Is someone a builder because he is educated ?
Ég hef mikið velt fyrir mér menntun undanfarið -tilgangi hennar og skilningi okkar á henni. Í dag er það orðin krafa fyrir öruggri vinnu að þú hafir gráðu. B.Sc/B.A gráða er lágmark en helst þarftu eitt stykki Mastersgráðu og jafnvel Doktorsgráðu, þó á Íslandi sé það ekki svo sterk krafa enn í dag.
Þessar gráður segja til um að þú hafir eytt svo og svo mörgum árum á skólabekk. Þessar gráður segja ekkert til um hvað þú lærðir á þessum tíma heldur þurftir þú að standast ákveðin lágmörk sem oftar en ekki er hægt að komast í gegnum með algjörri grunnþekkingu á efninu.
Ég hef stundum velt fyrir mér virði þesskonar náms. Í verkfræðináminu sem ég stunda munum við vera ca. 40 sem útskrifumst næsta vor. Þrátt fyrir sama nám undangengin 3 ár mun EKKERT okkar hafa nákvæmlega sama grunn. Við höfum ólík áhugasvið, leggjum mismunandi áherslu á mismunandi þætti í náminu, við höfum ólíka karaktera og leitum inn á mismunandi svið á vinnumarkaðinn á sumrin til að öðlast reynslu.
Það sem við lærum í B.Sc náminu í verkfræði er að mínu viti aðeins ákveðinn hugsunarháttur og vinnubrögð. Ég geri ekki sérstaklega ráð fyrir að nota tölulega greiningu eða vitneskju mína um runur og raðir -allavega ekki miðað við þá átt sem ég stefni í. Eðlisfræðin, sem mér þykir einna leiðinlegust, mun aðeins gagnast mér sem almenn þekking og ég sé ekki enn tilganginn í að velja ,,praktísk fög” eins og varmafræði eða burðarþolsfræði ,,af því að það er svo verkfræðilegt”. Áhugasviðið liggur einfaldlega ekki þar og því ætti ég að eyða heilmiklum tíma í að sitja kúrs sem ég mun aðeins leggja stund á til að fá tölu á blað ? Og gera svo ekkert við það !
Einu sinni hugsaði ég mikið í hentugleika. Ég fór á náttúrufræðibraut í MA til að allar dyr stæðu mér opnar. Það kom sér reyndar vel. Ég valdi verkfræðinámið af því að það býður upp á svo marga möguleika -sem er satt og ég er hæstánægð með það val. Hins vegar liggur áhugasviðið svo víða að ég væri eflaust ekkert óánægðari hefði ég farið að læra heimspeki, íþróttafræði, stærðfræði, sjúkraþjálfun eða mannfræði. Og þó. Erfitt að segja.
Satt að segja hef ég mjög lítinn áhuga á að vinna sem típískur verkfræðingur. Í rauninni hef ég lítinn áhuga yfir höfuð að eiga mér ævistarf og ég get á engan hátt séð fyrir hvar ég muni starfa í framtíðinni. Og ég stórefast um að það sem ég “verði” muni eitthvað tengjast því sem ég gerði í þeim stofnunum sem kenna sig við menntun.
Ég var í tíma um daginn með krökkum alls staðar að úr heimunum. Við fengum þá spurningu hvar við vildum vinna að loknu námi. Margir nefndu Google, einhverjir Nasa, kannski Ericsson eða Volvo. Aðrir höfðu hug á að vinna við einhver smærri vel stæð fyriræki í þeirra eigin heimalandi. Mér fannst ég pínu lonely að vera sú eina sem vildi reka eigið verkefni/fyrirtæki. En það eru kannski flestir skynsamari en svo að hafa óljósa háleita drauma..
—-
Órúlegt hvað ég fer að skrifa í hringi þegar hugurinn fer af stað. Pointið er þó að gráða er svo langt frá því að vera það sama og gráða. Það er svo margt sem spilar inn í en er erfitt að meta. Því finnst mér svo grátlegt þegar fólk velur sér nám sem það hefur engan áhuga á að læra í því skyni að þéna meiri peninga eða öðlast einhvers konar virðingu. Þetta er kannski gallinn við íslenska menntakerfið -að menntun sé ekki metin jafnt og að bóknámi sé gert meira undir höfði en verknámi. Hversu miklu betur værum við stödd ef þeim handlögnu væri strax beint inn á það svið að öðlast frekari reynslu í verknámi heldur en að nudda þeim upp úr bókalestri ? Eða þeim uppáfinningasömu væri leyft að njóta sín í skapandi aðstöðu í stað þess að sitja kyrr allan daginn og hafa hægt um sig ? Og að kláru stærðfræðiséníin fengju jákvæða athygli fyrir hæfileika sinn í staðinn fyrir nördastimpilinn sem oft vill fylgja.
Fordómarnir í menntakerfinu eru enn til staðar og þeir þurfa að víkja fyrir opnu hugarfari gagnvart fjölbreytni í námi sem hentar ólíkum einstaklingum. Eða einsog Lisa, mamma strákanna sem ég passa hér og director of ITC hjá FLIR sagði í viðtali sem við tókum við hana í vikunni:
“I ask, is someone a builder because he is educated? No! People who are constantly looking are.”
Sammála sammála! =)
Kristín Lilja
september 26, 2010 at 8:51 pm