Fyrir 20 árum síðan átti sér stað þessi stórviðburður..

Elsku mamma og pabbi, innilega til hamingu með 20 ára brúðkaupsafmælið !
Í brúðkaupsgjöf fengu mamma og pabbi m.a. postulínskökukefli með uppskrift að hamingjuuppskrift. Sú uppskrift hefur verið uppi við öll þessi 20 ár og hefur verið höfð í hávegum, enda hafa þau borið þetta á borð fyrir alla sem þau mæta.. rétt einsog uppskriftin segir.
2 sléttfullir bollar af þolinmæði
1 hjartafylli af klærleika
Slatti af hlátri
Höfuðfylli af skilningi
Vætið örlátlega með góðvild, látið nóg af trú og blandið vel.
Breiðið yfir þetta heilli mannsævi.
Berið á borð fyrir alla sem þið mætið.
p.s Ég skammast mín ekki lengur fyrir allt kossaflensið í ykkur fyrir framan vini mína þegar ég var yngri. Nú skil ég að þetta er bara ást.
júlí 5, 2009 at 2:14 pm
Tillukku með settið!
júlí 31, 2009 at 5:41 pm
Ég bið að heilsa mömmu þinni og pabbi
Þau eru svo yndisleg. Fá mínar bestu kveðjur.