Nánari upplýsingar
Þá er farin að koma mynd á þessa 10 vikna áskorun. Breytti úr 12 vikum í 10 þar sem það hentar betur og er þá síðasta mælingin í lok ágúst. Við erum nú þegar orðnar um 6 sem ætlum að vera með og viljum endilega fá fleiri með okkur. The more – the merrier.
Fyrsta mæling verður á mánudaginn eftir viku (staðsetning verður birt innan skamms). Síðan á 2ja vikna fresti fram að hausti. Dagsetningarnar eru því:
22. júní
6. júlí
20. júlí
3. ágúst
17. ágúst
31. ágúst
Hugmyndin er semsagt sú að við æfum allar einsog okkur hentar best og hittumst svo á 2ja vikna fresti þar sem ég mun sjá um mælingar og halda utan um allt saman. Getum tekið fyrir-eftir myndir mánaðarlega ef áhugi er fyrir hendi. Lykillinn er þó að hafa gaman í góðum félagsskap, ná markmiðum okkar og njóta sumarsins í botn.
Einsog fram kemur í færslunni á undan er hægt að skrá sig í hóp 1 og mæta frítt í mælingar eða hóp 2 þar sem ég bý til æfingaprógram og/eða fer yfir matardagbók gegn mjög vægu gjaldi. (Þótt þetta heita hópur 1 og hópur 2 þá verðum við allar saman, þetta er ekki tvískipt.)
Þið sem ætlið að vera með (allar -líka þær sem hafa þegar skráð sig), endilega fyllið eftirfarandi spurningalista út og sendið mér á kristingrims@gmail.com.
Vil líka leggja áherslu á að það mega allir vera með, þið þurfið ekki að þekkja mig til að geta tekið þátt. Það er alltaf gaman að kynnast nýju fólki og hjálpast að við að lifa heilbrigðum lífsstíl. Og þið megið vera í allskonar formi -feitar, mjóar, stórar og litlar. Þetta snýst bara um að bæta sjálfan sig og ná sínum persónulegu markmiðum.
Hlakka til að heyra frá ykkur og láta þetta verða að veruleika. Þetta er alvöru, við verðum orðnar þrusukroppar í haust !
———————————
Nafn:
Kennitala:
Símanúmer:
Markmið sem ég ætla mér að ná á þessum 10 vikum (þurfa að vera háleit, raunsæ og MÆLANLEG):
Hópur:
—
Spurningar aðeins fyrir þá sem velja hóp 2, þ.e. þá sem vilja fá æfingaplan og/eða yfirferð á matardagbók.
Hversu oft viltu æfa á viku ?
Hvaða dagar henta best ?
Hversu löngum tíma geturðu ráðstafað í æfingar í hvert sinn ?
Í hvernig formi teluru þig vera á skalanum 1-10 ?
Hversu oft stundaru líkamsrækt (og þá hvernig líkamsrækt ?) að jafnaði ?
Áttu við heilsufarsvandamál að stríða eða sögu um meiðsli ? (Ef já, þá hvað er að angra þig ?)
Hvar ætlar þú að æfa ? (Líkamsræktarstöð, úti, heima…)
Hvernig telurðu mataræði þitt vera á skalanum 1-10 ?
Hversu margar máltíðir borðar þú á dag ?
Hversu marga lítra af vatni drekkur þú daglega ?
Tekurðu inn lyf ? (Ef já, hvaða ?)
Notastu við fæðubótarefni ? (Ef já, hvaða ?)
Reykir þú ? (Ef já, hversu mikið á dag ?)
Drekkur þú ? (Ef já, hversu oft að jafnaði ?)
Annað sem þú vilt koma á framfæri ?

tetta er ekkert sma gott fraktak hja ter!
otrulega sem tu getur verid dugleg kona.
væri til i ad vera med. en tar sem eg er stødd i danmørku, ta er tad erfitt! haha.
eg reyni bara ad berja sjalfan mig afram i stadin
gangi ykkur vel!
takk dagný. hefði verið gaman að hafa þig með.
Frábært hja þér
Væri til í að vera með en kem ekkert suður fyrr en í ágúst. Er þó byrjuð í léttvægilegu átaki
Takk dagrún.
Hefði líka verið gaman að hafa þig með. En við gerum bara e-ð skemmtilegt í haust líka þegar þú verður komin..
Njóttu norðursins, þar er svo gott að vera !