Daglegt líf


Þá eru prófin búin þessa önnina og ég orðin 30% verkfræðingur, en ég geri ráð fyrir að ná öllum prófunum.

Hef þó ekki lyst á bloggi eftir stöðugt glóserí undanfarið og greinaskrif, en mín fyrsta formlega grein var að birtast á vef Íslandsbanka  í dag. Hana má finna hér. Á reyndar meiri texta þarna inni, s.s um högun fjármála á námsárunum og eftir þau, hugtakalista o.fl. en þetta er fyrsta greinin sem kemur 100% frá mér.

Nú tekur bara við jóladútl og snyrting (enda veitir ekki af eftir prófljótuna). Kortagerð (vonandi), bakstur, heimsóknir, spil, Selfoss og sveitin. Já og Háskólablaðið. Jafnvel smá lögfræðilestur og gerð viðskiptaáætlunar.

Semsagt, skemmtilegir tímar framundan..

Á morgun er síðasti kennsludagur. Fer aðeins í tvöfaldan stærðfræðidæmatíma, svo það er samasem ekkert eftir. Síðustu skil eru annaðkvöld -8% tölfræðiverkefni sem ég er komin langt með.

Svo byrjar skipulagningin !

Ætla að reyna að koma þessu hér niður á ,,blað” til að fá smá heildaryfirsýn. Nokkurs konar to-do listi..

Fyrir miðnætti miðvikudaginn 25. nóvember:
1. Klára að hafa samband við alla aðila v.greinar fyrir Háskólablaðið svo ég verði komin með öll gögn eftir próf og geti skilað öllu af mér strax í vikunni eftir próf.
2. Skrifa 2-4 fjármálagreinar svo ég hafi það tilbúið upp á skil í prófatörninni.
3. Klára og skila tölfræðiverkefni.
4. Ljósrita og prenta út allt efni sem kemur mér að gagni fyrir próflesturinn.
5. Hlaupaæfing kl. 17 á mið og lyfta strax á eftir.

Fimmtudagur 26. nóv -fyrsti í upplestri.
1. STÆRÐFRÆÐI. Fara yfir öll heimadæmi vetrarins og gera drög að formúlublaði.
2. Æfing kl. 6:30 -lyfta.

Föstudagur 27.nóv -dagur tvö
1. STÆRÐFRÆÐI -sé það á fim. hvað nauðsynlegt er að fara betur í.
2. Spinning kl 17.35 +lyfta

Laugardagur 28. nóv -dagur þrjú
1. TÖLFRÆÐI
2. Spinning kl. 10:30
3. 2ja ára afmæli hjá Karenar Margrétar

Sunnudagur 29. nóv -dagur 4
1. TÖLFRÆÐI

Mánudagur- miðvikudags verða metnir eftir gengi hingað til.

Fimmtudagur 3. desember -fyrsta prófið.
TÖLFRÆÐI

Svo nú er bara að bretta upp ermarnar. Hef tröllatrú á þessu þótt ég eigi langt í land og þurfi að liggja virkilega yfir bókunum til að ná góðu gengi.

Ætla einnig að vera dugleg að æfa næstu vikurnar sem gefur vonandi extra púst og léttir á stressi.

..svo er kannski vert að minnast á að lömunin er (löngu) horfin útlitslega auk þess sem ég finn samasem ekkert fyrir henni, aðeins smá dofa í kinninni en ekkert sem hægt er að tala um.  Ég er byrjuð að trappa niður sterainntökuna og mun að öllum líkindum vera orðin laus við öll lyf í byrjun næstu viku.

Þetta er frekar sundurleit færsla til lestrar en gerði sitt gagn. Ég er komin með nokkur skýrar útlínur fyrir næstu daga.

Kvöldið í kvöld er ýsa og soðnar kartöflur. Tölfræði og kertaljós.

Eftir aðeins 4 daga þá er ég orðin bara nokkuð eðlileg. Augað er komið í lag og það varð aldrei svo slæmt að ég gat ekki lokað því (mér var ráðlagt að kaupa mér lepp því augað átti á hættu á að ofþorna, fegin að svo varð ekki). Vinstra munnvikið er að komast í rétta hæð og ég er komin með ca. 90% tilfinningu í kinnina. Hef mikla trú á að þetta verði alveg farið eftir helgi, hverju sem það má þakka.

