Hausinn fór á flug á meðan ég maraði í hálfu kafi í baði.
Er búin að fá marga pósta frá ólíklegasta fólki sem fylgist með hér á síðunni og þá sérstaklega þegar ég skrifa “heiluspistlana”. Mér finnst virkilega gaman hvað margir hafa áhuga á heilsusamlegum lífsstíl og eru að vinna í þeim málum. En er ekki svolítið leiðinlegt að gera þetta hver í sínu horni ? Þetta er nefnilega oft erfiðara yfir sumartímann -einmitt þegar það ætti að vera skemmtilegast. Veðrið er svo gott að maður getur hámarkað útivistina.
Var að láta mér detta í hug að sameina þá sem hafa áhuga í 12 vikna átakshóp. Áskorun á okkur sjálf að ná ákveðnum markmiðum innan þess tímaramma. Hver æfir á sínum stað eftir hentugleika en svo hittumst við aðra hverja viku og höfum ástandsmælingu (vigtun, ummál, fituprósenta). Þetta myndi þá ganga þannig fyrir sig:
1. Þeir sem vilja gera allt sjálfir
Þú sendir mér póst og skráir þig. Ég sendi þér til baka spurningalista um þitt heilsufar og markmið.
Þá mætiru í upphafi í mælingu og svo aðra hverja viku, ásamt öllum hópnum og förum svo t.d. öll saman í sund, útihlaup, fjallgöngu eða annað.
Kostar ekkert.
2. Þeir sem vilja aðstoð
Þú sendir mér póst og skráir þig. Ég sendi þér til baka spurningalista um þitt heilsufar og markmið, sem þú svo skilar mér til baka.
Ég bý til prógram sem hentar þér og þínum markmiðum gegn vægu gjaldi (ca. 3000 kr. p/mánuð) og get einnig farið vikulega yfir matardagbók (5000 kr fyrir bæði).
Þá mætiru í upphafi í mælingu og svo aðra hverja viku, ásamt öllum hópnum og förum t.d. öll saman í sund, útihlaup, fjallgöngu eða annað.
Kostar 3-5000 kr. p/mánuð.
Þetta hentar öllum stelpum sem vilja ná árangri í sumar hvar sem þær eru staddar á landinu. Svona hópur stuðlar að aðhaldi og markvissum æfingum. Þetta hentar líka öllum þeim sem vilja ná árangri en tíma ekki/hafa ekki efni á einkaþjálfara.
Mér finnst einstaklega skemmtilegt að geta aðstoða aðra við að ná árangri og vil því ekki vera að taka fyrir þetta nema rétt minimum til að covera vinnuna, ef margir hafa áhuga á að taka þátt.
Ekki má svo gleyma hvað þetta verður ÓTRÚLEGA SKEMMTILEGT !
Sumarið ER tíminn ! Látum þetta verða skemmtileg, heilbrigt og líflegt sumar !
Einnig gæti verið möguleiki, til að auka hvatninguna, að leggja undir t.d. 5000 kr. Það myndi þá ganga þannig fyrir sig að þegar þú skráir þig þá legguru inn 5000 kr. og ef þú nærð markmiðum þínum (verða að vera háleit en raunhæf) þá færðu peninginn til baka -annars ekki !
Hvað segiði, er þetta e-ð sem ykkur líst á ? Ef þið hafið áhuga eða spurningar getið þið komið þeim til skila í gegnum komment eða á kristingrims@gmail.com.
Hlakka til að heyra frá ykkur !