
…er formlega hafinn !
nóvember 26, 2009

…er formlega hafinn !
nóvember 24, 2009
Á morgun er síðasti kennsludagur. Fer aðeins í tvöfaldan stærðfræðidæmatíma, svo það er samasem ekkert eftir. Síðustu skil eru annaðkvöld -8% tölfræðiverkefni sem ég er komin langt með.
Svo byrjar skipulagningin !
Ætla að reyna að koma þessu hér niður á ,,blað” til að fá smá heildaryfirsýn. Nokkurs konar to-do listi..
Fyrir miðnætti miðvikudaginn 25. nóvember:
1. Klára að hafa samband við alla aðila v.greinar fyrir Háskólablaðið svo ég verði komin með öll gögn eftir próf og geti skilað öllu af mér strax í vikunni eftir próf.
2. Skrifa 2-4 fjármálagreinar svo ég hafi það tilbúið upp á skil í prófatörninni.
3. Klára og skila tölfræðiverkefni.
4. Ljósrita og prenta út allt efni sem kemur mér að gagni fyrir próflesturinn.
5. Hlaupaæfing kl. 17 á mið og lyfta strax á eftir.
Fimmtudagur 26. nóv -fyrsti í upplestri.
1. STÆRÐFRÆÐI. Fara yfir öll heimadæmi vetrarins og gera drög að formúlublaði.
2. Æfing kl. 6:30 -lyfta.
Föstudagur 27.nóv -dagur tvö
1. STÆRÐFRÆÐI -sé það á fim. hvað nauðsynlegt er að fara betur í.
2. Spinning kl 17.35 +lyfta
Laugardagur 28. nóv -dagur þrjú
1. TÖLFRÆÐI
2. Spinning kl. 10:30
3. 2ja ára afmæli hjá Karenar Margrétar
Sunnudagur 29. nóv -dagur 4
1. TÖLFRÆÐI
Mánudagur- miðvikudags verða metnir eftir gengi hingað til.
Fimmtudagur 3. desember -fyrsta prófið.
TÖLFRÆÐI
Svo nú er bara að bretta upp ermarnar. Hef tröllatrú á þessu þótt ég eigi langt í land og þurfi að liggja virkilega yfir bókunum til að ná góðu gengi.
Ætla einnig að vera dugleg að æfa næstu vikurnar sem gefur vonandi extra púst og léttir á stressi.
..svo er kannski vert að minnast á að lömunin er (löngu) horfin útlitslega auk þess sem ég finn samasem ekkert fyrir henni, aðeins smá dofa í kinninni en ekkert sem hægt er að tala um. Ég er byrjuð að trappa niður sterainntökuna og mun að öllum líkindum vera orðin laus við öll lyf í byrjun næstu viku.
Þetta er frekar sundurleit færsla til lestrar en gerði sitt gagn. Ég er komin með nokkur skýrar útlínur fyrir næstu daga.
Kvöldið í kvöld er ýsa og soðnar kartöflur. Tölfræði og kertaljós.
nóvember 22, 2009

Einfalt, ekki satt ?
nóvember 21, 2009
Eftir aðeins 4 daga þá er ég orðin bara nokkuð eðlileg. Augað er komið í lag og það varð aldrei svo slæmt að ég gat ekki lokað því (mér var ráðlagt að kaupa mér lepp því augað átti á hættu á að ofþorna, fegin að svo varð ekki). Vinstra munnvikið er að komast í rétta hæð og ég er komin með ca. 90% tilfinningu í kinnina. Hef mikla trú á að þetta verði alveg farið eftir helgi, hverju sem það má þakka.
Ég er þó enn að taka inn þessa lyfjasúpu, sem mér er mjög illa við. En ég þorði ekki öðru en að segja já og amen við doksa í þetta sinn. Þetta eru 10 steratöflur á dag og 6 af e-ju herpeslyfi. Tek þetta inn 2 daga í vibót og trappa það svo niður.
En ekki er svo með öllu illt að björtu hliðarnar séu engar. Þetta getur nefnilega verið frekar fyndið. Ég fór í spinning í gærkvöldi og á þeim tíma var ég ansi dofin í kinnunum og tungunni. Þegar við tókum spretti fannst mér vinstri hlið andlitsins vera að fjúka af og ég gerði mér enga grein fyrir því hvort droparnir ég gólfinu voru sviti eða slef. Geðslegt, ég veit.
Ég er semsagt á góðum batavegi og hef engar áhyggjur. Að prófunum undanskildum þ.e.a.s.
…og takk fyrir góðar kveðjur !
nóvember 19, 2009
Hlutirnir gerast hratt og maður veit aldrei hvað morgundagurinn ber í skauti sér. Maður tekur lífinu og heilsunni oft sem sjálfsögðum hlut -oftast alveg þangað til skyndilegar breytingar verða á aðstæðum okkar.
