Hafrakökur og grænmetislasagna

Var búin að lofa að setja hér inn uppskriftina að hafrakökunum sem ég geri (uppskrift sem ég tók af netinu, breytti og gerði að minni) og ætla einnig að gefa ykkur uppskrift að einum mínum uppáhaldsrétt -grænmetislasagna. Ég er reyndar mjög MJÖG mikil “slump” manneskja, þannig þetta getur verið frekar ónákvæmt. En þá verður maturinn líka fjölbreyttari og persónulegri…

HAFRAKÖKUR

1/2 dl hunang (eða agave síróp)
1/2 dl olía
1/2 dl vatn
4 kúfaðar matskeiðar eplamauk
1 tsk lyftiduft
1 dl spelt
1 msk kanill (eða meira eftir smekk)
3 dl haframjöl (eða þangað til þetta er orðið frekar þykkt)
1 egg (hægt að sleppa)
rúsínur eftir smekk

Þessu er öllu hrært saman. Sett svo á bökunarpappír (dugar í ca. 9 kökur) og hafðar frekar flatar. Bakað í 10-15 mín (best þegar þær verða pínu dökkar, þá eru þær stökkari) við ca. 175° C.

GRÆNMETISLASAGNA

Allt það grænmeti sem til er í ísskápnum og fólki finnst gott. Venjulega nota ég:

Kúrbítur
Sveppir
Spergilkál
Laukur
Kartöflur
Sætar kartöflur
Gulrætur
Hvítlaukur

Þetta er brytjað niður í munnbitsstærðir og skellt á pönnu. Til að búa til sósuna nota ég:

400 ml dós af niðursoðnum tómötum (sliced oftast)
400 ml dós af light kókosmjólk

Niðursoðu tómötunum er hellt yfir allt grænmetið og leyft aðeins að malla. Kryddað með svörtum/hvítum pipar eftir smekk. Síðan er ca. 1/2 dós af kókosmjólk bætt við.

Þá er þetta sett í eldfast mót. Fyrst grænmetið, svo lasagnaplötur og kókosmjólk ofan á það. Endurtekið einsog dugir til. Osti er stráð yfir allt í lokin og skellt inn í ofn í ca. 20 mínútur við ca. 175°C.

Það er líka hægt að borða þetta sem grænmetissúpu með því að sleppa lasagnaplötunum og tvöfalda niðursoðnu tómatana og kókosmjólkina.

~ af kristingrims á júní 5, 2009.

7 svör to “Hafrakökur og grænmetislasagna”

  1. Snilld Kristín!

    Ég prófa klárlega hafrakökurnar á morgun!! Og lasagne bráðlega ;)

    Efast ekki um að þetta sé bragðgott :D

    Kærar þakkir hihi

  2. Verði þér að góðu.
    Annars gleymdi ég hunanginu í hafrakökunum, er búin að setja það inn núna.. Skiptir miklu máli !

  3. Hæ!
    Bara að láta þig vita að ég bakaði kökurnar í dag og finnst þær vera góðar!!
    Datt í hug eftir á að það væri kannski gott að blanda góðum hnetum/möndlum í uppskriftina? Ég prófa það kannski næst ;)

  4. … já og jafnvel einhver fræ… T.d. graskersfræ?

  5. Já, ég get trúað að það sé gott að bæta við hnetum eða möndlum.

    Ætla að skella í eina posjón snöggvast. Gott að fá sér eftir Esjuferð..

  6. Skemmtilegt að fá að sjá uppskriftir… Prófa þessar bráðlega :)

  7. újé prófa hafrakökurnar við fyrsta tækifæri! :D

Skildu eftir svar