Hopp og hí
Við Jón Ágúst skelltum okkur austur á Höfn um helgina. Þar átti að vera Humarhátíð en mér fannst fara minna fyrir hverskyns hátíðarhöldun. Veðrið var heldur ekki að sýna sínar bestu hliðar. En þrátt fyrir það var gaman að koma í gamla bæinn sinn og upplifa raunveruleikann. Í minningunni var Höfn stór bær með gríðarlegum vegalengdum. Ég var lítil stelpa í stórum heimi.
Í öðrum fréttum þá eru 2 vikur liðnar af 10 vikna áskoruninni. Mæling nr. 2 var að klárast og mínar niðurstöður eru hreint ekki til að monta sig yfir. Stelpurnar standa sig samt vel -og mun betur en ég reyndar. Nú þarf ÉG að taka mig á !
Alls hafa fokið 2.1 kg, fituprósentan hefur lækkað um 3.3% og 12 cm horfið af okkur fjórum í heildina.
Ég reyni líka að vinna einsog ég mögulega get. Er að vinna 10-11 tíma á dag svo dagarnir eru frekar einhæfir: hjóla í vinnuna, vinn, hjóla í ræktina, æfi, borða og sef.
Ætla núna að drífa mig og taka brennslu í ræktinni yfir So you think you can dance. Ekki veitir af.. Ég ætla að sýna góðan árangur í næstu mælingu !
…ætla að enda þetta á smá syrpu sem við tókum um helgina á leiðinni austur. Vorum með smá þema: hopp á klukkutíma fresti. Myndirnar eru teknar (í þessari röð) við Seljalandsfoss, Skógarfoss, Lakagígahraun, Skeiðarársand, Jökulsárlón og undir rótum Vatnajökuls.
Seljalandsfoss Skógarfoss Lakagígahraun

Skeiðarársandur Jökulsárlón Klettar við rætur Vatnajökuls

En fínar myndir! Hopp eru skemmtileg…
Bíddu hvar eru hopp og hí myndirnar af Jóni?
Hann hoppar svo asnalega að við gáfumst upp eftir Seljalandsfoss..
Ég náði af honum tveimur myndum en ég veit ekki hvort hann myndi fyrirgefa mér ef ég setti þær inn.
(ekki það að ég hoppi “töff”, ég bara kann ekki að skammast mín..
)
Flottar myndir
Hlakka til að fylgjast áfram með átakinu ykkar!