maí 2009


Alltaf er maður að læra eitthvað nýtt sem maður vissi ekki áður.
ASICS er skammst0fun á: Anima Sana In Corpore Sano sem þýðir heilbrigð sál í hraustum líkama.

Ég er semsagt að leita að góðum hlaupaskóm.

Þessi vika hefur verið hrikaleg mataræðis séð. Byrjaði að vinna og uppgötvaði aftur brauð með mysingi.. og missti mig aðeins ! Úps. Átt líka NOKKRA ísdaga. Meira úps ! Þannig að ég er búin að gera nýtt og mjög skemmtilegt prógram sem hefst frá og með mánudeginum og þá mun ég líka hefja aftur mataræðið sem ég var á um daginn -reglulegt clean mataræði án alls óþverra. Ég hlakka mikið til. Sumarið ER tíminn…

Jón Ágúst kemur heim á þriðjudaginn (vá hvað verður gott að fá hann heim) og er búinn að skrá sig í Boot Camp í sumar og byrjar strax á fimmtudaginn. Mér líst þvílíkt vel á það og er eflaust ekki minna spennt en hann. Sé fyrir mér þegar við munum koma sveitt heim saman, útkeyrð og hamingjusöm. Og gúffum svo í okkur hollan og góðan mat.

En fyrir þá sem hafa áhuga á að skoða prógram okkar Ingunnar fyrir næstu viku, þá er það hér að neðan. Auk æfinganna mun ég svo hjóla í og úr vinnu sem tekur um 15 mín hvora leið.

(meira…)

Haldiði að þetta hafi ekki bara verið að detta inn í pósthólfið mitt. Ég og Kata Júl. As close as sisters sko. (hér væri blikk-kall, ef ég notaði svoleiðis). 
Læt líka fylgja með mynd af meðlimum Sveitarinnar. Er ekki frá því að ég sakni þeirra. Mússímúss.
DSC_0114
Vala Hrönn, ég, Katrín Júl og Helga Bjarna.

DSC_0141
Anna Bryndís, Heiðdís, ég, Victor og Vala. Á myndina vantar Önnu Garðars.

Var að enda við að horfa á Katrínu Júlíusdóttur í nærmynd í Ísland í dag. Flott kona -sjálfstæð og samkvæm sjálfri sér. Væri til í að nálgast þær myndir sem teknar voru af okkur saman um þarsíðustu helgi, þegar hún var í sínu fyrsta opinbera verkefni sem iðnaðarráðherra. Hún m.a.s gaf mér koss á kinn. Og blóm.

…en annars, þá er ég byrjuð að vinna. Aumar hendurnar, þrútnar og skornar bera þess augljós merki. Mikil viðbrigði frá blaðsíðuflettingum og lyklaborðspikki. En kostirnir eru þó mun fleiri; þetta er aukin brennsla (labb og lyftingar allan daginn + hjólað í og úr vinnu), reglulegt mataræði úr öllum fæðuflokkum, money money, tækifæri til að læra og svo má ekki gleyma golfklúbbunum ! Fyrsta golfmótið er á miðvikudaginn eftir viku og ég mun mæta óæfð og kjánaleg. Vúhú.
En að öllu gríni slepptu (og einsog ég hef oft sagt) þá er ég mjög ánægð með að hafa góða sumarvinnu hjá góðu fyrirtæki. Og enn ánægðari með að ég get unnið eins mikla yfirvinnu og ég mögulega get , enginn niðurskurður í Össuri.

Ég er ekki enn farin að mæta í ræktina aftur. Það verður samt á morgun. (“Á morgun segir sá.. ?)  En ég hjóla þó í vinnuna (og skellti mér í sund í dag) sem er bót í máli. Ég er ekki nema korter héðan úr Lindunum upp á Grjótháls, pís of keik. Ég hvet ALLA til að hjóla í vinnuna í sumar, a.m.k 2-3x í viku. Þetta er hressandi, heilsusamlegt, umhverfisvænt, ódýrt og skemmtilegt !

Þá er sumarfríinu lokið.
Á þessari viku hef ég gert ýmislegt sem ég hef ekki gert í laaangan tíma.

Fríið byrjaði vel með stelpu-Eurovisionpartý sem endaði í stuðinu með Palla á Nasa.