Ég er þó enn að taka inn þessa lyfjasúpu, sem mér er mjög illa við. En ég þorði ekki öðru en að segja já og amen við doksa í þetta sinn. Þetta eru 10 steratöflur á dag og 6 af e-ju herpeslyfi. Tek þetta inn 2 daga í vibót og trappa það svo niður.

En ekki er svo með öllu illt að björtu hliðarnar séu engar.  Þetta getur nefnilega verið frekar fyndið. Ég fór í spinning í gærkvöldi og á þeim tíma var ég ansi dofin í kinnunum og tungunni. Þegar við tókum spretti fannst mér vinstri hlið andlitsins vera að fjúka af og ég gerði mér enga grein fyrir því hvort droparnir ég gólfinu voru sviti eða slef. Geðslegt, ég veit.

Ég er semsagt á góðum batavegi og hef engar áhyggjur. Að prófunum undanskildum þ.e.a.s.

…og takk fyrir góðar kveðjur !

Hef hitt svo mikið af áhugaverðu fólki í vikunni -og enn er bara miðvikudagur !

Var að koma heim af H-deginum á Austur þar sem fólki deildi hugmyndum og fékk feedback á þær. Margt mjög skemmtilegt, áhugavert og gagnlegt sem kom fram. Alltaf er maður að sækja sér fróðleik -ná sér í verkfæri í verkfæratöskuna sem síðar meir verður nýtt til að byggja eitthvað stórkostlegt. Já, ég er alltaf svo stórhuga eftir svona fundi/ráðstefnur/samkomur.

Þessi vika hefur af þessum sökum farið minna í lærdóm. Sem er frekar slæmt þar sem verkefnahrúgarn er nokkuð há. Skil á rekstrargreiningarverkefni á morgun, próf í fjármálum á föstudag + skil á tölfræðiverkefni, skil á stærðfræði-og rekstrargreiningarverkefni á mánudag auk ritgerðar í stjórnun og svo er stórt skilaverkefni í tölfræði á miðvikudag. Það er því augljóst í hvað helgin fer !

Og fyrst ég er að fara yfir víðan völl þá gekk hlaupaæfing 2 ágætlega í dag þrátt fyrir beinhimnubólgu og smávægileg eymsli í vinstra hné.

Og fyrst ég er farin að kvarta yfir líkamlegum einkennum þá hefur vinstra augnlokið (eða svæði milli augabrúnar og augnloks) á mér sigið í dag, ástæðan er ekki ljós en ég lýsi eftir hugmyndum.. Er ekki alveg sama með þetta. Bæði vegna þess að ég lít út einsog Quasimodo og ég finn ekkert um sigin augnlok á google nema e-rja taugasjúkdóma. Finnst það pínu scary.

Quote dagsins eru komment síðan í kvöld:

,,Árangur er 1% innblástur og 99% útblástur”
                …as in inspiration and outspiration
                …as in hugmyndaauðgi og vinnusemi

,,Hámark heimskunnar er að skipta aldrei um skoðun”

Ég elska svona daga þegar ég geri margt áhugavert. Reyndar hefði ég mátt skrifa meira í ritgerð sem þarf að skila eftir helgi, enda verkefnaflóðið gífurlegt og best að halda áætlun, en það vegur þó ekki svo mikið..

Ég byrjaði daginn kl. 6.45 á að fara í ræktina -missti þó af spinning. Borðaði hafragraut og lýsi í morgunmat, kúrði smá. Fór á áhugaverðan og skemmtilegan fund sem varðar nýsköpunargreinina okkar, fór í eins konar atvinnuviðtal, hlustaði á kvenfrumkvöðla, mætti í stærð- og tölfræðitíma auk þess að hlusta á kvenverkfræðinga segja sína sögu í lok dagsins. Kom svo heim, kveikti á kertum og borðaði sörur (sem munu eflaust ekki endast út vikuna). Reyndi að læra en kom engu í verk.

Þess er jafnvel vert að minnast að ég fór á fyrstu hlaupaæfinguna mína í gær. Ég lifði hana af EN hún var erfið. Fer að öllum líkindum aftur á morgun þrátt fyrir bæði harðsperrur og beinhimnubólgu.

Er annars búin að hugsa mikið um það sem kom fram á þjóðfundinum um helgina. Upp komu mörg merkingarþrungin orð þegar rætt var um gildi landsins. T.d. þetta:

UPPLÝST VIRÐING

Hvað finnst ykkur um þessi orð ? Hvaða skilning leggið þið í þau ?

Þjóðfundurinn var meiriháttar ! Til hamingju Íslendingar !

