
…er formlega hafinn !
nóvember 26, 2009

…er formlega hafinn !
nóvember 24, 2009
Á morgun er síðasti kennsludagur. Fer aðeins í tvöfaldan stærðfræðidæmatíma, svo það er samasem ekkert eftir. Síðustu skil eru annaðkvöld -8% tölfræðiverkefni sem ég er komin langt með.
Svo byrjar skipulagningin !
Ætla að reyna að koma þessu hér niður á ,,blað” til að fá smá heildaryfirsýn. Nokkurs konar to-do listi..
Fyrir miðnætti miðvikudaginn 25. nóvember:
1. Klára að hafa samband við alla aðila v.greinar fyrir Háskólablaðið svo ég verði komin með öll gögn eftir próf og geti skilað öllu af mér strax í vikunni eftir próf.
2. Skrifa 2-4 fjármálagreinar svo ég hafi það tilbúið upp á skil í prófatörninni.
3. Klára og skila tölfræðiverkefni.
4. Ljósrita og prenta út allt efni sem kemur mér að gagni fyrir próflesturinn.
5. Hlaupaæfing kl. 17 á mið og lyfta strax á eftir.
Fimmtudagur 26. nóv -fyrsti í upplestri.
1. STÆRÐFRÆÐI. Fara yfir öll heimadæmi vetrarins og gera drög að formúlublaði.
2. Æfing kl. 6:30 -lyfta.
Föstudagur 27.nóv -dagur tvö
1. STÆRÐFRÆÐI -sé það á fim. hvað nauðsynlegt er að fara betur í.
2. Spinning kl 17.35 +lyfta
Laugardagur 28. nóv -dagur þrjú
1. TÖLFRÆÐI
2. Spinning kl. 10:30
3. 2ja ára afmæli hjá Karenar Margrétar
Sunnudagur 29. nóv -dagur 4
1. TÖLFRÆÐI
Mánudagur- miðvikudags verða metnir eftir gengi hingað til.
Fimmtudagur 3. desember -fyrsta prófið.
TÖLFRÆÐI
Svo nú er bara að bretta upp ermarnar. Hef tröllatrú á þessu þótt ég eigi langt í land og þurfi að liggja virkilega yfir bókunum til að ná góðu gengi.
Ætla einnig að vera dugleg að æfa næstu vikurnar sem gefur vonandi extra púst og léttir á stressi.
..svo er kannski vert að minnast á að lömunin er (löngu) horfin útlitslega auk þess sem ég finn samasem ekkert fyrir henni, aðeins smá dofa í kinninni en ekkert sem hægt er að tala um. Ég er byrjuð að trappa niður sterainntökuna og mun að öllum líkindum vera orðin laus við öll lyf í byrjun næstu viku.
Þetta er frekar sundurleit færsla til lestrar en gerði sitt gagn. Ég er komin með nokkur skýrar útlínur fyrir næstu daga.
Kvöldið í kvöld er ýsa og soðnar kartöflur. Tölfræði og kertaljós.
nóvember 22, 2009

Einfalt, ekki satt ?
nóvember 19, 2009
Hef hitt svo mikið af áhugaverðu fólki í vikunni -og enn er bara miðvikudagur !
Var að koma heim af H-deginum á Austur þar sem fólki deildi hugmyndum og fékk feedback á þær. Margt mjög skemmtilegt, áhugavert og gagnlegt sem kom fram. Alltaf er maður að sækja sér fróðleik -ná sér í verkfæri í verkfæratöskuna sem síðar meir verður nýtt til að byggja eitthvað stórkostlegt. Já, ég er alltaf svo stórhuga eftir svona fundi/ráðstefnur/samkomur.
Þessi vika hefur af þessum sökum farið minna í lærdóm. Sem er frekar slæmt þar sem verkefnahrúgarn er nokkuð há. Skil á rekstrargreiningarverkefni á morgun, próf í fjármálum á föstudag + skil á tölfræðiverkefni, skil á stærðfræði-og rekstrargreiningarverkefni á mánudag auk ritgerðar í stjórnun og svo er stórt skilaverkefni í tölfræði á miðvikudag. Það er því augljóst í hvað helgin fer !
Og fyrst ég er að fara yfir víðan völl þá gekk hlaupaæfing 2 ágætlega í dag þrátt fyrir beinhimnubólgu og smávægileg eymsli í vinstra hné.
