Í framhaldi af síðustu færslu um trú þá fór ég aðeins að pæla í muninum á trú og trúarbrögðum (believe vs. religion).
Trú: eitthvað fer eða gerist einsog einhver býst við eða vonar; að taka sem sannleik.
Trúarbrögð: guðsdýrkun skv. ákveðnu hugmyndakerfi.
Þ.e. ef ég veit ekki eitthvað þá get ég tekið einhverju sem sannleik og treysti að það sé satt, án þess þó að hafa sannanir fyrir að það sé satt.
Þannig var/er með guðstrúna. Fólk bjó á jörð sem það vissi ekki (og veit ekki enn ?) hvaðan er upprunin og því trúir fólk því að:
a) Guð hafi skapa hana á 7 dögum
b) …það sem önnur trúarbrögð segja um upphaf jarðar (þekki það ekki nógu vel)
c) að hún hafi orðið til í Big Bang vegna árekstra sameinda (einsog er verið að reyna að líkja eftir í CERN)
Á meðan ekki er hægt að sanna neitt af þessu, er jafnframt ekki hægt að afsanna það heldur. (Big Bang er enn aðeins kenning, að því er ég best veit. Endilega bendið mér á grein annars efnis, ef ég hef rangt fyrir mér).
Svo er líka rétt að benda á að trúarbrögð eru í raun aðeins túlkunaratriði. Það má túlka Biblíuna og Kóraninn á ótal vegu eftir hentugleika. Maðurinn hefur afskræmt fallegar sögur með góðum boðskap fyrir eiginhagsmuni. Líkt og er að gerast í dag -fólk snýr baki við siðferði vegna eiginhagsmuna og græðgi og fegrar það á e-rn óskiljanlegan hátt.
Sjálf finnast mér trúarbrögð kjánaleg með sínum boðum og bönnum. Mér finnst að fólk eigi að taka til sín það góða en forðast það slæma. Hver og einn hefur rétt á að túlka hvað sé gott og hvað slæmt, en flest erum við þó sammála um að eftirfarandi sé til eftirbreytni:
Heiðarleiki, vinátta, traust, einlægni og jákvæðni.
Eins erum við sammála um að eftirfarandi þættir séu óeftirsóknarverðir:
Óheiðarleiki, hroki, svik, undirferli og neikvæðni.
Þetta höfum við flest lært frá unga aldri -og við vitum þetta þótt þetta eigi til að gleymast með árunum og peningunum. Disney pictures hafa þó verið ötulir við að minna okkur á góðu gildin í gegnum teiknimyndir sínar, sem allar bera með sér góðan boðskap um vináttu, traust, trú og öll erum við eins óháð stöðu. Lögin í myndunum þeirra eru öll afbrag og segja svo mikinn sannleik. Teiknimyndirnar eru alls ekki bara barnamyndir -þær eru fyrir alla !
Tökum nokkur dæmi (endilega klikkið á linkana, þetta eru lögin og myndbrot sem er gott fyrir alla að sjá).
Víðsýni -án takmarkana
Colors of the wind -Pocahontas
Vinátta -án takmarkana
Friends to the end -Tom and Jerry: the Movie (reyndar ekki Disney?)
You got a friend in me -Toy Story
Ást -án takmarkana
A whole new world -Aladdin
Tale as old as time – Beauty and The Beast
Draumar -án takmarkana
Part of your world -The Little Mermaid
Markmið -án takmarkana
Go the distance -Hercules
I’ll make a man out of you -Mulan
Engar áhyggjur -án takmarkana
Supercalifragilisticexpialidocious -Mary Poppins
Hakuna Matata -Lion King
Gæti tekið miklu fleiri dæmi. Margir þessara söngva sameina fleiri atriði í sér. En allar þessar myndir boða eitt og hið sama -möguleika án takmarkana.