Ég minntist á í færslunni í gær að ég væri orðin eins og Quasimodo -fannst það m.a.s pínu fyndið þá. Mér fannst það ekki lengur þegar ég vaknaði í morgun og augnlokið hafði sigið enn frekar auk þess sem á dofnaði upp í andlitinu þegar leið á morguninn. Ég varð satt að segja frekar hrædd og pantaði tíma hjá lækni. Að hans viti er ég líklega með svokallaða Bell’s lömun eða Bell’s palsy en hann vildi senda mig til frekari rannsókna til að vera viss. Svo við Jón Ágúst fórum beint niður á Fossvogsspítala með þetta skelfilega orð lömun í farteskinu og satt að segja var ég dauðhrædd ! Ég fann hvernig ég dofnaði meir og meir upp eftir því sem tímanum leið og þegar við loks komumst að var ég orðin dofin niður eftir vinstri kinninni, í vinstra munnvikinu, upp til eyrans og aðeins niður að hálsi auk þess sem tungan var farin að sljóvgast. Í viðbót við signa augnlokið.
Á móti okkur tók frábær læknir sem kannaði viðbrögð alls líkamans og útilokaði mögulega herpessýkingu en staðfesti það sem heimilislæknirinn hafði sagt -að ég væri með svokallað Bell’s palsy og fengi við því stera og fyrirbyggjandi herpeslyf. Hún sagði að orsakir fyrir þessu væri óþekktar en þetta gengi til baka í 90% tilvika og mjög líklega í mínu tilviki þar sem ég væri hraust og hefði leitað tímanlega til læknis.
Mér líður því mun betur núna þrátt fyrir að vera frekar dofin í vinstri helming andlitsins en það jafnar sig vonandi fljótt. Ég viðurkenni alveg að hafa verið mjög hrædd þegar ég vissi ekki hvað var um að vera enda er skelfilegt að fá kastað framan í sig orðum einsog lömun og skemmd heilataug og finna hvernig andlitið dofnar upp að ástæðulausu, að því er virðist.
Svo núna krossa ég fingur um að þetta gangi 100% til baka og þakka fyrir almennt góða heilsu og heilbrigði.
Sumt er aldrei ofsagt:
Ef þú hefur ekki tíma fyrir heilsuna í dag, hefur heilsan ekki tíma fyrir þig á morgun !
nóvember 19, 2009
Hef hitt svo mikið af áhugaverðu fólki í vikunni -og enn er bara miðvikudagur !
Var að koma heim af H-deginum á Austur þar sem fólki deildi hugmyndum og fékk feedback á þær. Margt mjög skemmtilegt, áhugavert og gagnlegt sem kom fram. Alltaf er maður að sækja sér fróðleik -ná sér í verkfæri í verkfæratöskuna sem síðar meir verður nýtt til að byggja eitthvað stórkostlegt. Já, ég er alltaf svo stórhuga eftir svona fundi/ráðstefnur/samkomur.
Þessi vika hefur af þessum sökum farið minna í lærdóm. Sem er frekar slæmt þar sem verkefnahrúgarn er nokkuð há. Skil á rekstrargreiningarverkefni á morgun, próf í fjármálum á föstudag + skil á tölfræðiverkefni, skil á stærðfræði-og rekstrargreiningarverkefni á mánudag auk ritgerðar í stjórnun og svo er stórt skilaverkefni í tölfræði á miðvikudag. Það er því augljóst í hvað helgin fer !
Og fyrst ég er að fara yfir víðan völl þá gekk hlaupaæfing 2 ágætlega í dag þrátt fyrir beinhimnubólgu og smávægileg eymsli í vinstra hné.
Og fyrst ég er farin að kvarta yfir líkamlegum einkennum þá hefur vinstra augnlokið (eða svæði milli augabrúnar og augnloks) á mér sigið í dag, ástæðan er ekki ljós en ég lýsi eftir hugmyndum.. Er ekki alveg sama með þetta. Bæði vegna þess að ég lít út einsog Quasimodo og ég finn ekkert um sigin augnlok á google nema e-rja taugasjúkdóma. Finnst það pínu scary.
Quote dagsins eru komment síðan í kvöld:
,,Árangur er 1% innblástur og 99% útblástur”
…as in inspiration and outspiration
…as in hugmyndaauðgi og vinnusemi
,,Hámark heimskunnar er að skipta aldrei um skoðun”
nóvember 17, 2009
Ég elska svona daga þegar ég geri margt áhugavert. Reyndar hefði ég mátt skrifa meira í ritgerð sem þarf að skila eftir helgi, enda verkefnaflóðið gífurlegt og best að halda áætlun, en það vegur þó ekki svo mikið..
