Heimilið


Síðasta posjónin af naan brauðum er inni í ofni. Byrjaði á að grilla þau í Gogga, en mér fannst þau of klesst. Er líka búin að baka bananaorkubrauð og hafraklatta auk þess að skella í kjúklingasalat sem var í hádegismat. Alveg tilvalið að nota mánudagsmorgun í bakstur þegar nánast allir tímar dagsins falla niður vegna ferðalaga kennara.

Þessi bakstur er þó ekki tilkominn af eintómum dugnaði. Hér á þessum bæ er allt gert for a reason, en í dag byrjaði formlega “heilsukeppni” okkar Jóns. Til að detta ekki í óhollustuna á löngum skóladögum (líkt og gerst hefur undanfarið með 1/2 kg af súkkulaðirúsínum á dag) mætum við í skólann með heimatilbúið, hollt og orkumikið nesti. Ísskápurinn er fullur af ávöxtum, skyri og kjúkling -og svo verða hafraklattar og orkubrauð smá uppbót.

“Heilsukeppnin” er líka komin til af gleðilegri ástæðu. Jón Ágúst hefur loks keypt sér árskort í ræktina og nú munið þið geta séð okkur bæði sveitt og sælleg í World Class. Þó líklega aldrei á sama tíma -við getum jú ekki sést hvort með öðru. En Jón er ekki þekktur fyrir að gera neitt tilgangslaust svo markið er sett hátt.
Ég stefni á að losna við 6 kg af fitu fyrir 20. desember og Jón Ágúst ætlar að vera búinn að bæta á sig 6 kg af vöðvamassa fyrir sama tíma (við erum svo mikið balance-fólk, að við viljum halda heildarþyngd okkar stögugri). Uppá ísskáp er komið blað með markmiðunum, bæði í orðum og myndum (!) og tafla þar sem árangurinn verður merktur inná vikulega. Einsog í öllum alvöru keppni eru verðlaun fyrir þann sem vinnur/nær betri árangri og þau eru ekki af verri endanum: Út að borða í Perluna í boði taparans + 1 klst í nudd.

Þið megið veðja á hvor vinnur !

 Var svo búin að lofa að skella hér inn uppskriftinni að bananabrauðinu. Þetta er búið að vera uppáhaldsuppskriftin mín lengi. Fékk hana í ræktinni minni úti í Brasil með því loforði að ég léti hana ekki fara lengra. Þar með svík ég það loforð, enda finnst mér að allir megi njóta hennar. Og þó, því ég finn ekki uppskriftabókina. Læt ykkur því fá hana eftir minni, en svona gerði ég brauðið í morgun..

Bananaorkubrauð

1 dl spelt
1 dl klíð (má líka vera spelt)
1 1/2 dl púðursykur
1 msk lyftiduft
2 msk kanill (eða bara dass)
1 egg
1/2 dl mjólk
1/2 dl olía
3 bananar

Þurrefnunum blandað saman. Síðan er olíu, mjólk og eggi (má sleppa, en gerir léttara) bætt við. Hrært vel saman, á að vera frekar blautt. 2/3 af deiginu sett í mót (ég nota svona ílangt brauðmót, en hægt að nota hvað sem er) og bananarnir skornir þvert/langsum í og tvennt/þrennt og settir ofan á degið. Restin af deiginu fer yfir.
Skellt inní ofn á 180° í ca. 50 mín.

Vola og verði ykkur að góðu..

Eftir mjög annasama viku í skólanum, smá stúss vegna íbúðarinnar og lélegt mataræði vegna ísskápsleysis er gott að horfa fram á heila helgi. Helgi þar sem maður þarf ekki að skila neinu verkefni, ekki að mæta í neitt próf og fær að borða góðan mat beint úr sínum eigin ísskáp. Ég sé þó fram á að læra alveg helling -en það verður bara kósý fílingur hér heima í litla kotinu okkar sem er orðið svo huggó.

Við erum semsagt flutt og okkur líður mjög vel hér í Lindunum. Íbúðin er töluvert minni en sú sem við vorum í en vegur stærðina upp í kósýheitum. Við höfum allt sem við þurfum; 1 svefnherbergi, 1 baðherbergi, smá eldhúshorn, smá sjónvarpsrými, þvottahús og litla kytru til að læra í. Erum búin hengja upp á veggi í vikunni, settum upp rimlagardínur í dag (og ég skemmti mér við að þurrka af þeim) og svo fáum við ísskápinn okkar (langþráða) á eftir. 

Mun setja inn myndir þegar allt verður orðið einsog það á að vera. Verið velkomin í heimsókn í litla kotið okkar. Heimilisfangið er Ljósalind 2.

Þá höfum við skrifað undir og fengið lyklana að nýrri íbúð og þá er bara að byrja að flytja smátt og smátt. Stóri flutningadagurinn verður á laugardaginn og við þiggjum alla góða aðstoð, þar sem húsgögnin okkar eru ekki alveg þau léttustu. En hver elskar ekki smá auka líkamsrækt ? Kannski við sláum bara tvær flugur í einu höggi í öllu þessu tilstandi og þrífum sameigninga í leiðinni, en við erum svo heppin að eiga þrifin fyrstu vikuna eftir að við flytjum inn.
Leigusalarnir okkar eru frábærir og vilja allt fyrir okkur gera. Þau eru svona ekta “amma og afi”, góðleg og hlý.

Þar sem við erum að færa okkur í minni íbúð þá kemst ekki allt dótið okkar fyrir (believe it or not, við eigum orðið OF MIKIÐ dót) og ætlum að reyna að selja a.m.k eldhúsborðið okkar. Einnig ef einhver á góðan horn/tungusófa og vill skipta á góðu leðursófasetti, þá myndi það henta okkur vel svo plássið nýtist betur.

Þetta er það helsta. Það er spenningur í mér og ég hef ekki verið dugleg að mæta i ræktina í vikunni, þótt það haldist ekkert endilega í hendur. Og þó. Ég vil bara vera að pakka niður og skipuleggja og endurraða í huganum.

En hér er borðið sem er til sölu:
eldhusborc3b0

Og hér sést aðeins í leðursófann góða úr GP-húsgögnum. Alveg einstaklega góður og gott að sofa í honum. Synd að láta hann fara.
(þarna sjáið þið líka hluta af massívu húsgögnunum sem þarf að bera..)
ibud-11

Núna, rúmum mánuði eftir að við fluttum hingað í Vættaborgirnar, erum við loksins búin að koma okkur skikkanlega fyrir. Þó á eftir að snattast í hinum ýmsu smáatriðum, s.s. hengja meira upp á tómlega veggina, fá eldhússtóla (það gekk ekki upp um daginn) o.fl. Það er þó ekkert sem skiptir höfuðmáli og okkur líður svo vel hérna einsog þetta er.
Ætla að setja inn nokkrar myndir af kotinu okkar svo þið getið séð hvernig við búum. Sérstaklega þó ætlað þeim sem búa utan höfuðborgarsvæðisins. Þið hin ættuð bara að kíkja í heimsókn..
Forstofan

Forstofan

Svefnherbergið

Svefnherbergið

Borðstofan

Borðstofan

Sjónvarpsskápurinn

Sjónvarpsskápurinn

Stofan

Stofan

Eldhúsið

Eldhúsið

Lærdómsherbergið

Lærdómsherbergið

Reyndar vantar myndir af þvottahúsinu, baðherberginu, svölunum og útsýninu. Að lokum vil ég líka setja inn mynd af bílnum okkar sem er enn til sölu, ef einhver skyldi hafa áhuga…?
Passat

Passat '99 til sölu