Þá er liðin vika and I feel good. Mætti 8x í ræktina (ef með er talið útihlaupið á þriðjudagsnóttina) og mesta óhollustan var osturinn á grænmetis speltpizzunni sem ég borðaði á laugardagskvöldið. Ég bíð spennt eftir næstu æfingu, þó ég liggi nú uppí sófa undir teppi að “afslappa” fæturna sem eru algjörlega orkulausir.

Prófin fara svo að skella á, en fyrsta prófið verður á miðvikudaginn eftir viku. Svo koma þau eitt af öðru í kringum páskana. Geri því ráð fyrir að verja mestum hluta páskafrísins hér í höfuðborginni lærandi. Sem er ágætt -þá eru engin páskaegg að freista mín. Hef tekið þá ákvörðun að geyma páskaeggjaát þangað til eftir “mánuðinn” og taka þá einn nammidag og halda svo áfram.

Quote mánaðarins er eftirfarandi:
“The key to happiness is having dreams. The key to success is making your dreams come true.”

Lélegar afsakanir koma stundum í veg fyrir árangur. Viljinn þarf bara að vera einbeittur og ekki láta freistast, því það eru og munu alltaf verða freistingar á veginum. En freistingarnar uppfylla aðeins augnabliksnautn og fylla mann svo samviskubiti. Árangurinn er langtíma. Þangað ætla ég að komast..