Posted by kristingrims under
Daglegt líf [3] Comments
Skólinn er byrjaður og rútínan hefst fyrir alvöru á morgun. Komin með flestar bækur, penna í öllum litum og nýtt nestisbox. Þetta skólaár leggst ótrúega vel í mig. Flestir kennararnir virka vel á mig og kúrsarnir eru einnig að mínu skapi. Ég héf góða tilfinningu fyrir Háskólablaðinu og öðrum þáttum félagslífsins. Svo byrjar ný törn í ræktinni á morgun, svo það er allt að gerast.

Kjánaleg fyrir RM 2009
Helsta afrek síðustu daga er hálfmaraþon í Reykjavíkurmaraþoninu. Það er þó ekki meira afrek en það að tíminn var ömurlegur, en ég átti það víst skilið miðað við ömurlegan undirbúning. En fyrsta skiptið er það fyrsta og ég náði þó að klára hlaupið. Ég er að velta því fyrir mér að hlaupa líka Brúarhlaupið eftir 2 vikur en láta 10 km duga -reyna að bæta tímann minn síðan í RM 2006; 52.56. Ég undirbý mig kannski aðeins fyrir það, svona smá allavega.
En talandi um lélegan undirbúning. Síðasta golfmót sumarsins hjá klúbbi Össurar verður næsta föstudag. Ég hef ekki snert kylfurnar síðan í júní en það kemur ekki í veg fyrir að ég muni taka þátt.
Með haustinu munu svo fylgja tíðari skrif. Að blogga getur verið kærkomið frí frá lærdómi og oftar en ekki er gott að koma öllu því sem flækist fyrir manni niður á blað, þá er það ekki lengur fyrir manni í hausnum.
Ég er komin í frí. Ég er hætt að vinna og skólinn byrjar á fimmtudaginn. Fríið mitt nota ég í undirbúning – to do listinn stendur af nokkrum atriðum.
Skólaárið markar að vissu leyti nýtt upphaf, þetta eru einskonar tímamót. Ný verkefni hefjast og auðvitað skiptir máli að vera 100% tilbúinn að takast á við þau. Maður ætlar sér mikið -kannski of mikið- en til að eiga raunhæfan séns þá þarf skipulagið að vera gott, hugur og líkami í góðu jafnvægi og markmiðin skýr.
Ég efast um að ég sé ein með þessa þráhyggju um að ef eitt klúðrast þá er allt annað ónýtt (partur af “öfga-syndrominu” ?).
Ef íbúðin mín er ekki hrein og snyrtileg þá finnst mér ég ekki heldur vera hrein og snyrtileg. Ef ræktin situr á hakanum þá situr námið líka á hakanum. Ef það sem ég ætlaði mér að gera fer út um þúfur þá er allur dagurinn ónýtur. Ef ég borða eitt nammi þá get ég alveg eins borðað 100 nammi.
Þetta er náttúrulega fáránlegt.
Ég hef reynt að láta þetta ekki hafa svona áhrif á mig, en það er lífsins ómögulegt. So preparation it is !
To do:
- Þrífa íbúðina hátt og lágt -gera fallegt og kósý
- Skrá sig á heilsugæslustöð og panta tíma hjá lækni (laga bakið !)
- Fara yfir allan gamlan póst að heiman. Skipuleggja bókhald og almennt yfirlit
- Finna gamla bankareikninga og láta loka þeim sem eru ekki í notkun
- Kaupa allt sem vantar fyrir skólann
- Selja bækur
- Panta (og mæta) í klippingu og litun
- Fara í neglur (vei)
- Finna góðar uppskriftir og skipuleggja máltíðir fram í tímann
- Gera gott plan fyrir ræktina
- Klára alla undirbúningsvinnu (sem möguleg) fyrir Háskólablaðið
- Selja stofuborðið og finna annað minna í staðinn
- Hengja upp snaga/hillur/myndir á veggi
- Hafa tíma fyrir sjálfa mig !
Þessi vetur mun einkennast af jafnvægi: hæfilegur tími í skólanum og öðrum verkefnum, hæfilegur tími í ræktinni, hæfilegur tími fyrir fjölskyldu og vini, hæfilegur tími fyrir sjálfa mig,
Með góðri skipulagningu ætla ég loks að finna þennan vandfundna gullna meðalveg.
[...þessi færsla er hluti af skipulagninunni: hún kemur hugsuninni niður á "blað"...]