Alveg var þetta dásamlega kærkomin helgi. Loksins kláruðust prófin og námskeiðið Nýsköpun og stofnun fyrirtækja hefst ekki fyrr en ég morgun svo ég gat gert nákvæmlega það sem mig langaði til. Ekkert íþyngjandi. Ákvað þó að nýta helgina vel á uppbyggjandi hátt auk þess sem ég ákvað að hafa hana “frjálsa” matar- og æfingalega séð eftir góðan mánuð. Æfði semsagt hvorki á föstudag né í dag (fór reyndar og sló nokkra bolta í Básum og fór í sund í hressingarskyni) og borðaði páskaegg, ís, grillmat og speltpizzu.
Ég er semsagt endurnærð og tilbúin að takast á við krefjandi komandi mánuð. Nýr mánuður, nýtt prógram. Er búin að búa til prógram fyrir næstu 3 vikur á meðan námskeiðið stendur yfir þar sem ég ætla að æfa 9-10x á viku. Ætla að taka brennslu 3 morgna, lyfta 4x, hlaup 1x, spinning 1x og svo verður frjáls útivist á sunnudögum. Til að þetta gangi allt upp, þar sem ég verð í skólanum frá 9-17, þá þarf mataræðið og svefn að vera tipp topp. Það þarfnast skipulags en mun ganga upp. T.d. er ég búin að grilla mér kjúklingabringu, sjóða hrísgrjón og setja í box sem nesti í hádeginu á morgun. Auk þess sem ávextirnir og vatnsflaskan eru á sínum stað.
…ætlaði að skrifa mun meira, sérstaklega um hugarfar og fleira en það verður að bíða betri tíma. Ætla að fara að sofa til að vakna hress í fyrramálið í góða brennslu.
Vona að þið munið eiga góða viku !
Posted by kristingrims under
Pælingar,
Samfélagið [4] Comments
Fram fram fylking,
forðum okkur háska frá
því ræningjar oss vilja ráðast á.
Sýnum nú hug,
djörfung og dug.
Vakið, vakið vaskir menn
því voða ber að höndum.
Sá er okkar síðast fer
mun sveipast hörðum böndum.
Kjósum rétt í dag !
Í dag er fyrsti sumardagurinn og í dag er líka mánuður síðan ég ákvað að hætta að borða nammi og hreyfa mig markvisst. Það hefur gengið svona líka vel enda hef ég ekki snert nammi eða aðra óhollustu og hreyfði mig 30x á 31 degi. Síðasta prófið er á morgun og eftir það ætla ég að eiga nammidag -og taka svo annan nammilausan mánuð með enn meiri hreyfingu.
Reyndar verður næstu 3 vikur ansi stífar þar sem ég verð í kúrs í skólanum sem heitir Nýsköpun og stofnun fyrirtækja. Ég hlakka mikið til að taka hann og geri ráð fyrir að leggja mikla vinnu í gott verkefni. Vona bara að ég fái góðan hóp til að vinna með. Er viss um að þessar 3 vikur verði mjög krefjandi og skemmtilegar; fullar af skemmtilegri vinnu, vonandi góðum félagsskap, kraftmiklum æfingum og góðu og orkumiklu mataræði.
Undanfarinn mánuð og þá sérstaklega undanfarna daga hef ég verið að hugsa mikið um árangur, markmið og stefnu. Hvar stend ég, hvert vil ég komast og hvernig kemst ég þangað ? Ég hef lengi haft óljósar hugmyndir um að koma mér í form og gert það með hálfum hug og árangurinn hefur verið enginn. Mig hefur lengi langað til að vera virkari í félagslífi skólans auk þess að gera enn betur í náminu -en einhvernveginn hef ég ekki komið mér í það. Ég hef oft kennt utanaðkomandi ástæðum um, að það sé e-ð sem truflar þó ég viti ekki alveg hvað það er. Finnst ég alltaf verða að hafa e-ja ástæðu/afsökun fyrir að gera þessa hluti eða að einhver reki mig áfram.
