Ferðalög


Við Grímsdætur að skemmta okkur

Síðasta vor fór ég í sauðburð og fékk að velja mér lamb sem ég tók á móti. Ég valdi mér ógurlega fallegt svart lamb með hvítum stjörnum í framan. Ég held ég sé ekki að ljúga þegar ég segi að mér einni fannst það fallegt -þetta þykir víst ekki fallegur sauðalitur af þeim sem þekkja til. En mér er sama, við litla lambið bonduðum svo vel að það kom ekkert annað til greina. Það m.a.s pissaði á mig, það hlaut að vera sign ?

..og talandi um sign. Eftir sauðburðinn þegar farið var að merkja lömbin var komist að því að lambið er undan hrútnum Grími. Eina lambið (ásamt “systkini” sínu) sem er undan honum. Við erum því báðar Grímsdætur. En það er ekki nóg með það. Í réttunum núna um helgina tók ég eftir því að lamb Grímsdóttir er nr. 663 (líkurnar á því númeri eru ca. 1/1300) -en 663 var einmitt þvottanúmerið mitt á vistinni í MA. Öll fötin mín voru merkt þessu númeri.  Tilviljun ?

En ég á enn eftir að finna nafn handa litlu Grímsdóttur sem hæfir vel. Hugmyndir ?

Eftir góða helgi í steikjandi sól og hita er ég komin aftur í suddann í borginni.

Það var ævintýri að komast norður í sveit en ég þurfti að bíða lengi niðri á flugvelli eftir að komast í hopp til Akureyrar, þar var ég sótt af og ferjuð yfir í Leiru af góðhjartaðri stelpu sem ég þjálfaði í denn og þaðan húkkaði ég mér far norður í Þingeyjarsýslu. Reyndar var ég svo heppin að hitta á fólk frá Húsavík sem ég þekkti og ók mér heim að dyrum. Heimleiðin var þó öllu auðveldari þar sem við Jón Ágúst fengum að sitja í hjá frændfólki hans.

Í stuttu máli þá hagaði ég mér ekki einsog vön í réttunum -en ég fann þó lambið mitt og nokkur önnur. Við fórum bæði í Skógarrétt í Reykjahverfi og Hraunsrétt í Aðaldal og sóttum þangað kindurnar Skarðaborgar (18Þ4). Á laugardagskvöld var haldið “réttarball” sem var sá allra slakasti hittingur sem ég hef farið á. Lélegur trúbbi og þreyttir sveitingar. Kind of funny..

Svo fæddust líka 5 hvolpar. Það er allt að gerast í sveitinni.

Í heildina var þetta góð skemmtun og ég er ekki frá því að ég skelli mér aftur að ári !

Það eru vissulega fréttir að ég er að fara í fyrsta skipti á ævinni í réttir. Er búin að henda ullarpeysu, bómullarsokkabuxum og regnjakka on’í tösku. Meira veit ég ekki hvað á að taka með ? Þetta verður léttur farangur, enda eins gott því ég veit ekki enn hvernig ég ætla að komast milli Akureyrar og Þingeyjasýslu..

Þeir sem verða þarna á ferðinni í kvöld, vonandi aumkið þið ykkur yfir puttalingnum sem reynir að húkka sér far..

Við Jón Ágúst skelltum okkur austur á Höfn um helgina. Þar átti að vera Humarhátíð en mér fannst fara minna fyrir hverskyns hátíðarhöldun. Veðrið var heldur ekki að sýna sínar bestu hliðar. En þrátt fyrir það var gaman að koma í gamla bæinn sinn og upplifa raunveruleikann. Í minningunni var Höfn stór bær með gríðarlegum vegalengdum. Ég var lítil stelpa í stórum heimi.

Í öðrum fréttum þá eru 2 vikur liðnar af 10 vikna áskoruninni. Mæling nr. 2 var að klárast og mínar niðurstöður eru hreint ekki til að monta sig yfir. Stelpurnar standa sig samt vel -og mun betur en ég reyndar. Nú þarf ÉG að taka mig á !
Alls hafa fokið 2.1 kg, fituprósentan hefur lækkað um 3.3% og 12 cm horfið af okkur fjórum í heildina.

Ég reyni líka að vinna einsog ég mögulega get. Er að vinna 10-11 tíma á dag svo dagarnir eru frekar einhæfir: hjóla í vinnuna, vinn, hjóla í ræktina, æfi, borða og sef.

Ætla núna að drífa mig og taka brennslu í ræktinni yfir So you think you can dance. Ekki veitir af.. Ég ætla að sýna góðan árangur í næstu mælingu !

…ætla að enda þetta á smá syrpu sem við tókum um helgina á leiðinni austur. Vorum með smá þema: hopp á klukkutíma fresti. Myndirnar eru teknar (í þessari röð) við Seljalandsfoss, Skógarfoss, Lakagígahraun, Skeiðarársand, Jökulsárlón og undir rótum Vatnajökuls.

Sumar 2009 165 Sumar 2009 179 Sumar 2009 187 
Seljalandsfoss                 Skógarfoss                     Lakagígahraun

Sumar 2009 196 Sumar 2009 216 Sumar 2009 220
Skeiðarársandur          Jökulsárlón                    Klettar við rætur Vatnajökuls

Mig langar svo í skiptinám. Ég er bara að hugsa um skiptinám og það kemst ekkert annað að. Hvert ég geti farið, hvernig ég kem ferlinu af stað og hvenær ég eigi að fara.

Á semsagt mjög erfitt með að einbeita mér að því að læra fyrir prófið sem er á morgun. Og ég kann fátt. Sjitt..

Fiskidagurinn mikli á Dalvik

Við stelpurnar, ég, mamma og amma, brugðum undir okkur betri fætinum um helgina og skruppum norður yfir heiðar. Eyddum laugardeginum að mestu á Fiskideginum á Dalvík en undir kvöldið keyrðum við austur í Þingeyjasýslu og gistum í sveitinni hjá Jóni Ágústi. Ég fór þar ásamt þeim feðgum, þ.e. Jóni, pabba hans og þremur bræðrum, í smá jeppaferð upp á heiði í átt að Þeystareykjum.
Á sunnudeginum hófum við daginn í berjamó upp í heiði. Það var þó lítið um bláber en þeim mun meira af krækiberjum, svo ég er vel sett með ber í morgungrautinn næstu vikur. Eftir hádegi þeystum við norður í Eyjafjörð þar sem þær mæðgur fóru á handverkssýninguna í Hrafnagili (ég nennti engan veginn) auk sem þær kíktu í jólahúsið (sem ég nennti ekki að skoða heldur). Brynjuferð er að sjálfsögðu skylda og einnig náði ég aðeins að hitta á Sunnu vinkonu á meðan þær eldri kíktu í heimsókn til Önnu Maríu, systur ömmu.
Við vorum ekki komin til baka í Borgarnes fyrr en eftir miðnætti og eftir kvöldkaffi á Borgarbrautinni ók ég í bæinn og skreið þreytt upp í rúm um klukkan tvö.

Nú hef ég það kósý heima að dunda. Svo gott að fá smá frí.