Ég byrjaði daginn kl. 6.45 á að fara í ræktina -missti þó af spinning. Borðaði hafragraut og lýsi í morgunmat, kúrði smá. Fór á áhugaverðan og skemmtilegan fund sem varðar nýsköpunargreinina okkar, fór í eins konar atvinnuviðtal, hlustaði á kvenfrumkvöðla, mætti í stærð- og tölfræðitíma auk þess að hlusta á kvenverkfræðinga segja sína sögu í lok dagsins. Kom svo heim, kveikti á kertum og borðaði sörur (sem munu eflaust ekki endast út vikuna). Reyndi að læra en kom engu í verk.
Þess er jafnvel vert að minnast að ég fór á fyrstu hlaupaæfinguna mína í gær. Ég lifði hana af EN hún var erfið. Fer að öllum líkindum aftur á morgun þrátt fyrir bæði harðsperrur og beinhimnubólgu.
Er annars búin að hugsa mikið um það sem kom fram á þjóðfundinum um helgina. Upp komu mörg merkingarþrungin orð þegar rætt var um gildi landsins. T.d. þetta:
UPPLÝST VIRÐING
Hvað finnst ykkur um þessi orð ? Hvaða skilning leggið þið í þau ?
nóvember 16, 2009
Eða nei. Ekki berjaljós. En ég vil endilega selja þér pappír. Og jafnvel pottasvamp og bursta.
(um að gera að nýta sér aðstöðu sína -eða er það ekki þannig að sá misnotar aðstöðu sína sem ekki misnotar sér aðstöðu sína ?)
Nú er fjáröflun hafin fyrir útskriftarferð okkar í verkfræðinni (tímanlega í kreppunni) og við byrjum á því típíska -klósettpappírsölu.
Hvet ykkur eindregið til að kaupa af mér mjúkan og góðan pappír fyrir bossann.
WC pappír 200 blaða 48 rúllur: 3000 kr
Eldhúsrúllur 24 rúllur í balla: 3000 kr
WC MAXI 400 blaða 40 rúllur: 4000 kr
Lúxus WC 250 blaða 3ja laga 36 rúllur: 4000 kr
Heimilispakki: Borðklútar, pottasvampur, uppþvottabursti og lögur: 2500 kr
Getið haft samband á kristingri08@ru.is og 846-1388.
nóvember 15, 2009
Mig langar að prófa svolítið. Þetta er leikur. Ég ætla að telja upp nöfn allra þeirra sem ég held að reki hingað inn nefið. Ef ég hitti á rétt nafn þá máttu kommenta “tékk” en ef þú ert ekki á listanum máttu bæta því við í kommentakerfið, hvort sem við þekkjumst eða ekki.
Það þýðir ekki að svindla því ég sé fjölda þeirra sem koma hingað inn.
ok ?
Mamma. Jón Ágúst (óskhyggja ?). Ingibjörg. Ingunn. Helgi Þór. Hrafnhildur. Dagrún. Esther. Kristín K. Eygló. Anna frænka…
Vá, mér detta ekki fleiri í hug. Og þá vantar ca. 40 -70 manns svo þetta nái meðal aðsókn. Annars er sunnudagur ekki besti dagurinn í þetta, þá eru fæstir á netinu. En sjáum til..
nóvember 14, 2009
Þjóðfundurinn var meiriháttar ! Til hamingju Íslendingar !
Hugmyndaauðgi, samstaða, kraftur, jákvæðni og auðmýkt. Og svo miklu meira.
Stóðst algjörlega himinháar væntingar. Málefnalegar umræður þar sem fólk stefnir að sama markmiði -betra Íslandi. Var á borði með fjárfesti, þingmanni, forstjóra, bónda, hjúkku og menntaskólanema. Skoðanir einstaklingsins fengu að njóta sín óháð stöðu og starfstitli. Allir voru sammála um að efla grunngildin og áherslan var á raunverulegan auð -ekki tölur á blaði og gerviþarfir.
Hugurinn er á fullu eftir þennan fund. Mig langar að hafa áhrif. En er svo bara lítið peð.
Gæti sagt svo miklu miklu meira en ætla að nota orkuna í núið -það þarf víst að þrífa íbúðina og klára verkefni. Þetta venjulega líf sem ég reyni að lifa á milli þess ég svíf meðal skýjanna.
Takk þið maurar, þetta var vert framtak. Ég hef fulla trú á að þetta muni skila sér til samfélagsins.
p.s. Ég fór í puttastríð við Rannveigu Rist. Það var gaman. Hún er með lengri þumla en ég en ég var með lengri neglur- held ég hafi jafnvel meitt hana í lófana.