Mér finnst einsog þessi síða sé e-ð að drabbast niður. Held það sé facebook að kenna. Eiginlega finnst mér allt vera facebook að kenna þessa dagana -alltof mikill tímaþjófur. Spurning um að loka face fram yfir próf ?
Það styttist alltof hratt í prófin og kvíðahnúturinn stækkar í samræmi við það. Hvar er öll viskan sem átti að koma þessa önnina ? Hún hefur e-ð villst af leið..
Annars er allt við það sama. Nokkurn veginn. Nema ég er kannski væmnari -en það kemur svosem ekkert á óvart. Já og ég er orðin á báðum áttum með Svíþjóð. Fékk einhverja bakþanka og mér finnst ég ekki geta eytt tíma í að hugsa um það. All or nothing einkennin eru ekki að fara vel með mig.
…og svo get ég heldur ekki beðið eftir jólunum !
Fór í heimsókn til Helga Þórs og Betu í dag. Litli prinsinn þeirra gullfallegur og yndislegur. Leið svo vel með hann í fanginu og honum leið líka svo vel.
Var ég búin að segja að væmnin er að fara með mig ?
Vá ég er öll svo þvers og kruss. Þetta er nú meira bullið, þessi færsla.
Æ, þið afsakið. Þið 30 hræður sem enn lítið hingað inn..