Síðasta posjónin af naan brauðum er inni í ofni. Byrjaði á að grilla þau í Gogga, en mér fannst þau of klesst. Er líka búin að baka bananaorkubrauð og hafraklatta auk þess að skella í kjúklingasalat sem var í hádegismat. Alveg tilvalið að nota mánudagsmorgun í bakstur þegar nánast allir tímar dagsins falla niður vegna ferðalaga kennara.
Þessi bakstur er þó ekki tilkominn af eintómum dugnaði. Hér á þessum bæ er allt gert for a reason, en í dag byrjaði formlega “heilsukeppni” okkar Jóns. Til að detta ekki í óhollustuna á löngum skóladögum (líkt og gerst hefur undanfarið með 1/2 kg af súkkulaðirúsínum á dag) mætum við í skólann með heimatilbúið, hollt og orkumikið nesti. Ísskápurinn er fullur af ávöxtum, skyri og kjúkling -og svo verða hafraklattar og orkubrauð smá uppbót.
“Heilsukeppnin” er líka komin til af gleðilegri ástæðu. Jón Ágúst hefur loks keypt sér árskort í ræktina og nú munið þið geta séð okkur bæði sveitt og sælleg í World Class. Þó líklega aldrei á sama tíma -við getum jú ekki sést hvort með öðru. En Jón er ekki þekktur fyrir að gera neitt tilgangslaust svo markið er sett hátt.
Ég stefni á að losna við 6 kg af fitu fyrir 20. desember og Jón Ágúst ætlar að vera búinn að bæta á sig 6 kg af vöðvamassa fyrir sama tíma (við erum svo mikið balance-fólk, að við viljum halda heildarþyngd okkar stögugri). Uppá ísskáp er komið blað með markmiðunum, bæði í orðum og myndum (!) og tafla þar sem árangurinn verður merktur inná vikulega. Einsog í öllum alvöru keppni eru verðlaun fyrir þann sem vinnur/nær betri árangri og þau eru ekki af verri endanum: Út að borða í Perluna í boði taparans + 1 klst í nudd.
Þið megið veðja á hvor vinnur !
Var svo búin að lofa að skella hér inn uppskriftinni að bananabrauðinu. Þetta er búið að vera uppáhaldsuppskriftin mín lengi. Fékk hana í ræktinni minni úti í Brasil með því loforði að ég léti hana ekki fara lengra. Þar með svík ég það loforð, enda finnst mér að allir megi njóta hennar. Og þó, því ég finn ekki uppskriftabókina. Læt ykkur því fá hana eftir minni, en svona gerði ég brauðið í morgun..
Bananaorkubrauð
1 dl spelt
1 dl klíð (má líka vera spelt)
1 1/2 dl púðursykur
1 msk lyftiduft
2 msk kanill (eða bara dass)
1 egg
1/2 dl mjólk
1/2 dl olía
3 bananar
Þurrefnunum blandað saman. Síðan er olíu, mjólk og eggi (má sleppa, en gerir léttara) bætt við. Hrært vel saman, á að vera frekar blautt. 2/3 af deiginu sett í mót (ég nota svona ílangt brauðmót, en hægt að nota hvað sem er) og bananarnir skornir þvert/langsum í og tvennt/þrennt og settir ofan á degið. Restin af deiginu fer yfir.
Skellt inní ofn á 180° í ca. 50 mín.
Vola og verði ykkur að góðu..
Skrifað í Heilsa og lífssíll, Heimilið, Matur