Nú hef ég hinsvegar komist að breyttri niðurstöðu. Þetta er allt upp á sjálfa mig komið. Ef ég vil ná árangri þá verð ég einfadlega að hafa fyrir því að ná honum -og það MUN verða erfitt. Þó að vinur/vinkona/kærasti/fjölskylda hafi ekki sama áhuga á að ná þessum sama árangri eða hafi annað áhugasvið þá þýðir það ekki að ég geti ekki gert það sem mig langar til að gera. Þó að önnur manneskja velji að borða óhollt og nenna ekki að hreyfa sig þarf ég ekki að pirra mig á því, það er hvers manns val. Því þetta er allt í hausnum á manni.
The greatest obstacle in life is you !
Ef ég næ ekki þeim árangri sem ég vil ná þá er það ekki af því Kalli nennti ekki með í ræktina, af því Binna vildi fara á Pizza Hut eða af því Silli vildi frekar fara í bíó en að læra undir prófið. Það er einfalega af því Ég VALDI að gera þetta á þann hátt sem ég gerði.
Ég hef því ákveðið að velja mér þá leið sem ég vil, þ.e. daglega hreyfingu, hollt mataræði og taka þátt í öllu því sem ég hef áhuga á -burtséð frá því hvað aðrir ætla sér að gera.
Fyrir ári síðan skrifaði ég líka um val. Getið lesið það hér, ef þið hafið áhuga.
…og gleðilegt sumar !
(p.s það eru komnar inn nýjar “bumbumyndir”.)
Posted by kristingrims under
Pælingar Leave a Comment
Ekki á einhver þarna úti upptöku af leikritinu Þrek og Tár ? Hvort sem það er á VHS eða DVD. Eða jafnvel bara geisladiskinn með lögunum ?
Mig langar mjög að horfa á þetta aftur.
Þú átt gott þú þekkir ekki sárin,
þekkir ei né skilur hjartans mál.
Þrek er gull en gull eru líka tárin,
guðleg svölun hverri þreyttri sál.
Stundum þeim er þrekið brýnt og kraftur
þögul höfuð féllu tár um kinn.
En sama rósin sprettur aldrei aftur,
þótt önnur fegri skreyti veginn þinn.
Stærðfræðiprófinu er lokið og þar með eru bara 2 próf eftir; eðlisfræði og rekstrarverkfræði. Eðlisfræðin er mitt versta fag, einsog oft hefur komið fram áður, svo nú er að duga eða drepast og hella sér út í lærdóminn.
Annars er líkamsræktarstaðan þannig: 24 dagar og 25 æfingar. Sleppti æfingu á páskadag. Stóðst þó allar freistingar og líður vel með það. Semsagt engin páskaegg, enginn ís, ekkert nammi, engin sósa, ekkert gos (reyndar 1 rauðvínsglas og 1 hvítvínsglas yfir hátíðarnar), ekkert hvítt hveiti eða sykur. Reyndar datt ég í smá nostalgíu hér heima og hef verið að fá mér mysing. Auk þess sem ég gerði grænmetisspeltpizzu í gær með smá rjómaosti. Árangurinn útlistlega séð er þó ekkert gríðarlegur því þó ég sé að sleppa þessum “tómu hitaeiningum” þá er hitaeiningafjöldinn eflaust mikill, þar sem ég narta mikið í rúsínur og aprikósur yfir lærdómnum. En á meðan ég held út prófatörnina með blóðsykurinn í jafnvægi og næringuna góða, þá er ég sátt.
Bætti einnig tímann í 10 km hlaupi. 00.55.45. Og átti enn mikið inni. Þegar ég verð komin undir 00.50.00 þá ætla ég að bæta við 5 km í viðbót.
Dagskrá dagsins: Læra eðlisfræði (ná að reikna og glósa 3 kafla), skreppa suður og taka æfingu með Ingunni, þjálfa í Egilshöll og slappa af í pottinum í kvöld…
Mér var bent á þessa skemmtilegu frétt frá Selfossi. Á meðan ég hafði það gott og svaf á mínu græna hér í bænum leiddist sveitunga mínum og ákvað að kveikja í sér -bara svona að gamni. Þetta gerði hann fyrir utan Krónuna í Kjarnanum.