Og fyrst ég er farin að kvarta yfir líkamlegum einkennum þá hefur vinstra augnlokið (eða svæði milli augabrúnar og augnloks) á mér sigið í dag, ástæðan er ekki ljós en ég lýsi eftir hugmyndum.. Er ekki alveg sama með þetta. Bæði vegna þess að ég lít út einsog Quasimodo og ég finn ekkert um sigin augnlok á google nema e-rja taugasjúkdóma. Finnst það pínu scary.
Quote dagsins eru komment síðan í kvöld:
,,Árangur er 1% innblástur og 99% útblástur”
…as in inspiration and outspiration
…as in hugmyndaauðgi og vinnusemi
,,Hámark heimskunnar er að skipta aldrei um skoðun”
nóvember 10, 2009
Fyrir stuttu vorum við að læra samningatækni í stjórnun, þ.á.m. samningatækni í launaviðræðum. Það var e-ð sem ég þurfti á að halda (og vonandi get nýtt mér) því ég er típísk kvensa sem lætur bjóða sér alltof lág lán og viðheldur þar með launamismun kynjanna.
Ég er yfirleitt frekar hörð í samningum -öllum samningum sem varða mig ekki persónulega. Ef ég er ósátt, fæ slæma þjónustu, finnst troðið á mér - þá kvarta ég. Ég læt í mér heyra ef það er troðið á fólki í kringum mig. Ég er góð í business og almennum samningaumræðum. En að þurfa að biðja um e-ð og kvarta í leiðinni -það er mér algjörlega um megn. Þetta á bæði við um að BIÐJA um launahækkun eða fara til læknis og segja að e-ð sé að. Hvort tveggja er alveg mín versta martröð.
Við fengum m.a. þennan texta frá Aðalsteini Leifssyni:
Konur eru hreint ekki verri samningamenn en karlar. Ítrekaðar og vandaðar athuganir sýna að konur og karlar ná sama árangri í samningaviðræðum og því hefur það ekkert forspárgildi um niðurstöðu að vita hvort samningsaðilinn er kvenkyns eða karlkyns, nema… þegar kemur að einstaklingsbundnum launaviðræðum. Í launaviðræðunum breyta konur (ekki allar – en mjög margar) um samningahegðun og biðja ekki um það sem þær vilja eða sækast eftir heldur aðeins það sem þær geta fengið án átaka. Karlar eru margfalt líklegri til að semja um það sem þeir vilja meðan konur eru líklegri til að bíða eftir að vera boðin launahækkun, ábyrgð, áberandi verkefni og mannaforráð. Þegar það gerist ekki þá eru þær ósáttar og fara e.t.v. annað.
Þarna er mér nákvæmlega lýst !
Ég stend mig vel og legg mig fram og VONAST svo eftir því að e-r taki eftir því og BJÓÐI MÉR betri kjör. En auðvitað gerist það ekki. Vinnuveitandinn er bara sáttur með að hafa góðan starfskraft á lágum lánum sem krefst einskis.
Frábært.
Þetta verður næsta krefjandi mission -að þora að fara til læknis (þegar ég þarf á að halda) og þora að biðja um launahækkun (þegar það á við).
október 13, 2009
Þessa dagana geta nemendur HR valið sér námskeið næstu annar. Það er stór kostur við að vera kominn af 1. ári, að geta valið sér námskeið sem maður hefur áhuga á.
Á næstu önn fer ég í 4 skyldunámskeið: aðgerðagreinungu, tölfræði II, tölulega greiningu og verkefnastjórnun. Svo get ég valið um Leiðtogar og breytingastjórnun.
… and that’s it ! Það er eina námskeiðið sem í boði er sem val á 4. önn í rekstrarverkfræði. Vel gert !
Ég er að hugsa um að velja Leiðtoga og breytingastjórnun (og reyndar er á að spá að taka líka lögfræði sem aukafag, ef það lendir ekki í of miklum árekstrum).
En svo er líka annað sem mér finnst ókostur við þessi valnámskeið í verkfræðinni. Við verðum að velja 2 námskeið úr sviðskjarna heilbrigðis -eða hátækniverkfræði ! Það er ástæða fyrir því að ég valdi ekki þá leið -þessi námsleið býður alls ekki uppá spennandi námskeið (að mínu mati) ! Og hvað ef ég tek varmafræði og merkjafræði ? Er ég betur undirbúin fyrir það sem ég stefni á ? Hjálpar það mér á einhvern hátt að neyðast til að VELJA námsekið sem ég hef engan áhuga á að læra ? Er það virkilega að víkka sjóndeildarhringinn ?
