júlí 2009


Mér líður best með mörg járn í eldinum og þá kem ég einnig mestu í verk með sem bestum árangri. Það að hafa mikið að gera gerir það að verkum að maður skipuleggur sig betur og er líklegri til að ná markmiðum sínum. Ég er þó enn að reyna að læra þá list að velja og hafna, því oftast vil ég gera allt og sleppa engu. Maður þarf bara að skipulegga sig aðeins betur, á ég það til að segja við sjálfa mig þegar ég bæti einhverju á verkefnabunkann.

En nú í vikunni tók ég þá ákvörðun að hafna.

Í vetur var ég búin að áætla að gera eftirfarandi:
   100% verkfræðinám
   starfa í ritstjórn háskólablaðs HR
   þjálfa a.m.k. 3 hópa í Heilsuakademíunni
   taka að mér að vera leiðbeinandi í Ólympíustærðfræði ef það verður í boði
   æfa sjáf 5-7x í viku

Nú þegar ritstjórnarstörfin eru að hefjast og við að leggja línurnar fyrir blaðið gerði ég mér grein fyrir að þetta væri kannski fullmikið. Allavega ef ég ætlaði að ná að gera alla þessu hluti vel. Tel að þetta yrði íþyngjandi, sem gæti leitt til stress sem veldur því að maður hættir að hafa gaman af hlutum sem manni þykja annars skemmtilegir. Ég ákvað því að hætta þjálfuninni, nema þá aðeins að taka að mér afleysingar ef þörf er á. Pínu erfið ákvörðun, því ég nýt þess að þjálfa, en vonandi sú rétta.


Annars í óspurðum þá er sumarið rúmlega hálfnað og hefur einkennst af mikilli vinnu, æfingum og góðum helgum. Jón Ágúst vinnur mestan part vikunnar uppi í Fljótshlíð svo ég hef ekki samviskubit yfir að fara út héðan fyrir kl. 06 og koma heim um kl. 18 eftir langan vinnudag og æfingu. Helgarnar notum við saman og höfum m.a. farið í bústað, Humarhátíð, Selfoss, rölt um Reykjavík og svo er stefnan sett á Mærudaga á Húsavík eftir rúma viku. Verslunarmannahelgin er enn óráðin en líklegt er að við fylgjum veðrinu en Vestfirðir, Akureyri eða Hvalfjörður eru þeir staðir helstir sem koma til greina.

Við Jón Ágúst skelltum okkur austur á Höfn um helgina. Þar átti að vera Humarhátíð en mér fannst fara minna fyrir hverskyns hátíðarhöldun. Veðrið var heldur ekki að sýna sínar bestu hliðar. En þrátt fyrir það var gaman að koma í gamla bæinn sinn og upplifa raunveruleikann. Í minningunni var Höfn stór bær með gríðarlegum vegalengdum. Ég var lítil stelpa í stórum heimi.

Í öðrum fréttum þá eru 2 vikur liðnar af 10 vikna áskoruninni. Mæling nr. 2 var að klárast og mínar niðurstöður eru hreint ekki til að monta sig yfir. Stelpurnar standa sig samt vel -og mun betur en ég reyndar. Nú þarf ÉG að taka mig á !
Alls hafa fokið 2.1 kg, fituprósentan hefur lækkað um 3.3% og 12 cm horfið af okkur fjórum í heildina.

Ég reyni líka að vinna einsog ég mögulega get. Er að vinna 10-11 tíma á dag svo dagarnir eru frekar einhæfir: hjóla í vinnuna, vinn, hjóla í ræktina, æfi, borða og sef.

Ætla núna að drífa mig og taka brennslu í ræktinni yfir So you think you can dance. Ekki veitir af.. Ég ætla að sýna góðan árangur í næstu mælingu !

…ætla að enda þetta á smá syrpu sem við tókum um helgina á leiðinni austur. Vorum með smá þema: hopp á klukkutíma fresti. Myndirnar eru teknar (í þessari röð) við Seljalandsfoss, Skógarfoss, Lakagígahraun, Skeiðarársand, Jökulsárlón og undir rótum Vatnajökuls.

Sumar 2009 165 Sumar 2009 179 Sumar 2009 187 
Seljalandsfoss                 Skógarfoss                     Lakagígahraun

Sumar 2009 196 Sumar 2009 216 Sumar 2009 220
Skeiðarársandur          Jökulsárlón                    Klettar við rætur Vatnajökuls

Fyrir 20 árum síðan átti sér stað þessi stórviðburður..

kristin grjon

Elsku mamma og pabbi, innilega til hamingu með 20 ára brúðkaupsafmælið !

Í brúðkaupsgjöf fengu mamma og pabbi m.a. postulínskökukefli með uppskrift að hamingjuuppskrift. Sú uppskrift hefur verið uppi við öll þessi 20 ár og hefur verið höfð í hávegum, enda hafa þau borið þetta á borð fyrir alla sem þau mæta.. rétt einsog uppskriftin segir.

2 sléttfullir bollar af þolinmæði
1 hjartafylli af klærleika
Slatti af hlátri
Höfuðfylli af skilningi
Vætið örlátlega með góðvild, látið nóg af trú og blandið vel.

Breiðið yfir þetta heilli mannsævi.
Berið á borð fyrir alla sem þið mætið.

p.s Ég skammast mín ekki lengur fyrir allt kossaflensið í ykkur fyrir framan vini mína þegar ég var yngri. Nú skil ég að þetta er bara ást.