Ég fór að sjálfsögðu norður í sveit í sauðburð. Ég hef aldrei áður verið actually þátttakandi í sauðburðinum, meira bara svona áhorfandi í hæfilegri fjarlægð. En ákvað að nú væri nóg komið af tepruskap og skellti mér í djúpu laugina og tók á mótu tæplega 30 lömbum. Fyrir afrekið hlaut ég að launum eitt lambanna sem ég tók á móti. Lítið, fallegt svart með hvíta bletti í andlitinu. Svo næsta áskorun er að mæta í réttir í haust (ég hef aldrei á ævinni gert það) og finna lambið mitt aftur..

Ég skrapp einnig austur á Selfoss þar sem ég tók því mjög rólega, fór á fótboltaleik og borðaði óhollt. Það var reyndar einkennandi fyrir þessa viku, en ég borðaði meira brauð, nammi og ís en ég hef gert samtals undanfarna 5 mánuði !

Fríið endaði svo á því að dekkið á bílnum okkar sprakk – og þar sem ég er ein heima (Jón Ágúst er enn fyrir norðan og verður a.m.k viku enn) og kann ekki að skipta um dekk mun ég neyðast til að nota hjólið þangað til mér berst aðstoð. Ég hef reyndar ekkert nema gott af því að hrista rassinn smá aukalega svo þetta er kærkomið.

Á morgun byrja ég að vinna. Ræs kl. 5:30, gúffað í sig hafragraut og svo hjólað af stað…
Á morgun mun ég einnig byrja í námskeiði í Stofnun fyrirtækja -bara að gamni. Þetta er jú svo skemmtilegt.
Á morgun byrjar einnig heilsusamlegi lífsstíllinn aftur og þá fara pistlarnir góðu að láta sjá sig aftur…

Þá er 3ja vikna kúrsinum í Nýsköpun og stofnun fyrirtækja lokið -og endaði heldur betur vel. Viðskiptahugmyndin okkar, Sveitin, var tilnefnd til Guðfinnuverðlaunanna. 3 hugmyndir af 60 voru tilnefndar, svo þetta er mikill heiður. Við í teyminu erum gífurlega ánægð með árangurinn eftir þessa törn sem einkenndist af gleði, metnaði og samheldni. Hópurinn samanstóð af mér, 2 stelpum úr verkfræðinni (Anna og Anna Bryndís), stelpu og strák úr viðskiptafræði (Victor og Heiðdís) og stelpur úr lögfræði (Vala). Það er eiginlega synd að þetta skuli vera búið.
Við höfum mikinn áhuga á að láta þesa hugmynd verða að veruleika þar sem við erum þess fullviss að þetta sé framtíðin; efling íslensks landbúnaðar og hreinar náttúrulegar vörur sem skapa sér sérstöðu.

En nú er ég komin í viku sumarfrí. Framundan eru góðir tímar; euro-partý, ræktin, sveitin, lestur, skemmtilegt fólk , tær upp í loft o.s.frv.
Ég mun svo byrja að vinna 25. maí. Hlakka til að hitta aftur allt góða fólkið í Össuri.  

…og já, gleymdi víst alltaf að minnast á það að ég verð í ritstjórn fyrsta skólablaðs HR sem kemur út næsta vor. Það verður enn eitt skemmtilega verkefnið sem ég fæ að taka þátt í.

Sveitin logo-hvitt, tightÞetta er alveg að verða búið, erum á síðustu metrunum. Kynnum á morgun kl. 13.00. Hefur gengið mjög vel þó stundum geti álag og þreyta brenglað taugakerfið. En það er víst alveg eðlilegt.

Hvet ykkur öll til að skrá ykkur í hópinn okkar á facebook undir nafninu Sveitin. Settum einnig upp heimasíðu, sem er þó reyndar ekki alveg fullkláruð. Vefhönnunin var í höndum Helga Þórs. Þið getið skoðað hana  hér. Logo-ið er hannað af Ara sem er grafískur hönnuður sem er einnig innan okkar tengslanets. Gott að hafa góð sambönd.

Væri gaman að fá feedback frá ykkur varðandi hugmyndina. Okkur veitir ekki af  hvatningu til að klára þetta með krafti !