Mér finnst að valnámskeiðin eigi að fá að vera algjört val, að við getum tekið þá kúrsa sem við höfum virkilegan áhuga á að læra til að hjálpa okkur að undirbúa okkur fyrir þá vinnu eða áframhaldandi nám sem sem við stefnum á.
október 9, 2009
Ég er við það að springa. Finnst mér. Ég er eirðarlaus því ég á að vera að læra undir próf sem er í hádeginu en get þó engan veginn fest mig við lærdóminn. Samt finnst mér efnið nokkuð skemmtilegt -fjármál fyrirtækja.
Það er bara svo margt að gerast. Ég er komin á flug um það sem ég ætla að gera næst. Ekki núna. Næst. Á eftir, á morgun, eftir viku, eftir ár.
Þetta gerist annað slagið. Svona nokkurn veginn á tveggja ára fresti. Fyrst þegar þetta kom þá fór ég sem skiptinemi til Brasilíu. Í annað skiptið fór ég í bakpokaferðalag um S-Ameríku. Þetta er einskonar þrá í það óþekkta. Þrá í áskorun og nýjungar. Aukið sjálfstæði, ný verkefni.
En nú er ég föst hér. Kemst ekkert. Þess vegna er ég að taka að mér ýmis skemmtileg verkefni, bæði launuð og ólaunuð. Og mig langar bara að hella mér í þau.. en þá þarf ég að gera 10 bls skiladæmi í stærðfræði eða 15 klst verkefni í tölfræði.
Og auðvitað geri ég þessi skilaverkefni. En hugurinn er alltaf annars staðar. Ég er að skipuleggja afmæli, skipuleggja grein, skipuleggja texta, skoða mastersnám, skoða námskeið, skoða lyftingarplön, lesa mér til um næringarfræði, skoða valfög, velja og kaupa tölvu, ákveða jólagjafir, hugsa um þema að jólakortum, velja uppskrift til að baka…
Ég held ég bara verði að fara í skiptinám næsta haust. Annars spring ég.
Tikk-takk-tikk-takk..
október 5, 2009
Áttum að skrifa um leiðtoga og kynna hann í stjórnun í dag. Mér fannst þetta skemmtilegt verkefni. Ég valdi Magnús Scheving, enda aðdáunarverður karakter, mikill fyrirmynd og flottur leiðtogi.
Mæli með að þið skoðið þetta viðtal við hann, sérstaklega frá mínútu 5:45 til enda (ca. 2 mín).
…annars er yndislega fallegt veður úti. Fyrsta alvöru snjókoman á höfuðborgarsvæðinu í vetur. Dásemd. Í fyrramálið verður það ullarkápa, húfa og vettlingar.
september 22, 2009
Ég hef tekið tímamótaákvörðun.
Ég er hér með hætt að taka tölvuna með í skólann nema ég ég þurfi þess bráðnauðsynlega (sem ég sjaldnast þarf).
Facebook og almennt internetráf er farið að taka frá mér dýrmætan tíma sem ég má ekki við að missa, auk þess sem einbeitingin verður engin við lærdóminn. Þetta er engin ný uppgötvun, það vita þetta allir, en það getur verið erfitt að viðurkenna og takast á við “vandamálið”.
Það sem fær mig til að taka skrefið er spennandi mastersnám sem mig langar mikið í (þessa stundina, svo veit maður aldrei) þar sem aðeins eru teknir inn 30 á ári úr öllum heiminum -yfirleitt aðeins 1 frá hverju landi. Ég á kannski ekki mikinn séns, en ætla þó ekki að drepa litlu glætuna með því að slugsa við námið.
Megið gefa mér selbit ef þið sjáið mig á facebook í skólanum !
september 16, 2009
Ég er enn á ný farin að íhuga skiptnám. Þetta er bóla sem kemur upp öðru hverju. Oftar en ekki dettur hún uppfyrir af einhverjum ástæðum en þetta blundar alltaf í mér. Þetta eirðarleysi og endalausar áskoranir.
Núna er ég að spá í The Royal Institute of Technology í Stokkhólmi. Það sýnir smá vott um að ég sé að róast. Í fyrra vildi ég fara yfir hálfan hnöttinn, til Ástralíu eða Nýja Sjálands, en núna er ég farin að hallast að Skandinavíu. Þessi skóli er nr. 53 yfir 100 bestu verkfræðiháskóla í heimi og býður upp á marga spennandi kúrsa.
Kemur í ljós hvað verður úr þessu. Hugmyndin er að fara næsta haust -en miðað við óvissu-Ísland þá getur margt breyst fram að þeim tíma.
Quote dagsins:
“Luck is what happens when preparation meets opportunity.”