Ég benti bróa að lesa þessa frétt þegar hann skreið á fætur eftir hádegi. Hann las þessa frétt (og fannst hún fyndin) og las svo fyrir mig fyrirsagnir nokkurra frétta svona í leiðinni, þ.á.m. þessa, Krónan veikst með nýrri stjórn.
Þetta fannst honum ekki skrítið “enda kveikti maðurinn í sér fyrir utan Krónuna”.
—
Annars á hann pabbi minn afmæli í dag. Ungi maðurinn enn rétt rúmlega fertugur. Hann bauð okkur í tilefni dagsins að nýta okkur 7 kr. afmælisafslátt hjá Atlantsolíu.
Ég er heima hjá mömmu, pabba og bróa. Skil eiginlega ekki af hverju ég kom hingað ekki fyrr. Finnst ástæður einsog ,,ég fæ óhollari mat”, ,,ég fæ ekki nógu mikinn frið til að læra” eða ,,ég kemst ekki í ræktina” hljóma núna einsog arfaslakar afsakanir og vega engan veginn upp á móti því hvað er gott að vera hér.
Hér er páskaþema að hætti mömmu. Páskaliljur, litlir ungar og kanínur út um allt hús ásamt gulum kertum sem fá að loga hér á kvöldin og mynda kósý stemmningu. Páskalambið var borðað í gærkvöldi, einstaklega gott og ekki skemmdi fyrir hvað er skemmtilegt að borða með þessari fjölskyldu. Einsog venjulega grenjuðum við öll við matarborðið -úr hlátri. Fyndnu við.
Annars er ég bara búin að sitja hér og læra. Mamma hefur prjónað, pabbi horft á golf (og verið í golfi á púttvellinum hér inni í stofu) og brói hefur sofið á daginn og djammað á nóttunni. Svo heimilislegt ?
Ég verð líka að minnast á dýragarðinn okkar. Garðurinn okkar hefur svo mikið aðdráttarafl að hin ýmsu dýr hafa vanið hingað komu sína.. og alltaf eru það ný dýr. Í fyrrasumar voru það endur, í vetur voru það kanínur og núna er garðurinn orðinn aðsetur dúfna. Að ég minnist nú ekki á fastagesti einsog snjótittlinga, þresti, starra og annan álíka fiðurfénað. Að ógleymdum álfunum sem búa í steininum. Spurning um að fara að selja aðgang, ekki verri viðskiptahugmynd en hver önnur ?
…annars er ég farin að skrifa hér óvenju oft. Augljóslega prófatíð þar sem allt annað en að læra er kærkomið. Ætla einmitt að fara út núna að skokka 10 km og eyða meiri tíma í “ekki-lærdóm”.
Um leið og ég óska ykkur gleðilegra páska vil ég nota sömu aðferðafræði og Davíð Oddson notaði í ræðu sinni á landsfundi Sjálfstæðismanna, þ.e. að setja sig í smá trúarlegan páskafíling og samsama sig þeim atburðum sem taldir eru leiða til þess að við höldum páskana hátíðlega. Hann reyndar líkti sjálfum sér við Krist á krossinum og kom þannig inn á píslargönguna en ég vil fara aðra leið. Tel mig ekki það merkilega að ég geti líka verið Kristur.
Þessir páskar eru hálfgerð píslarganga fyrir mig, og líklega flesta nemendur HR, þar sem prófin falla svona skemmtilega inn á milli frídaganna. Maður reynir eftir bestu getu að halda sig inni með bókunum en hugurinn er yfirleitt annars staðar, s.s. úti í góða veðrinu, meðal fjölskyldu og vina eða í framtíðinni, þ.e. þeirri tíð þegar prófum er lokið. Stressið er að farið að gera vart við sig í mýflugumynd og mun að öllum líkindum stóraukast eftir því sem nær dregur prófi.
