Hugsanir


         

Fyrir akkúrat ári síðan, 6. október 2007, var ég haugaskítug, notaði skítugt “ekki-vatns”klósett, borðaði einfaldan mat eldaðan yfir opnum eldi og gekk eftir lestarteinum í stað þess að taka lestina. Mér leið þrátt fyrir það mjög vel og hræðist því ekki þær aðstæður aftur. Þetta er bara hugarfar.

Komdu bara kreppa, það er ekkert sem þú getur eyðilagt fyrir mér.

       ,,Því hvað er ríkt fólk ?  Það er fólk sem hefur mikið í veltunni og á ekki neitt nema áhyggjurnar ef allt  væri upp gert, og fer útúr heiminum alveg nákvæmlega jafn snautt og hinir, að því undanskildu að það hefur haft meira af búksorgum, minna af sannri lífsgleði.”
Halldór Laxness. Sjálfstætt fólk.
(Rauðsmýrarmaddaman)

,,Ef maður vill stela í þjóðfélagi, þá verður að stela samkvæmt lögum; og helst að hafa tekið þátt í að semja lögin sjálfur.”
Halldór Laxness. Atómstöðin.
(Organistinn)

,,Til þess talar maður að leyna hugsun sinni.”
Halldór Laxness. Atómstöðin.

,,Það er góður siður að trúa aldrei nema helmingnum af því sem manni er sagt og skifta sér ekki af afgángnum. En fara aldrei eftir öðru en því sem maður segir sér sjálfur.”
Halldór Laxness. Sjálfstætt fólk.

,,Þegar öllu er á botninn hvolft þá fer allt einhvernveginn, þótt margur efist um það á tímabili.”
Halldór Laxness. Sjálfstætt fólk.

,,Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.”
Halldór Laxness.

Laxness hitti oftar en ekki naglann á höfuðið. Orð hans eiga jafn vel í dag og þau áttu eflaust við þá.

Hugsið jákvætt í kreppunni !

Vog
Þér finnst þú loksins reiðubúinn til að tjá þarfir þínar og pælingar fyrir maka þínum. Vertu heiðarlegur og beinskeittur um mál sem hefur legið þungt á þér.

Fiskar
Þú ert opinn fyrir nýjum hugsunarhætti. Því skaltu ekki vera með hverjum sem er. Þú ert áhrifagjarn og of varnarlaus gagnvart heimskulegum ráðum.

…getur þetta bara verið tilviljun ?

                    
                     …hef ég ekkert breyst ?