Hugmyndaauðgi, samstaða, kraftur, jákvæðni og auðmýkt. Og svo miklu meira.

Stóðst algjörlega himinháar væntingar. Málefnalegar umræður þar sem fólk stefnir að sama markmiði -betra Íslandi. Var á borði með fjárfesti, þingmanni, forstjóra, bónda, hjúkku og menntaskólanema. Skoðanir einstaklingsins fengu að njóta sín óháð stöðu og starfstitli. Allir voru sammála um að efla grunngildin og áherslan var á raunverulegan auð -ekki tölur á blaði og gerviþarfir.

Hugurinn er á fullu eftir þennan fund. Mig langar að hafa áhrif. En er svo bara lítið peð.

Gæti sagt svo miklu miklu meira en ætla að nota orkuna í núið -það þarf víst að þrífa íbúðina og klára verkefni. Þetta venjulega líf sem ég reyni að lifa á milli þess ég svíf meðal skýjanna.

Takk þið maurar, þetta var vert framtak. Ég hef fulla trú á að þetta muni skila sér til samfélagsins.

p.s. Ég fór í puttastríð við Rannveigu Rist. Það var gaman. Hún er með lengri þumla en ég en ég var með lengri neglur- held ég hafi jafnvel meitt hana í lófana.

Föstudagsmorgunn. 13. nóvember.

Sef lengur en venjulega. Hafragrautur, lýsi og ávaxtasafi. Fengi mér líklega kaffi ef ég drykki heimatilbúið -er aðeins búin að læra á macciatto með extra mjólk og karamellusírópi. Set í vél. Hlusta á gamlar ballöður af safndiski sem ég keypti á götumarkaði í Brasilíu. Og dembi mér svo í verkefnahrúguna, vonast til að klára öll verkefni vikunnar í dag.

Spinning í kvöld.

Mér finnst ég hafa allan heimsins tíma þegar ég er ein heima.

Þá er fleira nýtt á dagskrá. Ég elska nýtt.

1. Er búin að skrá mig í hlaupahóp sem kallast Afrekshópur. Ég er strax farin að svitna, þetta nafn gerir mig hrædda. Mér finnst ég ekki eiga heima í afrekshóp. En vonandi fær þetta mig til að fara að mæta markvisst á æfingar.

2. Við frænkurnar ætlum að baka sörur núna næsta sunnudag. Ég hef kannski borðað 15 sörur yfir ævina. Ég hef aldrei bakað sörur eða séð þær bakaðar. Þetta verður fróðlegt.

Ég fór ekki í ræktina í dag og ekki í gær og ekki undanfarna daga af því ég er letingi (þess vegna fór ég í hlaupahóp -ég píni sjálfa mig). Svo er pizzafundur seinnipartinn og kökuboð í kvöld (og þetta er líka ástæða fyrir því að ég fór í hlaupahóp -ég verð að fara að hreyfa mig massívt!).

Í dagsins önn er það ekki efst á lista að skrifa færslu. Allavega ekki þessa stundina.

En ég er allavega laus við svínó og það eru aðeins 3 kennsluvikur eftir. Ég veit fátt. Ég verð að reyna að halda mér við efnið..

Föstudagskvöldið síðasta fór ég heim með svínaflensu. Það er mesti viðbjóður sem hefur hent mig í mörg ár. Hiti, beinverkir, særindi í öndunarvegi, lystarleysi, höfuðverkur, verkir í augum og eyrum, bakverkir, hósti og hnerri. Einnig ógleði en hef þó aldrei getað kastað upp vegna særinda í hálsi og megn höfuðverkur af áreynslunni sem því fylgir.

Í dag er dagur fimm og ég er öll að koma til. Það “eina” sem angrar mig enn er hóstinn, ógleðin, særindin í hálsinum og lystarleysið -auk þess sem bragð -og lyktarskynið er horfið. Síðustu fimm daga hef ég borðað jafn mikið og ég geri venjulega part úr degi og því liggur það ljóst við að ég hef varla orku í að koma mér á milli herbergja. En þetta fer nú allt að koma, ég trúi ekki öðru.

Ef ég á að draga fram kosti síðustu daga þá hef ég náð að sofa meira en venjulega og ég hef ekki þurft að elda mat né þvo þvott alla þessa daga.

..æ, annars er ég orðin þreytt á þessari inni-og einveru. Verkefnalistinn er orðinn svo langur að ég sé ekki fyrir endann á honum.

Búhú og vælivæl. Þá er það búið.

Næsta síða »