


Ótrúlegt að liðin séu 2 ár !
Til hamingu með daginn allir MA-stúdentar !
Og svosem allir aðrir Íslendingar líka -þetta er víst þjóðhátíðardagur okkar allra.
júní 17, 2009



Ótrúlegt að liðin séu 2 ár !
Til hamingu með daginn allir MA-stúdentar !
Og svosem allir aðrir Íslendingar líka -þetta er víst þjóðhátíðardagur okkar allra.
júní 15, 2009
Þá er farin að koma mynd á þessa 10 vikna áskorun. Breytti úr 12 vikum í 10 þar sem það hentar betur og er þá síðasta mælingin í lok ágúst. Við erum nú þegar orðnar um 6 sem ætlum að vera með og viljum endilega fá fleiri með okkur. The more – the merrier.
Fyrsta mæling verður á mánudaginn eftir viku (staðsetning verður birt innan skamms). Síðan á 2ja vikna fresti fram að hausti. Dagsetningarnar eru því:
22. júní
6. júlí
20. júlí
3. ágúst
17. ágúst
31. ágúst
Hugmyndin er semsagt sú að við æfum allar einsog okkur hentar best og hittumst svo á 2ja vikna fresti þar sem ég mun sjá um mælingar og halda utan um allt saman. Getum tekið fyrir-eftir myndir mánaðarlega ef áhugi er fyrir hendi. Lykillinn er þó að hafa gaman í góðum félagsskap, ná markmiðum okkar og njóta sumarsins í botn.
Einsog fram kemur í færslunni á undan er hægt að skrá sig í hóp 1 og mæta frítt í mælingar eða hóp 2 þar sem ég bý til æfingaprógram og/eða fer yfir matardagbók gegn mjög vægu gjaldi. (Þótt þetta heita hópur 1 og hópur 2 þá verðum við allar saman, þetta er ekki tvískipt.)
Þið sem ætlið að vera með (allar -líka þær sem hafa þegar skráð sig), endilega fyllið eftirfarandi spurningalista út og sendið mér á kristingrims@gmail.com.
Vil líka leggja áherslu á að það mega allir vera með, þið þurfið ekki að þekkja mig til að geta tekið þátt. Það er alltaf gaman að kynnast nýju fólki og hjálpast að við að lifa heilbrigðum lífsstíl. Og þið megið vera í allskonar formi -feitar, mjóar, stórar og litlar. Þetta snýst bara um að bæta sjálfan sig og ná sínum persónulegu markmiðum.
Hlakka til að heyra frá ykkur og láta þetta verða að veruleika. Þetta er alvöru, við verðum orðnar þrusukroppar í haust !
júní 11, 2009
Hausinn fór á flug á meðan ég maraði í hálfu kafi í baði.
Er búin að fá marga pósta frá ólíklegasta fólki sem fylgist með hér á síðunni og þá sérstaklega þegar ég skrifa “heiluspistlana”. Mér finnst virkilega gaman hvað margir hafa áhuga á heilsusamlegum lífsstíl og eru að vinna í þeim málum. En er ekki svolítið leiðinlegt að gera þetta hver í sínu horni ? Þetta er nefnilega oft erfiðara yfir sumartímann -einmitt þegar það ætti að vera skemmtilegast. Veðrið er svo gott að maður getur hámarkað útivistina.
Var að láta mér detta í hug að sameina þá sem hafa áhuga í 12 vikna átakshóp. Áskorun á okkur sjálf að ná ákveðnum markmiðum innan þess tímaramma. Hver æfir á sínum stað eftir hentugleika en svo hittumst við aðra hverja viku og höfum ástandsmælingu (vigtun, ummál, fituprósenta). Þetta myndi þá ganga þannig fyrir sig:
1. Þeir sem vilja gera allt sjálfir
Þú sendir mér póst og skráir þig. Ég sendi þér til baka spurningalista um þitt heilsufar og markmið.
Þá mætiru í upphafi í mælingu og svo aðra hverja viku, ásamt öllum hópnum og förum svo t.d. öll saman í sund, útihlaup, fjallgöngu eða annað.
Kostar ekkert.
2. Þeir sem vilja aðstoð
Þú sendir mér póst og skráir þig. Ég sendi þér til baka spurningalista um þitt heilsufar og markmið, sem þú svo skilar mér til baka.
Ég bý til prógram sem hentar þér og þínum markmiðum gegn vægu gjaldi (ca. 3000 kr. p/mánuð) og get einnig farið vikulega yfir matardagbók (5000 kr fyrir bæði).
Þá mætiru í upphafi í mælingu og svo aðra hverja viku, ásamt öllum hópnum og förum t.d. öll saman í sund, útihlaup, fjallgöngu eða annað.
Kostar 3-5000 kr. p/mánuð.
