Öfgar

Ég er mikil öfgamanneskja í öllu sem ég geri. Það er annaðhvort of eða van -ég rata sjaldan hinn gullna meðalveg. Ég er skapstór en jafnframt fljót niður. Ég er ofurskipulögð en á sama tíma ótrúlega viðutan. Ég er ofurglöð eða einfaldlega alveg miður mín. Og allt getur þetta gerst á innan við 5 mínútum. Alveg óútreiknanlegt.

Þetta á einnig við í mataræðinu og heilsusamlega lífsstílnum. Annað hvort borða ég 100% og hreyfi mig alla daga vikunnar og finnst ostsneið vera það allra óhollasta EÐA ég hreyfi mig alls ekki, borða óreglulega og mjög óhollt, t.d. ís í öll mál. Ég borða reyndar ALLTAF mikið -hvort sem það er hollt eða óhollt. Það er kannski minn helsti galli og ástæðan fyrir að ég verð aldrei grönn. Ég kann mér ekki hóf.
Það að hreyfa sig temmilega reglulega, borða tiltölulega hollt og hafa nammidag einu sinni í viku til að halda öllu í skefjum virkar einfaldlega ekki fyrir mig. Það er annaðhvort allt eða ekkert !

Síðustu 3 vikur hafa verið slæmir öfgar. Ís, brauð og nammi hefur verið í fyrirrúmi á meðan ég hef aðeins tekið 2-3 góðar æfingar á viku. Og það hefur skilað sér til líkamans. Skammarlegt, maður nær af sér skvabbinu og safnar því svo aftur til að missa það enn einu sinni..

En núna er ég byrjuð á góðu öfgunum sem vonandi haldast út sumarið. Höfum haft 3 kraftmiklar high intensity æfingar síðustu 3 daga  (sem sjá má í færslu hér á undan) og mataræðið hefur verið reglulegt og gott. Enda líður mér dásamlega. Þessu verður haldið áfram og vonandi get ég innan tíðar farið að nota flotta sundbolsbikiníið sem ég keypti mér í gær..

…og svona fyrst myndavélin er loksins orðin virk, þá er hún að sjálfsögðu ofvirk enda öfgarnir hér ekkert minni en í öðru. Þetta var kvöldmaturinn í kvöld.

pita 005
Heimagerð heilhveitipíta með fersku íslensku grænmeti og prótein í mjólk með hindberjum.

~ af kristingrims á júní 11, 2009.

5 svör to “Öfgar”

  1. Haha þessi mynd er alveg milljón! ;)

    en hey – ég er búin að komast að því að Eurowave-ið er barasta í Bæjarlindinni!! Nú verðum við eiginlega bara að fara ;)

  2. Snilld ! Þá segi ég bara einsog ræningjarnir.. “Þá-er-það-ákveðið”.

    ..en af hverju er þessi mynd milljón ? Af því þú misstir af pítunni ? Ekki segja mér að grillið hafi verið betra.. ;) haha.

  3. Ég skil þig SVO vel með öfgarnar.

    Þetta er alveg nákvæmlega eins með mig.

    Það undarlega er samt það að þegar ég hef verið mjög grönn og virkilega ánægð með vaxtarlagið þá hef ég yfirleitt verið ofur róleg, afslöppuð, borðað hæfilega (frekar lítið í einu) og hreyft mig handahófskennt í bland.

    Ég hinsvegar næ þessu tempói voðalega sjaldan og tilhneygist til að taka þetta alla leið: æfa í tvo tíma á dag og borða ofur hollt. Taka svo duglega spretti í óhollustunni inn á milli. Vera mega stressuð yfir öllu og skipuleggja allt til enda.

  4. haha.

    Við erum mjög líkar…og að fleiru leyti en þessu held ég. Hefði verið gaman að hafa þig með í “áskoruninni”. Eða ertu ekki annars á Höfn í sumar ?

  5. Ég veit ég er sein að svara en ætla samt að gera það: myndin er milljón bara af því að þú tókst svona glæsilega mynd af matnum þínum og skelltir henni á netið – ég veit bara um eina aðra manneskju sem myndi gera e-ð svoleiðis og það er ég! haha :P

Skildu eftir svar