Í dag er ég háfleyg.
Ég er að byrja vinnuna að grein í Háskólablaðið (kemur út í febrúar 2010) sem ber vinnuheitið Tækifæri Íslands. Mig dauðlangar á þjóðfundinn sem haldinn verður á laugardaginn en því miður fékk ég ekki boðskort. Ég bíð þá bara eftir niðurstöðunum, en finnst þó synd að geta ekki tekið þátt. En kannski á annan hátt ?
Tækifærin eru nefnilega alls staðar. Sérstaklega núna. Á Íslandi er að losna úr læðingi kraftur sem hefur verið njörvaður niður. Einstaklingsframtakið, sem ég hef alltaf verið svo hlynnt án þess að vera blá, er að fara að virka fyrst núna því nú hafa allir möguleikann að byrja frá grunni. Á eigin forsendum. Þegar góðærið ríkti var þetta ekki einstaklingsframtak því fólk var mótað eftir kúnstarinnar reglum og aðeins útvaldir fengu að taka þátt. Yfirleitt þeir sem meira áttu. Hugmyndin sem var á lofti var ,,allir eru jafnir, bara misjafnir eftir því hvað fólk er duglegt að skapa sér tækifæri”. Auðvitað er þetta rétt en það sem vantaði var gagnrýnin hugsun. Ef þú komst langt varstu bara ,,duglegur að skapa þér tækifæri” og enginn spurði hvernig þú fórst að því. En ef þú varst láglaunamaður þá skiptiru engu máli því þú nenntir ekki að skapa þér þín eigin tækifæri. Þess vegna jóks stéttaskipting í þjóðfélaginu, vil ég meina.
En það sem ég vildi segja: það er fullt af fólki þarna úti sem er með góðar hugmyndir. Sumir hafa bolmagn til að koma hugmyndunum í verk -aðrir ekki. En fæddar hugmyndir deyja ekki svo glatt og þær skipta bara um eigndur ef hugmyndasmiðurinn lætur þær frá sér. Og þeir sem hafa bolmagn til framkvæmda eiga að grípa hugmyndirnar -grípa tækifærið- og skapa verðmæti.
Mig langar að biðja ykkur ef þið hafið hugmynd eða þekkið fólk sem hefur hugmynd að hafa samband. Eða benda mér á fólk til að hafa samband við. Það mega vera allskyns hugmyndir en helst þó að hafa það sameiginlegt að vera hugsjón og mögulegt tækifæri fyrir uppbyggingu Íslands. Þetta þarf ekki að vera stórt því allt byrjar smátt.
Hvet ykkur eindregið. Við erum öll Íslendingar sem látum okkar Ísland varða og öll höfum við hugmyndir sem geta gert gott.
kristingri08@ru.is