Þetta er því þrautarganga og ég vil tileinka hana hinum eina sanna páskaanda.
Þetta er nefnilega það eina páskalega við daginn. Þessi þrautarganga/píslarganga. Nenni ekki þessum hégóma með páskaegg, gula unga eða sætar kanínur.
Síðasta setningin er lygi. Mig langar nefnilega heim í páskaskreytt mömmu-og pabbahús og leita að páskaeggjum og lesa málshætti.
Hvort er páskalegra ?
18 dagar og 20 æfingar.
Föstudagurinn langi hefur aldeilis verið langur. Stærðfræðigreining er ekki alveg það skemmtilegasta sem maður getur hugsað sér svona á sólríkum degi- sem almennt á að vera frídagur í faðmi fjölskyldunnar.
Æfing dagsins var þó í þægilegri kantinum, en við Ingunn skelltum okkur í sund. Syntum og slökuðum svo á í pottunum og nældum okkur í smá tan.
En að öðru. Páskahelgin er gengin í garð og flestir hlakka eflaust til að fá sér páskaegg á sunnudaginn, borða góðan mat og hafa það náðugt. Það verður þó að passa sig að missa sig ekki í áti, eins auðvelt og það er, því þegar maður vill ná árangri skiptir mataræðið miklu máli -jafnvel meira máli en líkamsræktin sjálf. Sérstaklega þegar maður vill grennast. Get trúað að margir noti þá afsökun að þeir verði bara enn duglegri í ræktinni í næstu viku, en yfirleitt er það bara sagt til að friða samviskuna. Staðreyndin er sú að það getur tekið allt að viku að brenna einum slæmum degi.
Ég get tekið mig og mína fjölskyldu sem nærtækt dæmi. Hefðbundinn páskadagur stórfjölskyldunnar hefst með morgunverði, svo sameiginlegum djúsí hádegisverði, konfekti og kaffi, páskaeggjaát, tertur jafnvel með kaffinu og svo kvöldmatur og að sjálfsögðu eftirréttur. Við erum að tala um stanslaust át allan daginn af súkkulaði, sósum, rjóma og meira súkkulaði.
100 g af súkkulaði innihalda 526 hitaeiningar. Páskaegg nr. 6 frá Nóa-Sírus er 550 g, þ.e. 2630 kcal. Dagleg orkuþörf venjulegrar konu er um 1800 kcal (fer auðvitað allt eftir stærð, þyngd og hreyfingu). Við erum því að tala um að 1 páskaegg fullnægir orkuþörf dagsins og rúmlega 800 kcal betur. (Ég brenndi rétt rúmum 800 kcal í 90 mínútna rosalegum spinningtíma, svo þið hafið viðmiðun hvað þið eruð lengi að brenna þessu).
Þá eigum við eftir að taka inn allan annan mat, s.s. páskalambið, rjómasósuna, ísinn o.s.frv. Heildarorkuneyslan gæti því auðveldlega orðið yfir 4000 hitaeiningar. Það eru 2200 kcal meira en við þurfum sem mun setjast beint á rassinn og mjaðmirnar. Það er ekki hlaupið að því að brenna þeim. Til þess þarf t.d. ca. 6 klst ofur-spinningtíma eða 60 km hlaup eða…
Eyðileggjum því ekki áunninn árangur með einum slæmum degi “af því það er nú bara páskar einu sinni á ári”. Ég get lofað ykkur því að ykkur mun líða mun betur með því að stilla græðginni í hóf. Fá sér bara einu sinni á diskinn, fá sér lítið páskaegg og taka svo góðan göngutúr með fjölskyldunni eða skella sér í sund.
Sjálf ætla ég í annan 90 mín spinningtíma á morgun. Og ef veður og færð leyfa er ég að spá að hjóla austur á páskadag til að vera í faðmi fjölskyldunnar og njóta þess að borða páskalambið sósulaust (maður nýtur bragðsins mun betur) um kvöldið.