Enn er bilað að gera í skólanum. Það er æðislega gaman og gengur vel. Ræktin gengur ekki alveg eins vel þessa dagana, því miður. En ég er tilbúin að fórna nokkrum æfingum fyrir góða hugmynd, viðskiptaáætlun og fyrirtæki.

Er einnig loks búin að fá útúr öllum prófunum og náði þeim öllum. ALDREI aftur eðlisfræði, þvílík hamingja !

Eruði til í að taka könnun fyrir mig ?

Þetta er markaðsrannsókn vegna verkefnavinnu okkar í námskeiðinu Nýsköpun og stofnun fyrirtækisins. Okkar mission er að auka aðgengi að ferskum matvörum beint frá býli og markaðsetja heimaunnar matvörur bænda með það að markmiði að styrkja stoðir landbúnaðarsamfélagsins.

Þetta er könnunin.

Vikan hefur verið ansi þéttskipuð og einstaklega skemmtileg. Nýja prógrammið tekur vel í og lætur manni líða gífurlega vel. Æfing nr. 9 verður tekin á eftir en sunnudagarnir eru semsagt skemmtileg útivist að eigin vali og ég ætla að hjóla út á Seltjarnarnes á ,,fund”. En það er ekki bara ræktin sem heldur mannin uppteknum heldur kúrsinn í skólanum, Nýsköpun og stofnun fyrirtækja.  Ég fékk æðislegan hóp að vinna með og við eigum að leggja fram viðskiptaáætlun í menningarklasa. Skil á viðskiptahugmynd var á föstudaginn og skil á áætluninni verður eftir 2 vikur. Þetta er án efa sá skemmtilegasti kúrs sem ég hef farið í og ég nýt mín í botn.

Annars fékk ég fast skot á mig í gær. Ég var að hjálpa litla bró að læra stærðfræði fyrir prófin hans þegar hann segir: “Hlakkaru ekki til að fara snemma að sofa, vakna hress í fyrramálið og taka góða æfingu eftir að hafa borðað hollan mat ?” Þeir sem ekki skilja kaldhæðnina í þessu (þótt hann vildi meina að hún væri ekki til staðar) þá er þetta ég í hnotskurn flesta daga og honum finnst þetta heldur betur boring life. Og það finnst eflaust mörgum. Djamm, drykkja og skyndibiti eru að margra mati samheiti yfir að skemmta sér og láta sér líða vel. Eigum við að fara út að skemmta okkur ? túlkast hjá flestum sem Eigum við ekki að detta í það og fara niður í bæ ?
Af einhverjum ástæðum hef ég aldrei fílað þessa íslensku drykkjumenningu. Fitta ekki inn. Vill frekar fara út að skemmta mér edrú í góðra vina hópi – og sleppa vitleysunni, þynnkunni og sveitta matnum. Eða hafa það gott heima með góða fólki. Live a little segja sumir og meina þá að maður eigi aðeins að sleppa af sér böndunum. En ég vil meina að þetta sé Live a lot, þegar maður getur skemmt sér á heilbrigðan hátt.  
Ég elskaði menningun í Brasil. Hittast á strandbörunum, fá sér kokteil og spjalla fram á rauða eða hittast með kassagítar, kveikja varðeld, spila og syngja. Þetta er því miður ekki lenska hér (enda engir strandbarir og óleyfilegt að kveikja varðeld).

Veit ekki alveg hvort þetta sé afsökun fyrir að nenna ekki að detta í það. Er bara búin að vera að pæla í þessu, þ.e. hvað veldur því að ég vel frekar að borða hollt, hreyfa mig og leggja metnað í það sem ég geri ? Fullkomnunarárátta, stífni, þrjóska ? Markmið kannski sem maður stefnir á að ná ?

Væri gaman að heyra komment frá ykkur sem lesið (sem er ört stækkandi hópur, 100-200 manns á dag) ástæður fyrir því að þið skemmtið ykkur einsog þið gerið. Bæði frá þeim sem djamma og djúsa hverja helgi og þeim sem gera það sjaldnar. Munur á því að vera á föstu eða single ? Í íþróttum eða ekki ? Hverju er verið að sækjast eftir með skemmtuninni ?