. Fá lánaða dýnu/vindsæng eða koma rúminu upp í Kópavog (vantar aðstoð við þetta, á e-r dýnu í Kóp eða sendibíl ?)
  7. Vaxa fætur (fá afnot af örbylgjuofni nágrannans)
  8. Finna okkur ísskáp (eða á morgun)
  9. Finna hvar hagstæðast er að fá leigðan/lánaðan sendibíl (vitið þið ?)
  10. Kenna stærðfræði
  11. Taka í sundur húsgögn og þvo/brjóta saman þvott
  12. Hafa mig til fyrir árshátíð (rauður, silfraður, gylltur, grænn, bage eða svartur kjóll ?) (muna að kaupa maskara)
  13. Mæta í fyrirpartý kl. 18
  14. Árshátíð kl. 20.

…og svo er að vakna í fyrramálið og hefja flutninga. Ferskleikinn uppmálaður.

Jíbbí jei.

Þá höfum við skrifað undir og fengið lyklana að nýrri íbúð og þá er bara að byrja að flytja smátt og smátt. Stóri flutningadagurinn verður á laugardaginn og við þiggjum alla góða aðstoð, þar sem húsgögnin okkar eru ekki alveg þau léttustu. En hver elskar ekki smá auka líkamsrækt ? Kannski við sláum bara tvær flugur í einu höggi í öllu þessu tilstandi og þrífum sameigninga í leiðinni, en við erum svo heppin að eiga þrifin fyrstu vikuna eftir að við flytjum inn.
Leigusalarnir okkar eru frábærir og vilja allt fyrir okkur gera. Þau eru svona ekta “amma og afi”, góðleg og hlý.

Þar sem við erum að færa okkur í minni íbúð þá kemst ekki allt dótið okkar fyrir (believe it or not, við eigum orðið OF MIKIÐ dót) og ætlum að reyna að selja a.m.k eldhúsborðið okkar. Einnig ef einhver á góðan horn/tungusófa og vill skipta á góðu leðursófasetti, þá myndi það henta okkur vel svo plássið nýtist betur.

Þetta er það helsta. Það er spenningur í mér og ég hef ekki verið dugleg að mæta i ræktina í vikunni, þótt það haldist ekkert endilega í hendur. Og þó. Ég vil bara vera að pakka niður og skipuleggja og endurraða í huganum.

En hér er borðið sem er til sölu:
eldhusborc3b0

Og hér sést aðeins í leðursófann góða úr GP-húsgögnum. Alveg einstaklega góður og gott að sofa í honum. Synd að láta hann fara.
(þarna sjáið þið líka hluta af massívu húsgögnunum sem þarf að bera..)
ibud-11

Þessi helgi var helguð lærdómi. Að mestu. 1 skýrsla í rekstrarverkfræði, 1 skiladæmi í stærðfræði, 1 skiladæmi í eðlisfræði og 1 skiladæmi í línuegri algebru. Einnig hefði verið gott að klára 1 eðlisfræðiskýrslu og aðra rekstrarverkfræðiskýrslu, en það verður bara aðeins sett á hold. Er ekki alveg með einbeitinguna í lagi. Það verður þó að fara að lagast því fyrsta lokaprófið er eftir akkúrat mánuð. Úff, hvað tíminn flýgur.

Einnig erum við búin að vera að pakka niður í kassa. Ef allt gengur upp munum við flytja í Kópavog um næstu helgi. Litla og kósý íbúð þar sem allt er í göngufæri, s.s búð og ræktina. Erum einnig ekki nema 7 mín að keyra í skólann. Fengum gefins uppþvottavél um helgina (getum ekki án þeirrar maskínu verið) en vantar enn ísskáp.
Allir þeir sem hafa áhuga á að hjálpa okkur að flytja næsta laugardag eru hetjur. Margar hendur vinna létt verk ! Svo getum við slegið upp eldsmiðjupizzupartý um kvöldið í nýju íbúðinni fyrir hrausta fólkið..

…auk þess staðfestist það enn og aftur að ég er lélegasti djammarinn. Af hverju er ekki djammað milli kl. 18 og 23 á kvöldin á Íslandi ?

reikningur-002

…og ég er m.a.s á 10 cm hælum.

Næsta síða »