Matur


…þá vil ég benda á eftirfarandi ummæli:

“Var að baka heilsuhafraklatta og bananorkubrauð… djöfulsins viðbjóður! Hafraklattarnir eru eins og gúmmiboltar og bananabrauðið svo væmið að ég kúgast. “
-Hildur Kristmunds á facebook.

Ég ber enga ábyrgð á ykkar mistökum í eldhúsinu né slæmum smekk ! Ennfremur vil ég benda á að ég dassa allt og smakka deigið, það er lykillinn..

Annars er mér nokkuð sama.

p.s. Fyndið að mynda-googla bananabrauð á bæði íslensku og portúgölsku. Leitarniðurstöður fyrir bananbrauð eru allar með bönunum stöppuðum við deigið en fyrir bolo de banana eru bananarnir yfirleidd sneiddir ofaná, einsog í uppskriftinni sem ég fékk frá Brasil. Skemmtilegur menningarmismunur. Mitt brauð lítur annars svipað út og þetta á myndinni -nema hvað ég nota öðruvísi mót og bananarnir eru sjaldnast svona fallega raðaðir.

Síðasta posjónin af naan brauðum er inni í ofni. Byrjaði á að grilla þau í Gogga, en mér fannst þau of klesst. Er líka búin að baka bananaorkubrauð og hafraklatta auk þess að skella í kjúklingasalat sem var í hádegismat. Alveg tilvalið að nota mánudagsmorgun í bakstur þegar nánast allir tímar dagsins falla niður vegna ferðalaga kennara.

Þessi bakstur er þó ekki tilkominn af eintómum dugnaði. Hér á þessum bæ er allt gert for a reason, en í dag byrjaði formlega “heilsukeppni” okkar Jóns. Til að detta ekki í óhollustuna á löngum skóladögum (líkt og gerst hefur undanfarið með 1/2 kg af súkkulaðirúsínum á dag) mætum við í skólann með heimatilbúið, hollt og orkumikið nesti. Ísskápurinn er fullur af ávöxtum, skyri og kjúkling -og svo verða hafraklattar og orkubrauð smá uppbót.

“Heilsukeppnin” er líka komin til af gleðilegri ástæðu. Jón Ágúst hefur loks keypt sér árskort í ræktina og nú munið þið geta séð okkur bæði sveitt og sælleg í World Class. Þó líklega aldrei á sama tíma -við getum jú ekki sést hvort með öðru. En Jón er ekki þekktur fyrir að gera neitt tilgangslaust svo markið er sett hátt.
Ég stefni á að losna við 6 kg af fitu fyrir 20. desember og Jón Ágúst ætlar að vera búinn að bæta á sig 6 kg af vöðvamassa fyrir sama tíma (við erum svo mikið balance-fólk, að við viljum halda heildarþyngd okkar stögugri). Uppá ísskáp er komið blað með markmiðunum, bæði í orðum og myndum (!) og tafla þar sem árangurinn verður merktur inná vikulega. Einsog í öllum alvöru keppni eru verðlaun fyrir þann sem vinnur/nær betri árangri og þau eru ekki af verri endanum: Út að borða í Perluna í boði taparans + 1 klst í nudd.

Þið megið veðja á hvor vinnur !

 Var svo búin að lofa að skella hér inn uppskriftinni að bananabrauðinu. Þetta er búið að vera uppáhaldsuppskriftin mín lengi. Fékk hana í ræktinni minni úti í Brasil með því loforði að ég léti hana ekki fara lengra. Þar með svík ég það loforð, enda finnst mér að allir megi njóta hennar. Og þó, því ég finn ekki uppskriftabókina. Læt ykkur því fá hana eftir minni, en svona gerði ég brauðið í morgun..

Bananaorkubrauð

1 dl spelt
1 dl klíð (má líka vera spelt)
1 1/2 dl púðursykur
1 msk lyftiduft
2 msk kanill (eða bara dass)
1 egg
1/2 dl mjólk
1/2 dl olía
3 bananar

Þurrefnunum blandað saman. Síðan er olíu, mjólk og eggi (má sleppa, en gerir léttara) bætt við. Hrært vel saman, á að vera frekar blautt. 2/3 af deiginu sett í mót (ég nota svona ílangt brauðmót, en hægt að nota hvað sem er) og bananarnir skornir þvert/langsum í og tvennt/þrennt og settir ofan á degið. Restin af deiginu fer yfir.
Skellt inní ofn á 180° í ca. 50 mín.

Vola og verði ykkur að góðu..