Þetta hentar öllum stelpum sem vilja ná árangri í sumar hvar sem þær eru staddar á landinu. Svona hópur stuðlar að aðhaldi og markvissum æfingum. Þetta hentar líka öllum þeim sem vilja ná árangri en tíma ekki/hafa ekki efni á einkaþjálfara.
Mér finnst einstaklega skemmtilegt að geta aðstoða aðra við að ná árangri og vil því ekki vera að taka fyrir þetta nema rétt minimum til að covera vinnuna, ef margir hafa áhuga á að taka þátt.
Ekki má svo gleyma hvað þetta verður ÓTRÚLEGA SKEMMTILEGT !
Sumarið ER tíminn ! Látum þetta verða skemmtileg, heilbrigt og líflegt sumar !
Einnig gæti verið möguleiki, til að auka hvatninguna, að leggja undir t.d. 5000 kr. Það myndi þá ganga þannig fyrir sig að þegar þú skráir þig þá legguru inn 5000 kr. og ef þú nærð markmiðum þínum (verða að vera háleit en raunhæf) þá færðu peninginn til baka -annars ekki !
Hvað segiði, er þetta e-ð sem ykkur líst á ? Ef þið hafið áhuga eða spurningar getið þið komið þeim til skila í gegnum komment eða á kristingrims@gmail.com.
Hlakka til að heyra frá ykkur !
júní 11, 2009
Ég er mikil öfgamanneskja í öllu sem ég geri. Það er annaðhvort of eða van -ég rata sjaldan hinn gullna meðalveg. Ég er skapstór en jafnframt fljót niður. Ég er ofurskipulögð en á sama tíma ótrúlega viðutan. Ég er ofurglöð eða einfaldlega alveg miður mín. Og allt getur þetta gerst á innan við 5 mínútum. Alveg óútreiknanlegt.
Þetta á einnig við í mataræðinu og heilsusamlega lífsstílnum. Annað hvort borða ég 100% og hreyfi mig alla daga vikunnar og finnst ostsneið vera það allra óhollasta EÐA ég hreyfi mig alls ekki, borða óreglulega og mjög óhollt, t.d. ís í öll mál. Ég borða reyndar ALLTAF mikið -hvort sem það er hollt eða óhollt. Það er kannski minn helsti galli og ástæðan fyrir að ég verð aldrei grönn. Ég kann mér ekki hóf.
Það að hreyfa sig temmilega reglulega, borða tiltölulega hollt og hafa nammidag einu sinni í viku til að halda öllu í skefjum virkar einfaldlega ekki fyrir mig. Það er annaðhvort allt eða ekkert !
Síðustu 3 vikur hafa verið slæmir öfgar. Ís, brauð og nammi hefur verið í fyrirrúmi á meðan ég hef aðeins tekið 2-3 góðar æfingar á viku. Og það hefur skilað sér til líkamans. Skammarlegt, maður nær af sér skvabbinu og safnar því svo aftur til að missa það enn einu sinni..
En núna er ég byrjuð á góðu öfgunum sem vonandi haldast út sumarið. Höfum haft 3 kraftmiklar high intensity æfingar síðustu 3 daga (sem sjá má í færslu hér á undan) og mataræðið hefur verið reglulegt og gott. Enda líður mér dásamlega. Þessu verður haldið áfram og vonandi get ég innan tíðar farið að nota flotta sundbolsbikiníið sem ég keypti mér í gær..
…og svona fyrst myndavélin er loksins orðin virk, þá er hún að sjálfsögðu ofvirk enda öfgarnir hér ekkert minni en í öðru. Þetta var kvöldmaturinn í kvöld.

Heimagerð heilhveitipíta með fersku íslensku grænmeti og prótein í mjólk með hindberjum.
júní 10, 2009

Hreint skyr með rúsínum og eplum. I’m loving it !
júní 6, 2009
Við Jón Ágúst gengum upp á Esjuna í dag í góða veðrinu. Það var einstaklega hressandi og skemmtilegt. Tókum nokkrar myndir -þær fyrstu síðan í lok 2007, þar sem myndavélin hefur verið “biluð” síðan þá. Ég keypti batterý í vikunni og lagaði hana.


júní 5, 2009
Var búin að lofa að setja hér inn uppskriftina að hafrakökunum sem ég geri (uppskrift sem ég tók af netinu, breytti og gerði að minni) og ætla einnig að gefa ykkur uppskrift að einum mínum uppáhaldsrétt -grænmetislasagna. Ég er reyndar mjög MJÖG mikil “slump” manneskja, þannig þetta getur verið frekar ónákvæmt. En þá verður maturinn líka fjölbreyttari og persónulegri…
(meira…)
júní 1, 2009

Síðustu 17 dagar… Á morgun…




Komandi tímar…