12 vikna átakshópur
Hausinn fór á flug á meðan ég maraði í hálfu kafi í baði.
Er búin að fá marga pósta frá ólíklegasta fólki sem fylgist með hér á síðunni og þá sérstaklega þegar ég skrifa “heiluspistlana”. Mér finnst virkilega gaman hvað margir hafa áhuga á heilsusamlegum lífsstíl og eru að vinna í þeim málum. En er ekki svolítið leiðinlegt að gera þetta hver í sínu horni ? Þetta er nefnilega oft erfiðara yfir sumartímann -einmitt þegar það ætti að vera skemmtilegast. Veðrið er svo gott að maður getur hámarkað útivistina.
Var að láta mér detta í hug að sameina þá sem hafa áhuga í 12 vikna átakshóp. Áskorun á okkur sjálf að ná ákveðnum markmiðum innan þess tímaramma. Hver æfir á sínum stað eftir hentugleika en svo hittumst við aðra hverja viku og höfum ástandsmælingu (vigtun, ummál, fituprósenta). Þetta myndi þá ganga þannig fyrir sig:
1. Þeir sem vilja gera allt sjálfir
Þú sendir mér póst og skráir þig. Ég sendi þér til baka spurningalista um þitt heilsufar og markmið.
Þá mætiru í upphafi í mælingu og svo aðra hverja viku, ásamt öllum hópnum og förum svo t.d. öll saman í sund, útihlaup, fjallgöngu eða annað.
Kostar ekkert.
2. Þeir sem vilja aðstoð
Þú sendir mér póst og skráir þig. Ég sendi þér til baka spurningalista um þitt heilsufar og markmið, sem þú svo skilar mér til baka.
Ég bý til prógram sem hentar þér og þínum markmiðum gegn vægu gjaldi (ca. 3000 kr. p/mánuð) og get einnig farið vikulega yfir matardagbók (5000 kr fyrir bæði).
Þá mætiru í upphafi í mælingu og svo aðra hverja viku, ásamt öllum hópnum og förum t.d. öll saman í sund, útihlaup, fjallgöngu eða annað.
Kostar 3-5000 kr. p/mánuð.
Þetta hentar öllum stelpum sem vilja ná árangri í sumar hvar sem þær eru staddar á landinu. Svona hópur stuðlar að aðhaldi og markvissum æfingum. Þetta hentar líka öllum þeim sem vilja ná árangri en tíma ekki/hafa ekki efni á einkaþjálfara.
Mér finnst einstaklega skemmtilegt að geta aðstoða aðra við að ná árangri og vil því ekki vera að taka fyrir þetta nema rétt minimum til að covera vinnuna, ef margir hafa áhuga á að taka þátt.
Ekki má svo gleyma hvað þetta verður ÓTRÚLEGA SKEMMTILEGT !
Sumarið ER tíminn ! Látum þetta verða skemmtileg, heilbrigt og líflegt sumar !
Einnig gæti verið möguleiki, til að auka hvatninguna, að leggja undir t.d. 5000 kr. Það myndi þá ganga þannig fyrir sig að þegar þú skráir þig þá legguru inn 5000 kr. og ef þú nærð markmiðum þínum (verða að vera háleit en raunhæf) þá færðu peninginn til baka -annars ekki !
Hvað segiði, er þetta e-ð sem ykkur líst á ? Ef þið hafið áhuga eða spurningar getið þið komið þeim til skila í gegnum komment eða á kristingrims@gmail.com.
Hlakka til að heyra frá ykkur !

vúhú! I’m in!
ánægð með þig
)
æj pff þetta átti að vera broskall
Þú ert fyrst á blað Ingunn. Til hamingju !
Í tilefni þess færðu að æfa með mér alla daga með sérútbúnum æfingum sem henta þér og koma þér í súperform !
Heppin !
hahahaha love it!
I’m soooo IN!
Glæsó. Sendu mér póst líka um í hvort þú vilt vera í 1. eða 2. og svo sendi ég til baka á þig spurningalistann..
Hlakka til að sjá þig Rut !
ohh ég verð að kommenta aftur ég er svo ógeðslega ánægð með þetta framtak hjá þér Kristín !!!
mig langar dáldið að skrá mig í númer 2, en ég verð að ræða við þig aðeins fyrst
en vá þetta er æði!
Mér líst vel á þetta, þarf aðeins að pæla hvort ég vilji skrá mig í hóp eitt eða tvö …
Vá sniðugt! Þú ert svo þrusudugleg…!!! Væri sko alveg til í að vera með, þarf aðeins að kíkja á vaktaplanið hjá mér fyrst og svona…verðuru svo ekki með svona í vetur líka?
Frábært stelpur. Ánægð með þetta. Þetta verður góður hópur. Mun setja inn nánari upplýsingar í kvöld eða um helgina. Geri ráð fyrir að byrja þetta á mánudaginn eftir viku.
Hrafnhildur, þú hefur VEL tímann í þetta. Að hafa ekki tíma er ekki afsökun, því við búum tímann til sjálf. Þetta er allt í hausnum á manni. Skiptir heldur engu þó þú sért á Selfossi, það er ekkert mál..
Og þetta hentar líka ÖLLUM. Markmiðin geta verið misjöfn, s.s. að léttast, styrkjast, auka þol, keppa í hlaupum eða hvað sem er. Get gert plan sem hentar hverjum og einum til að ná sínum markmiðum.
En ef vel gengur þá er hægt að skoða það með að halda áfram í vetur. Ef ég verð ekki alveg að drukkna þ.e.a.s. (100% verkfr.nám, þjálfun í HA, ritstjórn háskólablaðsins, kannski stæ.kennsla og svo auðvitað að æfa sjálf..) (Greyið kærastatetrið mitt..
Það kemur bara allt í ljós.