Eftir verkefnið okkar í Nýsköpun og stofnun fyrirtækja í fyrravor hef ég fengið gríðarlegan áhuga á eflingu íslensks landbúnaðar og tel að við eigum mikið inni. Samtökin Beint frá býli eru að gera góða hluti og vonandi eiga enn fleiri bændur eftir að taka þátt í því verkefni. Ég heyrði m.a.s af því í sumar að þegar væri búið að koma á fót verslun sem byggir á svipaðri hugmynd og okkar var -þ.e. “milliliðalaus sala” frá bónda til neytanda (nema hvað okkar hugmynd var svo miklu miklu meira, að sjálfsögðu.. ).

Þegar við unnum að Sveitinni, verkefninu okkar, þá hittum við m.a. bóndann að Hálsi í Kjós, sem er að gera virkilega góða hluti, auk þess sem við buðum upp á ótrúlega gott paté frá Matarbúrinu þeirra í kynningunni sjálfri. Mæli eindregið með vörunum þeirra og hvet fólk til að nýta sér starfsemi býla í samtökunum Beint frá býli. Þá getur fólk verið visst um að fá gæðavöru á góðu verði þar sem allir græða !

Þeir eru þó ekki þeir einu sem bjóða uppá gæðaafurðir heldur er hægt að nálgast um allt land ýmsar aðrar góðar vörur, s.s. lambakjöt, egg, ís, lax, osta, sultur og ýmsar afleiddar afurðir s.s. rabarbarakaramellur, reyktar tungur.. og miklu miklu fleira !

Ég vonast einnig til að þeir bændur sem ekki hafa enn opnað augun sjái tækifærin sem liggja í landbúnaðinum um þessar mundir, það þarf oftar en ekki nema að hugsa örlítið útfyrir rammann því möguleikarnir eru óendanlegir !

Hrein og ómenguð nautasteik -tekið af mbl.is

Ég er mikil öfgamanneskja í öllu sem ég geri. Það er annaðhvort of eða van -ég rata sjaldan hinn gullna meðalveg. Ég er skapstór en jafnframt fljót niður. Ég er ofurskipulögð en á sama tíma ótrúlega viðutan. Ég er ofurglöð eða einfaldlega alveg miður mín. Og allt getur þetta gerst á innan við 5 mínútum. Alveg óútreiknanlegt.

Þetta á einnig við í mataræðinu og heilsusamlega lífsstílnum. Annað hvort borða ég 100% og hreyfi mig alla daga vikunnar og finnst ostsneið vera það allra óhollasta EÐA ég hreyfi mig alls ekki, borða óreglulega og mjög óhollt, t.d. ís í öll mál. Ég borða reyndar ALLTAF mikið -hvort sem það er hollt eða óhollt. Það er kannski minn helsti galli og ástæðan fyrir að ég verð aldrei grönn. Ég kann mér ekki hóf.
Það að hreyfa sig temmilega reglulega, borða tiltölulega hollt og hafa nammidag einu sinni í viku til að halda öllu í skefjum virkar einfaldlega ekki fyrir mig. Það er annaðhvort allt eða ekkert !

Síðustu 3 vikur hafa verið slæmir öfgar. Ís, brauð og nammi hefur verið í fyrirrúmi á meðan ég hef aðeins tekið 2-3 góðar æfingar á viku. Og það hefur skilað sér til líkamans. Skammarlegt, maður nær af sér skvabbinu og safnar því svo aftur til að missa það enn einu sinni..

En núna er ég byrjuð á góðu öfgunum sem vonandi haldast út sumarið. Höfum haft 3 kraftmiklar high intensity æfingar síðustu 3 daga  (sem sjá má í færslu hér á undan) og mataræðið hefur verið reglulegt og gott. Enda líður mér dásamlega. Þessu verður haldið áfram og vonandi get ég innan tíðar farið að nota flotta sundbolsbikiníið sem ég keypti mér í gær..

…og svona fyrst myndavélin er loksins orðin virk, þá er hún að sjálfsögðu ofvirk enda öfgarnir hér ekkert minni en í öðru. Þetta var kvöldmaturinn í kvöld.

pita 005
Heimagerð heilhveitipíta með fersku íslensku grænmeti og prótein í mjólk með hindberjum.

skyr
Hreint skyr með rúsínum og eplum. I’m loving it !

Var búin að lofa að setja hér inn uppskriftina að hafrakökunum sem ég geri (uppskrift sem ég tók af netinu, breytti og gerði að minni) og ætla einnig að gefa ykkur uppskrift að einum mínum uppáhaldsrétt -grænmetislasagna. Ég er reyndar mjög MJÖG mikil “slump” manneskja, þannig þetta getur verið frekar ónákvæmt. En þá verður maturinn líka fjölbreyttari og persónulegri…
(meira…)