Var að enda við að horfa á Katrínu Júlíusdóttur í nærmynd í Ísland í dag. Flott kona -sjálfstæð og samkvæm sjálfri sér. Væri til í að nálgast þær myndir sem teknar voru af okkur saman um þarsíðustu helgi, þegar hún var í sínu fyrsta opinbera verkefni sem iðnaðarráðherra. Hún m.a.s gaf mér koss á kinn. Og blóm.
…en annars, þá er ég byrjuð að vinna. Aumar hendurnar, þrútnar og skornar bera þess augljós merki. Mikil viðbrigði frá blaðsíðuflettingum og lyklaborðspikki. En kostirnir eru þó mun fleiri; þetta er aukin brennsla (labb og lyftingar allan daginn + hjólað í og úr vinnu), reglulegt mataræði úr öllum fæðuflokkum, money money, tækifæri til að læra og svo má ekki gleyma golfklúbbunum ! Fyrsta golfmótið er á miðvikudaginn eftir viku og ég mun mæta óæfð og kjánaleg. Vúhú.
En að öllu gríni slepptu (og einsog ég hef oft sagt) þá er ég mjög ánægð með að hafa góða sumarvinnu hjá góðu fyrirtæki. Og enn ánægðari með að ég get unnið eins mikla yfirvinnu og ég mögulega get , enginn niðurskurður í Össuri.
Ég er ekki enn farin að mæta í ræktina aftur. Það verður samt á morgun. (“Á morgun segir sá.. ?) En ég hjóla þó í vinnuna (og skellti mér í sund í dag) sem er bót í máli. Ég er ekki nema korter héðan úr Lindunum upp á Grjótháls, pís of keik. Ég hvet ALLA til að hjóla í vinnuna í sumar, a.m.k 2-3x í viku. Þetta er hressandi, heilsusamlegt, umhverfisvænt, ódýrt og skemmtilegt !
maí 27, 2009 at 12:58 pm
Ég keypti mér einmitt hjól í fyrrasumar og hef notað það í allan vetur! Ég veit ekki hvað ég hef sparað mér miklar bensínkrónur við þetta
Með betri kaupum sem ég hef gert!